Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lagður fram til samþykktar verksamningur um jarðhitaleit 2011 í Fjarðabyggð milli Fjarðabyggðar og Jarðfræðistofunnar Stapa ehf. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir samninginn og felur mannvirkjastjóra að undirrita hann.
Lagt fram bréf frá Landsvirkjun, dagsett 26. maí annarsvegar og svo bréf frá Orkusölunni, dagsett 1. júní sl. vegna uppsagnar á samningum um sölu á ótryggðri orku. Landsvirkjun hefur undanfarið unnið að breytingum á söluskilmálum fyrir ótryggðra orku. Mál áður tekið fyrir í bæjarráði og var þar vísað til mannvirkja- og umhverfissviðs til úrvinnslu.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Uppsögn samninga miðast við 1. júlí 2011, þannig að stefnt er að því að nýir samningar taki gildi 1. janúar 2012.Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu mannvirkjastjóra, dagsett 3. ágúst sl., að hækka gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar, fjarvarmaveitur um 15 % frá og með 1. september næstkomandi. Hækkunin kemur í kjölfar hækkunar Landsvirkjunar á sölusamningum ótryggðar orku frá 1. september 2011. Tillögu vísað til staðfestingar í bæjarráði.
Lagt fram bréf frá HAUST, dagsett 3. júlí sl., vegna stöðu fráveitumála í sveitarfélaginu. Á fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands ,sem haldinn var þann 8. júní 2011, var fjallað um fráveitumál sveitarfélaga og m.a. tekið fyrir bréf, dagsett 25 .maí 2011 sem Umhverfisstofnun sendi heilbrigðisnefndum. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Með bréfinu óskar HAUST eftir upplýsingum um stöðu fráveitumála í sveitarfélögunum og tímasettum áætlunum um framkvæmdir til að koma fráveitumálum í það horf að það uppfylli ákvæði laga / reglugerðar um fráveitur og skólp. Einnig er óskað upplýsinga um áform sveitarfélaganna. Óskað er eftir upplýsingum um á hvaða hátt sveitarstjórnir hyggjast uppfylla kröfur skilyrði reglugerðar nr. 798/1999 um fráveitur og skólp og hvaða tímamörk sveitarfélögin hafa sett sér í málaflokknum.
Farið er fram á að stöðuskýrslan og upplýsingar um framtíðaráform verði send Heilbrigðiseftirliti Austurlands í tölvupósti fyrir 10. október 2011.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir málið og felur mannvirkjastjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir nefndina.
Lagt fram bréf frá Vegagerðinni, dagsett 23. júní 2011, vegna úthlutunar úr styrkvegasjóði fyrir árið 2011. Fjarðabyggð fékk úthlutað úr sjóðnum 1,5 m. kr. vegna styrkvega. Úthlutunin er ekki skilgreind á verkefni eins og verið hefur. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Fjarðabyggð sótti um styrki í tvö verkefni, lagfæringar á vegi inn Eskifjarðardal að norðanverðu og svo í lagfæringar á brú í Seldal í Norðfirði. Samtals var sótt um styrki að upphæð 3,7 m. kr., þannig að ljóst er að ekki verður farið í verkin eins og gert var ráð fyrir, heldur verður að forgangsraða þeim.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur mannvirkjastjóra að ræða útfærslu á verkefnunum, þannig að eitthvað verði framkvæmt á báðum stöðum.
Grenndarkynningu vegna fyrirhugaðra breytinga á Kvíagilslæk er lokið. Engar athugsemdir bárust.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur mannvirkjastjóra að ljúka undirbúningi fyrir framkvæmdir.
Grenndarkynningu vegna fyrirhugaðra breytinga á Rafstöðvarlæk er lokið. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Ein athugasemd barst og ein ábending frá aðila sem ekki fékk tilkynningu um grenndarkynninguna.
Ábendingin snýr að þremur jurtum sem teljast merkilegar á þessu svæði og beðið um að þeim verði hlíft við stígagerðina.
Athugsemdin snýr að legu stígsins en bréfritari telur hann betur kominn vestan við lækinn neðan Bakkagerðis þannig að gilinu sé hlíft og milli lækjar og trjáreits ofan Bakkagerðis ef stíg þarf þar á annað borð. Eins telur bréfritari að þessi staðsetning stígsins sé mun ódýrari í framkvæmd en hin og að auðvelt ætti að vera að þjónusta lækinn og flúðina í honum af vestari bakkanum.
Nefndin tekur undir ábendingu er varðar jurtir á svæðinu og mun reyna að verja þær í framkvæmdinni. Athugasemdir er varða legu stígsins felst nefndin ekki á. Nefndin telur að betra verði að þjónusta flúðir austan læks og að jafnframt fari lega stígsins betur þar með tilliti til útivistar og tengingar við núverandi stíga.
Grenndarkynningu vegna fyrirhugaðra breytinga á læk innan við Eskifjarðarvöll er lokið.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Ein athugsemd barst.
Athugasemdin snýr að staðsetningu settjarnar í læknum en bréfritari telur rétt að færa hana til suðurs eða neðan lóðanna við Ystadal 5 og 7.
Nefndin fellst á að færa settjörnina til suðurs og felur mannvirkjastjóra að ljúka undirbúningi fyrir framkvæmdir.
Grenndarkynningu vegna fyrirhugaðrar staðsetningar vallarhúss og stúku á Eskifjarðarvelli er lokið.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Engar athugasemdir bárust.
Erindi frá Júlíusi A. Albertssyni er varðar bygging 36 m2 garðhúsi við Heiðarvegi 6 á Reyðarfirði. Garðhúsið er 12 x 3 m og 2,8 m að hæð.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að farið verði með húsið í grenndarkynningu og felur byggingarfulltrúa að grenndarkynna bygginguna fyrir lóðarhöfum að Heiðarvegi 8 og 4 og Sunnugerði 3.
Erindi frá Starfsmannfélaginu Sóma er varðar lóðamál við Búðareyri 3. Núverandi lóð er 678 m2 að stærð, og óskar Sómi eftir að taka lóðina að sunnan í fóstur þannig að lóðin verður um 980 m2 að stærð. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að félagið fái lóðina í fóstur og felur byggingarfulltrúa að ganga frá samningi um það.
Erindi dagsett 19.11.2010 frá Jóni Grétari Guðgeirssyni er varðar breytt lóðarskipulag við Sæbakka 20 og 18 í Neskaupstað. Breytingin felst í því að lóðin við Sæbakka 20 stækkar til norðurs og minnkar þar með lóðina við Sæbakka 18. Samþykki frá nágrönnum við Sæbakka 18, 22 og 24 liggur fyrir. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Erindið er samþykkt og er byggingarfulltrúa falið að ganga frá nýjum lóðarsamningum við lóðarhafa.
Eiríkur Sören Guðnason óskar eftir að byggja eitt frístundahús á jörðinni Efri Skálateig, landnr. 191580. Jörðin, eða það svæði sem fyrirhugað er undir frístundahúsið, er ekki deiluskipulagt.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lagt fram bréf frá Karl S. Lauritzsyni, dagsett 26. júlí 2011, fyrir hönd Jóhönnu V. Lauritsdóttur vegna lóðarmála að Helgarfelli 5, Eskifirði. En þar er um að ræða mikið jarðvatn eða uppsprettu vatns innan lóðarmarka, því er lóðin er mjög blaut og einnig flæðir vatn inn í kjallara hússins. Hefur þetta vandamál verið viðvarandi í nokkur ár, en mjög áberandi frá árinu 2009. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Hvorki Fjarðabyggð né Vegagerðinni hafa verið í framkvæmdum ofan við umrædda lóð í mörg ár, þannig að ekki er gott að segja til um hvað hefur valdið þessum breytingum. Fjarðabyggð hefur látið mynda rör læks er rennur utan við húsið og þar komu ekki neinir gallar fram, einnig hefur verið prufað að stífla umræddan læk, þannig að hann renni í Lambeyraránna, en það breytti engu.
Almennt er gert ráð fyrir að lóðarhafar dreni sína lóðir og safni saman því jarðvatni sem í þær kemur. Aftur á móti hefur Fjarðabyggð lagt í kostnað að beina yfirborðsvatni frá hverfum.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur mannvirkjastjóra að svara erindi í samræmi við það verklag er tíðkast hefur.
Lagt fram bréf frá Ásmundi Ásmundssyni, dagsett 24. júní 2011, en bréfið var áður tekið fyrir á fundi bæjarráðs og vísað til mannvirkjastjóra og til umfjöllunar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Bréfritari fer yfir hvað búið er að gera í umhverfismálum meðfram Ægisgötu og þakkar það sem vel hefur verið gert og bendir jafnframt á það sem hann telur að betur megi fara. Einnig er bréfritari með fyrirspurn um hvað hefur eða hyggst Fjarðabyggð gera varðandi umhverfismál meðfram Ægisgötu að norðanverðu frá hringtorgi að brú yfir Búðará.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar fyrir ábendinguna og mun áfram leitast eftir því að fegra umhverfi Fjarðabyggðar, þar á meðal norðan Ægisgötu eins og fjármagn leyfir. Nefndin mun núna í framhaldinu senda lóðarhöfum norðan Ægisgötu bréf og óska eftir að lóðarhafar bæti ásýnd sinna lóða í samvinnu við Fjarðabyggð.
Lagt fram bréf frá Landvernd, dagsett 11. júlí 2011, vegna beiðni um að styrkja leiðbeinendanámskeið Vistverndar í verki, sem verður 18. til 20. ágúst næst komandi. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Beiðni Landverndar er að sveitarfélagið greiði götu íbúa sem hafa áhuga á að sækja námskeiðið með fjárstuðningi að upphæð 25.000 kr.
Engir umsækjendur hafa sótt um styrk til Fjarðabyggðar og mun nefndin þar af leiðandi ekki veita styrk í verkið í ár.
Byggingarfulltrúi fór yfir drög af nýrri byggingarreglugerð, en athugasemdum þarf að skila fyrir 15. ágúst næstkomandi. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags og umhverfisnefnd mótmælir hvað tími til umsagnar er stuttur og að hann sé settur á sumarfrístíma. Jafnframt bendir nefndin á að reglugerðin sé á margan hátt mjög íþyngjandi fyrir einstaklinga, lítil og meðalstór fyrirtæki og að ekkert virðist vera tekið tillit til sérstöðu minni sveitarfélaga.
Eigna- og skipulagsfulltrúi benti á að umsagnartími reglugerðar um framkvæmdarleyfi renni út 15. ágúst næstkomandi. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags og umhverfisnefnd mótmælir hvað tími til umsagnar er stuttur og að hann sé settur á sumarfrístíma.
Eigna- og skipulagsfulltrúi benti á að umsagnartími landsskipulagsstefnu renni út 15. ágúst næstkomandi. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags og umhverfisnefnd mótmælir hvað tími til umsagnar er stuttur og að hann sé settur á sumarfrístíma.
Tómas Valdimarsson sækir um stöðuleyfi fyrir gám fram á sumarið 2012 við Hátúni 3 á Eskifirði. Gámurinn er ætlaður sem geymsluhúsnæði vegna framkvæmdir við íbúðarhúsið við Hátúni 3.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi til 30. apríl 2012. Nefndin gerir þá kröfu að gámur verði færður nær lóð og snúið þannig að hann opnist ekki út í götu.
Erindi frá Tómasi Valdimarssyni er varðar byggingu garðhúss, 9,8 m2 að stærð og stoðvegg sem er 1,5 -1,7 m að hæð meðfram Hátúni 3 á Eskifirði. Samþykki nágranna við Hátúni 5 liggur fyrir vegna garðhýsis í lóðarmörkum. Einnig liggja allar teikningar fyrir.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu til næsta fundar.