Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna,- skipulags- og umhverfisnefnd Fjarðabyggðar samþykkir tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, þéttbýlisuppdráttur fyrir Eskifjörð, reitur V1/A1, Dalbraut 1. Til þess að skapa svigrúm fyrir byggingu hjúkrunarheimilis á lóðinni Dalbraut 1 er lagt til að landnotkun á henni verði breytt í svæði fyrir þjónustustofnanir. Landnotkun á öðrum hlutum reits V1/A1 verði óbreytt.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vísar tillögu til afgreiðslu bæjarstjórnar í auglýsingu, en tillagan verður auglýst samkvæmt 31. gr skipulagslaga 123/2010.
Eigna,- skipulags- og umhverfisnefnd Fjarðabyggðar samþykkir tillögu að deiliskipulagi við Dalbraut 1 á Eskifirði. Lýsing á skipulagsverkefninu var samkvæmt 1. mgr. 40. gr skipulagslaga 123/2010 dags. 23.02.2011. Tillagan er sett fram á uppdráttum og í greinagerð dags. 28.02.2011 sem sýna lóð hjúkrunarheimilis ásamt nánasta umhverfi. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Kynningarfundur um deiliskipulagstillöguna var haldinn á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar 28. febrúar 2011, klukkan 16. Einnig er ráðgerður kynningarfundur í félagsaðstöðu eldri borgara á Eskifirði, 1. mars, klukkan 15.
Nefndin vísar tillögu til afgreiðslu bæjarstjórnar í auglýsingu, en tillagan verður auglýst samkvæmt 41. gr skipulagslaga 123/2010.
Lögð fram til kynningar hættumatsskýrsla fyrir skíðasvæðið í Oddsskarði, dagsett desember 2010. Niðurstaða hættumatsins er sú að efri hluti barnalyftu í Sólskinsbrekku er á C-svæði og stenst því ekki viðmið reglugerðar 636/2009 um skíðasvæðahættumat. Snjóflóð hafa fallið yfir efsta hluta lyftunnar og tilheyrandi skíðaleiðir. Skíðaskálinn er á B-svæði en á slíkum svæðum er heimilt að reisa skíðaskála án næturgistingar. Diskalyfturnar tvær eru fremur vel staðsettar með tilliti til snjóflóðahættu og upphafsstöðvar þeirra beggja ásamt tilheyrandi raðasvæðum eru utan C-svæðis. Undir Magnúsartindi eru snjóflóð tíð niður á troðna skíðaleið. Einnig má búast við flóðum niður á skíðaleiðir undir Sellátrafjalli og Goðatindi við óvenjulegar aðstæður.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Samkvæmt reglugerð 636/2009 er það sveitarstjórn sem auglýsir hættumatið og skal það liggja fram á skrifstofu sveitarfélagsins í 4 vikur. Hættumat skíðasvæðisins skal svo staðfest af umhverfisráðherra og tekur gildi við birtingu í Stjórnartíðindum.
Nefndin vísar hættumatinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu í auglýsingu, jafnframt leggur nefndin til að skýrslan verði látinn liggja frammi til kynningar í skíðaskálanum í Oddsskarði, á bæjarskrifstofu og í öllum þjónustugáttum Fjarðabyggðar.
Lögð fram umsókn frá Alcoa Fjarðaáli um stöðuleyfi fyrir kennslustofur, starfsmannaaðstöðu, búningsklefa og tengibyggingu við 620-bygginguna. Einnig lagðir fram uppdrættir.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin frestar afgreiðslu og óskar eftir frekari gögnum frá Alcoa, t.d. tímasetningu um varanlega lausn.
Mannvirkjastjóri gerði fundarmönnum grein fyrir fundi sem hann átti með Ofanflóðasjóð, þ.e. Hafsteini Pálssyni starfsmanni sjóðsins og Magnúsi Jóhannessyni ráðuneytisstjóra umhverfisráðuneytis og formanni Ofanflóðasjóðs. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Fram kom á fundinum að Ofanflóðasjóður muni fara í frumathugun á vörnum fyrir Nýjarbæjarlæk á næstu vikum og mánuðum í samvinnu við Fjarðabyggð. Framkvæmdaráætlun sjóðsins mun svo vera rædd í samhengi við öll verkefni sjóðsins, en sjóðurinn gerir ekki ráð fyrir auknu fjármagni til framkvæmda fyrr en árið 2013.
Nefndin lýsir ánægju með frumathugunina en leggur áherslu á að vinnu við framkvæmdaráætlun sjóðsins verði flýtt eins og kostur er til að eyða óvissu íbúa.
Lögð fram umsókn Fjarðabyggðar, dagsett 2. febrúar 2011 til Orkusjóðs með beiðni um sameiningu styrkja til heitavatnsleitar. Einnig lagt fram svarbréf frá Orkusjóði, ásamt greinargerð bæði dagsett 21. febrúar 2011. Framkemur í svarbréfi að Orkuráð hafni erindi Fjarðabyggðar þar sem það fellur ekki að úthlutunarreglum sjóðsins.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir málið.
Lögð fram tillaga eigna- og skipulagsfulltrúa um breytingu á leiguverði fyrir stærstu íbúðir Fjarðabyggðar, þ.e. íbúðir stærri en 100 m2. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir tillöguna og frestar afgreiðslu til næsta fundar.
Lögð fram drög að samningi við KFF um rekstur og umsjón með knattspyrnusvæðunum á Eskifirði og Reyðarfirði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir samninginn og samþykkir að vísa honum til staðfestingar bæjarráðs. Einnig leggur nefndin til að hann verði kynntur í fræðslu- og frístundarnefnd.
Lögð fram drög að samningi við Leiknir um rekstur og umsjón með Búðargrund á Fáskrúðsfirði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir samninginn og samþykkir að vísa honum til staðfestingar bæjarráðs. Einnig leggur nefndin til að hann verði kynntur í fræðslu- og frístundarnefnd.
Lögð fram bréf mannvirkjastjóra, dagsett 15. febrúar, og bréf frá HAUST með sömu dagsetningu, en bæði bréf voru send á málsaðila, Agnesi Klöru. Einnig lagt fram bréf frá málsaðila, dagsett 23. febrúar. Einnig lögð fram umsögn frá HAUST vegna málsins. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Málsatvik eru að málsaðili er kominn með 4 hunda og einn kött á heimili sitt í Heiðmörk 13, 755 Fjarðabyggð, en hefur aðeins leyfi fyrir tveimur hundum. Búið að skila inn umsóknum fyrir tveimur hundum í viðbót og kettinum. Jafnframt hefur málsaðili skilað inn umsókn eða beiðni til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um að fá undanþágu frá samþykkt um hundahald í Fjarðabyggð, þ.e. þeirri grein er kveður á um fjölda dýra á heimili. Málsaðili ráðgerir ræktun á hundum fáist leyfi til þess.
Nefndin fór yfir málið en getur ekki fallist á undaþágu frá samþykkt um hundahald og er því beiðni hafnað. Mannvirkjastjóra er falið að fylgja málinu eftir og sjá til þess að farið verði eftir samþykkt.
Lagt fram svar frá Ferðamálastofu vegna umsókna um styrki vegna uppbyggingar á ferðamannaaðstöðu í Fjarðabyggð. Sótti Fjarðabyggð um styrki vegna þriggja staða: Helgustaðarnámu, Hólmaness og Söxu, samtals um 8 milljónir. Nú liggur fyrir úthlutun Ferðamálastofu og fékk Fjarðabyggð að þessu sinni 500 þúsund krónur til hönnunar gönguleiða í Hólmanesi.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Einnig er lagt fram minnisblað frá ferða- og menningarfulltrúa um mikilvægi þessara staða vegna væntanlegrar komu skemmtiferðaskipa og er þá sérstaklega horft til Helgustaðarnámunnar, þar sem ráðgert er að skipin muni leggja að landi á Eskifirði.
Nefndin þakkar ferða- og menningarfulltrúa fyrir minnisblaðið og tekur undir það sem fram kemur þar. Nefndin mun halda áfram að leita leiða til að fá fjármagn í verkefnin þó að þau hafi ekki hlotið náð fyrir augum Ferðamálastofu að þessu sinni.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð eftirfarandi forgangsröðun vegaframkvæmda í Fjarðabyggð, vegna endurskoðunar á vegaáætlun:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
1. Ný Norðfjarðargöng.
2. Breyting á þjóðvegi í botni Reyðarfjarðar með því að afleggja einbreiða brú yfir Sléttuá. Breyting felur í sér tæplega 2 km. styttingu frá Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði inn á Reyðarfjörð.
3. Breyting á þjóðvegi í botni Fáskrúðsfjarðar. Um er að ræða nauðsynlega breytingu vegna umferðaröryggis, en á kaflanum er tvær hættulegar einbreiðar brýr, yfir Dalsá og Tunguá. Fjarlægð frá Stöðvarfirði til Reyðarfjarðar styttist einnig.
4. Breyting á suðurströnd Fáskrúðsfjarðar, en um er að ræða ein hættulegasta kafla Suðurfjarðavegar, framkvæmd sem nær yfir um 10 km. kafla.
5. Breyting á veginum í botni Stöðvarfjarðar, breyting á veglínu og bygging á nýrri brú.
6. Uppbygging á veginum yfir í Mjóafjörð. Mikilvægt vegna möguleika á frekari uppbyggingu í ferðaþjónustu.
7. Lýsing á þjóðvegi í gegnum Reyðarfjörð, svokölluð "hjáleið".