Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lagt fram til kynningar bréf, dagsett 21. desember 2010, frá Varasjóði Húsnæðismála. Þar er kynnt nýtt samkomulag um framlög til Varasjóðs húsnæðismála sem felur í sér það meginverkefni Varasjóðsins á árunum 2010 og 2011 að taka þátt í uppgreiðslu áhvílandi lána félagslegra eignar- og leiguíbúða við sölu þeirra á almennum markaði í þeim tilfellum þegar innlausnarverð íbúða stendur ekki undir uppgreiðslu áhvílandi lána. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Málið rætt.Lagt fram bréf, dagsett 14. janúar 2011, frá Guðjóni Bragasyni lögfræðingi Sambands íslenskra sveitarfélaga um áhrif nýrra mannvirkjalaga 160/2010 á umboð byggingarnefndar og fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa. Lögin tóku gildi 1. janúar sl. Sveitarstjórnir eru hvattar til þess að taka sem fyrst ákvörðun um það fyrirkomulag sem þær telja henta sínum aðstæðum. Jafnframt telur sambandið mikilvægt að sveitarstjórnir, byggingarnefndir og byggingarfulltrúar komist að sameiginlegri niðurstöðu um verklag þar til ákvörðun um fyrirkomulag stjórnsýslu liggur fyrir svo forðast megi tímabundna óvissu um valdheimildir byggingarfulltrúa og starfandi byggingarnefnda.Miðað við samantekt bréfsins þá er fyrirkomulag Fjarðabyggðar í takt við nýju lögin, en þó verður að endurskoða samþykkt Fjarðabyggðar um afgreiðslu byggingarfulltrúa frá 2003. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur sviðstjóra og byggingarfulltrúa að leggja fyrir nefndina tillögur að breyttri samþykkt fyrir afgreiðslur byggingarfulltrúa.Lagðir fram aðaluppdrættir af Franska spítalanum, læknishúsinu og tengdum húsum á Fáskrúðsfirði, unnir af Argos ehf. arkitektum. Meðfylgjandi er umsókn um byggingarleyfi frá Minjavernd hf. Búið er að afgreiða bæði aðalskipulags- og deiliskipulagsbreytingar vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Fyrir liggur jákvæð umsögn Húsafriðunarnefndar til verkefnisins.
Nefndin felur byggingarfulltrúa af afgreiða byggingarleyfið.
Friðrik Jón Ottósson sótti um rekstur pizzastaðs við Strandgötu 25 á Eskifirði. Málið var áður tekið fyrir á 10. fundi nefndarinnar, þar sem byggingarfulltrúa var falið að setja málið í grenndarkynningu. Grenndarkynningu er nú lokið með samþykki allra nágranna.
Nefndin samþykkir umsókn um breytta notkun húsnæðis á þessum stað, fyrir sitt leyti, og felur byggingarfulltrúa afgreiðslu málsins.
Byggingarfulltrúi og fasteigna- og framkvæmdarfulltrúi viku af fundi.
Nefndin felur mannvirkjastjóra að klára samninga og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar til samþykktar.
Nefndin felur mannvirkjastjóra að klára samning og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar til samþykktar.
Lagt fram minnisblað, dagsett 17. desember 2010, frá Mannviti verkfræðistofu vegna vinnu við umferðaröryggisáætlun fyrir Fjarðabyggð. Þar er farið yfir áætlaðan ráðgjafakostnað vegna gerðar umferðaröryggis-áætlunar fyrir allt sveitarfélagið.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur sviðstjóra að fá úttekt á drögum að umferðasamþykkt Fjarðabyggðar.