Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Páll Björgvin bæjarstjóri sat þennan lið fundarins.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lagt fram bréf, dagsett 29. ágúst 2011, vegna málefna Ægisgötu 6, 730 Fjarðabyggð. Einnig lagður fram tölvupóstur, dagsettur 26. september sl., frá Machinery ehf. og lögfræðiálit unnið af lögfræðistofunni Landslög fyrir Machinery ehf.
Nefndin fór yfir framlögð gögn og felur mannvirkjastjóra að vinna málið áfram á grundvelli bréfs mannvirkjastjóra til Machinery ehf, dagsett 29.ágúst s.l.
Erindi frá síðasta fundi, en nefndin frestaði afgreiðslu og óskaði eftir nánari útlistun á burðarþoli og nákvæmari byggingarlýsingu. Byggingarfulltrúa hefur borist bréf frá umsækjanda með frekari útskýringum.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öll gögn liggja fyrir.
Umsókn frá Þórstínu Hlín Sigurjónsdóttur dagsett 4. október 2011 er varðar girðingu og breytingar á lóð við Mánagötu 12 á Reyðarfirði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir umsóknina enda liggur fyrir samþykki nágranna.
Umsókn frá Birni Magnússyni, dagsett 6. október 2011, um stækkun lóðar við Egilsbraut 9a á Norðfirði. Sótt er um að lóð stækki að lóðarmörkum Egilsbrautar 5 og 7 neðan húss og upp að nýjum kanti vegar, er liggur að sundlaug, ofan húss.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur eigna- og skipulagsfulltrúa að setja lóðarstækkun í grenndarkynningu og kynna umsókn um lóðarstækkun fyrir lóðarhöfum við Egilsbraut 1, 3, 5, 7 og 9 og Miðstræti 15.
Lagður fram tölupóstur, dagsettur 4. október 2011, frá Þorsteini J. Haraldssyni lóðarhafa að Skólabraut 755 Fjarðabyggð. Farið er fram á að gangstétt á neðri kanti Skólabrautar verði kláruð.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vísar gerð gangbrautar til fjárhagsáætlunar, en öðrum atriðum er nefndin ekki sammála og felur mannvirkjastjóra að svara erindinu.
Hættumat fyrir Oddsskarð. Auglýsingatími er liðinn, engar athugasemdir bárust. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vísar hættumatinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Lagt fram bréf, dagsett 7. október 2011, frá Guðna Elíssyni lóðarhafa við Langadal 11. Í bréfinu er sótt um leyfi til þess að íbúar í Langadal fái að planta tvöfaldri trjálínu fyrir innan hverfið. Er þetta ósk íbúa vegna þess að mikill skafrenningur kemur innan úr dalnum og með þessari aðgerð er vonast til að hægt verði að mynda skjól.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að plantað verði trjám innan við hverfið og felur mannvirkjastjóra að ræða endanlega útfærslu við lóðarhafa áður en farið verður í framkvæmdir.