Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Málið áður á dagskrá nefndarinnar á 26. fundi hennar, en þar var afgreiðslu frestað til að nefndarmenn gætu kynnt sér málið og aðstæður betur. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd sér ekki ástæður til frekari framkvæmda í kringum umrædda lóð aðrar en það sem búið er að ákveða, frekar en aðrar lóðir í hverfinu Dalur 2, samkvæmt skipulagi. Nefndin er ekki sammála lóðarhafa að vandamál sé til staðar.
Málið var í umfjöllun á síðasta fundi nefndarinnar, þar sem afgreiðslu samþykktar var frestað. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd er staðföst í fyrri ákvörðun og vill halda sig við 40 km/klst sem almennt skilgreindan hraða í þéttbýli Fjarðabyggðar, við skóla verður hraði 30 km/klst. Mannvirkjastjóra falið að undirbúa samþykktina til afgreiðslu nefndarinnar fyrir næsta fund, þá verður henni vísað til seinni umræðu í bæjarstjórn.
Lögð fram til kynningar 98. fundargerð Heilbrigðiseftirlits Austurlands, dagsett 14. september sl. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd mótmælir ákvörðun Umhverfisstofnunar að segja upp þjónustusamningum við Heilbrigðiseftirlitið með eftirlit með fiskimjölsverksmiðjum og förgun úrgangs á Austurlandi. Þessi ákvörðun kemur aðeins til með að veikja eftirlitið með þessum stöðum og lengja viðbragðstíma. Ekki verður séð að þessi ákvörðun verði til að lækka kostnað þar sem tveir aðilar munu þá koma að eftirlitinu í mörgum tilfellum. Nú nýlega eru tvö dæmi sem sýna nauðsyn þess að eftirlitið sé í heimabyggð og hefur viðbragðstími eftirlits verið mjög stuttur og náð að afstýra verri niðurstöðu. Ljóst er að með þessari ákvörðun er aðeins verið að flytja störf af svæðinu sem er í andstöðu við yfirlýsingar stjórnvalda. Mannvirkjastjóra er falið að senda yfirlýsingu þessa til Umhverfisstofnunar, umhverfisráðuneytis og stjórnar SSA.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti á 10. fundi sínum að leitað yrði samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða fyrir frágangi á fjöru frá frystihúsbryggju út fyrir miðbæjarbílastæði á Eskifirði. Samþykki allra lóðarhafa liggur fyrir.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að frágangur á fjöru verði samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti og vísar afgreiðslu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Lagt fram bréf, dagsett 16. september frá ALUCAB ehf. vegna lóðarumsóknar á iðnaðar- og hafnarsvæðinu að Hrauni, 730 Fjarðabyggð. Þar er sótt um lóð nr. 14. Bréfið var tekið fyrir á 260. fundi bæjarráðs, 19. september sl. og var þar vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar með beiðni um umsögn. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur mannvirkjastjóra að vinna umsögn til bæjarráðs. Þar skal liggja fyrir afstaða hafnarstjórnar og Alcoa Fjarðaáls til umsóknar, en samkvæmt deiliskipulagsskilmálum eru þeir umsagnaraðilar um allar lóðarúthlutanir á svæðinu.
Launafl ehf sækir um byggingarleyfi fyrir gám. Gámurinn verður staðsettur á og yfir lóðarmörkum á milli Austurvegar 20 og 20a samkvæmt meðfylgjandi teikningum. Gámurinn verður niðurgrafinn að hluta og er ætlað til að geyma olíu og úrgangsolíu. Fyrir liggur samþykki meðeiganda að Austurvegi 20 og nágranna við Austurvegi 20a.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu til næsta fundar og biður byggingarfulltrúa að fá betri byggingarlýsingu og útlistun á því að gámurinn þoli álag frá bakkanum og veginum að ofan.
Lagt fram bréf, dagsett 23. september 2011 frá Tanna ferðaþjónustu ehf varðandi dúkskemmu sem staðsett er á Haganum innan við Björgin í Reyðarfirði. Þar sem stöðuleyfi fyrir skemmunni er útrunnið er óskað eftir afstöðu nefndarinnar til áframhaldandi stöðu- eða byggingarleyfis, fyrir skemmunni á núverandi stað.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að skemman hafi stöðuleyfi til eins árs, en skemman verði fjarlægð áður en sá tími verður liðinn.
Lagt fram minnisblað umhverfisfulltrúa, dagsett 23. september 2011 vegna fyrirspurnar Líneikar Önnu Sævardóttur á 26. fundi nefndarinnar, varðandi jarðgerð á sorpi frá stóru stofnunum Fjarðabyggðar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Niðurstaða umhverfisfulltrúa, eftir að hafa skoðað málið, er að ekki er möguleiki að koma þessu sorpi í jarðgerð hjá sorphirðuverktaka eins og staðan er. Umhverfisfulltrúi leggur til að skoðað verði ítarlega möguleg lausn um jarðgerð með sorphirðuverktaka og kannað hvort fjárhagslegur grundvöllur sé í verkefnið eða jafnvel grundvöllur sé um samstarf á stærri jarðgerðavél fyrir Mið-Austurland.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisfulltrúa að vinna verkefnið áfram og kanna möguleika og kostnað betur.
Lögð fram fyrirspurn frá Árna Helgasyni er varðar lausagöngu búfjár á Eskifirði. Málið var tekið fyrir á 260. fundi bæjarráðs og vísað þar til umfjöllunar í landbúnaðarnefnd og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, með ósk um að unnin verði kostnaðaráætlun um fjárgirðingar fyrir þéttbýli Fjarðabyggðar. Einnig óskaði bæjarráð eftir upplýsingum frá mannvirkja- og umhverfissviði um stöðu þeirrar vinnu að fá sauðfjárlínu um Reyðarfjarðarbotn flutta.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur mannvirkjastjóra að svara fyrirspurn Árna og gera bæjaráði grein fyrir stöðu mála varðandi flutning á sauðfjárveikilínu í botni Reyðarfjarðar. Einnig tekur nefndin undir þá ósk bæjarráðs að unnin verði kostnaðaráætlun vegna fjárgirðinga í kringum alla þéttbýliskjarna Fjarðabyggðar.
Lögð fram til kynningar drög að dagskrá fyrir málþing " Sjálfbær sveitarfélög" sem haldin verður fimmtudaginn 13. október á Hótel Selfossi. Málið var áður kynnt á 260. fundi bæjarráðs, þar var bæjarstjóra falið að senda fulltrúa á málþingið.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lagt fram til kynningar bréf frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands, dagsett 21. september vegna mengunarslyss í Norðfjarðarhöfn. Blóðvatn fór í höfnina þegar byrjað var að landa úr Vilhelm Þorsteinssyni, en slanga rofnaði um borð í skipinu.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Er þetta í annað skiptið á skömmum tíma sem mengunarslys verður í höfninni á Norðfirði, þannig að allir hluteigandi aðilar eru beðnir um að horfa vel í eigin barm og bæta eftir föngum verkferla og mengunarvarnir. Þannig og aðeins þannig verður hægt að minnka þá áhættu að fita og fiskúrgangur geti borist í sjóinn á viðkvæmum stöðum.
Lagðar fram til kynningar teikningar sem sýna hannaða götulýsingu á Hjáleið í gegnum Reyðarfjörð. Rafveita Reyðarfjarðar mun núna í vikunni bjóða út framkvæmd við lýsingu á Hjáleiðinni í samvinnu við Vegagerð ríkisins.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fagnar framkvæmdinni.