Fara í efni

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd

182. fundur
21. ágúst 2017 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson Formaður
Einar Már Sigurðarson Aðalmaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir Aðalmaður
Ragnar Sigurðsson Varaformaður
Starfsmenn
Valur Sveinsson Embættismaður
Marinó Stefánsson Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Marinó Stefánsson Mannvirkjastjóri
Dagskrá
1.
Meindýraeyðing í Nípunni - Fólkvangurinn í Nesk.
Málsnúmer 1705188
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að endurnýja leyfi Sigurðar V. Jóhannessonar til refa- og minkaveiða í Nípunni í Norðfirði.
2.
730 Heiðarvegur 23 - Endurnýjun á lóðaleigusamningi
Málsnúmer 1611112
Lögð fram umsókn Sigurjóns Friðrikssonar, dagsett 28. nóvember 2016, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hans að Heiðarvegi 23 á Reyðarfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður í samræmi við lóðarblað.
3.
735 Oddsskarðslína - Framkvæmdaleyfi, plæging háspennustrengs
Málsnúmer 1708080
Lögð fram umsókn Guðmundar Hólm Guðmundssonar fh. Rarik ohf, dagsett 17. ágúst 2017, þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi vegna plægingar háspennustrengs frá loftlínuenda skammt vestan við skíðamiðstöðina í Oddsskarði að strengenda við Högnastaði. Umsögn Vegagerðarinnar og Minjastofnunar Íslands liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útgáfu leyfis og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið þegar samþykki landeiganda liggur fyrir.
4.
Framkvæmdaleyfi fyrir Mjóafjarðarlínu
Málsnúmer 1708020
Lögð fram umsókn Guðmundar Hólm Guðmundssonar fh. Rarik ohf, dagsett 9. ágúst 2017, þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi vegna strenglagnar á u.þ.b. tveggja km. kafla um Brekkugjá milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar þar sem loftlína hrundi í ísingarveðri í ársbyrjun 2014.
Niðurstaða Skipulagsstofnunar um að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útgáfu leyfis og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið þegar samþykki landeiganda liggur fyrir.
5.
735 Hátún 20 byggingarleyfi - uppsteyptur veggur
Málsnúmer 1708041
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Þórs Þórðarsonar, dagsett 14. ágúst 2017, þar sem sótt er um leyfi til að steypa upp stoðvegg vegna bílastæðis vestan við hús hans að Hátúni 20 á Eskifirð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
6.
Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 1708088
Lagt fram bréf Hrefnu Eyþórsdóttur, dagsett 15 ágúst 2017, fyrir hönd starfshóps um fjölskyldu- og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði sem langar að koma upp fjölskylduvin í Skrúðgarðinum á Fáskrúðsfirði.
Óskað er eftir upplýsingum um hvernig nýting svæðisins sé fyrirhugð í skipulagsáætlun sveitarfélagsins og hvort nýting í samræmi við hugmyndir hópsins sé möguleg.
Skrúðgarðurinn á Fáskrúðsfirði er innan reits O3 samkvæmt Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027. Ekkert deiliskipulag er til af svæðinu. Reitur O3 er opið svæði til sérstakra nota sem eru svæði með útivistargildi á einn eða annan hátt.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að hugmyndir starfshópsins samræmis skipulagsskilmálum svæðisins og tekur vel í að fjölskylduvin verði gerð í Skrúðgarðinum og þakkar erindið. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa og umhverfisstjóra að vera í sambandi við hópinn um útfærslu á hugmyndinni
7.
Göngustígur við enda Stekkjarholts Reyðarfirði
Málsnúmer 1707114
Lagt fram ódagsett bréf Birgittu Rúnarsdóttur þar sem óskað er eftir göngustíg við enda Stekkjarholts á Reyðarfirði og að stíg sem er ofan við bæinn. Gangbraut væri yfir Stekkinn þar sem stígurinn þverar götuna. Einnig er bent á að stígurinn ofan bæjarins sé grófur þar sem hann tengist inn á Stekk.
Áætlanir sveitarfélagsins gera ráð fyrir göngustígum frá Stekkjarholti að Stekk og með Stekk og Réttarholti að Búðareyri. Eins er reiknað með tenginum frá Stekkjarhverfinu að Réttarholti.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar erindið og vísar til vinnu við göngu- og hjólastíga og fjárhagsáætlunargerðar.
8.
755 - Bankastræti 1 - Byggingarleyfi
Málsnúmer 1708011
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Sköpunarmiðstöðarinnar svf, dagsett 4. ágúst 2017, þar sem sótt er um að breyta notkun húsnæðis félagsins að Bankastræti 1 á Stöðvarfirði í menningarmiðstöð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að breyta skráningu þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
9.
750 Króksholt 5 - byggingarleyfi - klæðning húss
Málsnúmer 1708069
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Guðbjargar Rósar Guðjónsdóttur, dagsett 15. ágúst 2017, þar sem sótt er um leyfi til að klæða hús hennar að Króksholti 5 á Fáskrúðsfirði að utan með sléttu Steni ásamt gerð bílastæðis austast á lóðinni.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
10.
730 - Takmarkanir á akstri um Sunnugerði
Málsnúmer 1707105
Lagt fram bréf Ástu Einarsdóttur og Bjarna Guðmundar Bjarnasonar íbúa við Sunnugerði 15 á Reyðarfirði, dagsett 24. júlí 2017, þar sem óskað er eftir að Sunnugerði verði aftur opnuð fyrir gegnum akstur vegna óþæginda sem lokun í einstefnugötu hefur í för með sér.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti á fundi sínum 20. mars síðastliðinn að tilraun yrði gerð til 1. október næstkomandi með að gera Sunnugerði að botnlangagötu.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að fá álit íbúa á tilrauninni og stytta lokunina frá áður ákveðnum tíma ef ástæða þykir til.
11.
Lagfæring á veg frá Viðfirði út að Barðsnesi sunnan Norðfjarðar
Málsnúmer 1610002
Lögð fram til kynningar framkvæmdarleyfisumsókn Barðsness við Norðfjörð ehf, dagsett 21. júlí 2017, vegna lagfæringar á vegslóða frá Viðfirði út fyrir Merkihrygg á um 3,5 km. kafla að landamerkjum Stuðla. Jafnframt lögð fram umsögn Umhverfisstofnunar. Ekki liggur fyrir afstaða eigenda Gerðisstekk og Stuðla, nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að fá afstöðu eiganda þeirra og leggja fyrir nefndina á næsta fundi.
12.
Húsnæði fyrrum Vélsmiðju SVN í Neskaupstað
Málsnúmer 1707095
Fyrirspurn Sigurðar Jenssonar um nýtingu á Eyrargötu 7 í Neskaupstað - gamla Vélsmiðjan - fyrir nytjamarkað. Sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs falið að ræða fyrirspurnina við Sigurð. jafnframt felur nefndin sviðstjóra að fara yfir framtíðarmöguleika húsnæðisins og leggja fyrir nefndina að nýju.
13.
Landbúnaðarnefnd - 18
Málsnúmer 1708003F
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fundargerð 19. fundar landbúnaðarnefndar