Fara í efni

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd

30. fundur
7. nóvember 2011 kl. 16:30 - 18:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Jóhann Eðvald Benediktsson Mannvirkjastjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2012 - Eigna-,skipulags- og umhverfisnefnd
Málsnúmer 1108055

Nefndin fór yfir drög að fjárfestingaráætlun fyrir árið 2012 og vísar henni til umræðu og afgreiðslu í bæjarráði, en samkvæmt áætlun þá er gert ráð fyrir að fjárfesting í A-hluta sé 150 mkr. og í B-hluta 46 mkr.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Einnig fór nefndin yfir starfsáætlun mannvirkja- og umhverfissviðs fyrir árið 2012 og samþykkti hana. Starfsáætlun er vísað til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.

Farið var yfir drög að 3. ára áætlun fyrir fjárfestingar í A og B-hluta. Fjárfestingaáætlun fyrir næstu þrjú ár er vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarráði.
2.
Ársreikningur 2010
Málsnúmer 1110162
Lagður fram til kynningar ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. fyrir árið 2010.
3.
Ársreikningur 2010
Málsnúmer 1110164
Lagður fram til kynningar ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2010.
4.
Ársreikningur 2010
Málsnúmer 1110168
Lagður fram til kynningar ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar fyrir árið 2010.
5.
Landsskipulagsstefna 2012-2024
Málsnúmer 1111007
Lagt fram bréf frá Skipulagsstofnun, dagsett 25. október 2011 þar sem kynnt er vinna sem er að fara af stað varðandi landsskipulagstefnu fyrir árin 2012-2024. Þar óskar skipulagstofnun eftir því að hagsmunaraðilar tilnefni fulltrúa í samráðsvettvang, en í honum mun eiga sæti fulltrúar sveitarfélaga og samtaka þeirra, hlutaðeigandi opinberra stofnanna og fl.. Kostnaður sveitarfélaga vegna samráðsvettvangs greiðist af fulltrúum sjálfum eða samtökum þeirra. 

Nefndin gerir það að tillögu sinni að eigna- og skipulagsfulltrúi verði tengiliður Fjarðabyggðar við verkefnið.
6.
Tilnefning fulltrúa í vatnasvæðisnefnd
Málsnúmer 1110140

Lagt fram bréf frá Umhverfisstofnun, dagsett 18. október, þar sem farið er fram á tilnefningu fulltrúa í vatnasvæðisnefnd. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin gerir það að tillögu sinni að mannvirkjastjóri verði tengiliður Fjarðabyggðar við verkefnið.
7.
Gerð frumvarps til breytinga á lögum um mat á umhverfisáhrifum - ósk um athugasemdir
Málsnúmer 1110149

Lagt fram bréf, dagsett 20. október 2011, frá umhverfisráðuneytinu vegna vinnu við breytingu á lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Þar er óskað eftir athugasemdum við frumvarpsdrögin og að þær athugasemdir berist eigi síðar en 9. nóvember nk.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin felur mannvirkjastjóra að fá álit sambands íslenskra sveitarfélaga og senda nefndarmönnum. Jafnframt átelur nefndin ráðuneytið fyrir of skamman umsagnartíma.
8.
Frágangur línuvega Landsnets í Reyðarfirði
Málsnúmer 1111015

Lögð fram til kynningar drög að erindi til Landsnets vegna frágangs línuvega er gerðir voru í tengslum við uppbyggingu á háspennulínum að álveri Alcoa Fjarðaáls. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin felur mannvirkjastjóra að vinna málið áfram.
9.
Girða utan um ytri kirkjugarð Reyðarfjarðar
Málsnúmer 1111011

Lagt fram bréf, dagsett 18. október 2011, frá Kirkjugörðum Reyðarfjarðar. Þar er óskað eftir þátttöku Fjarðabyggðar vegna kostnaðar við girðingu í kringum ytri kirkjugarð Reyðarfjarðar. Samkvæmt viðmiðunarreglum fyrir kirkjugarða og sveitarstjórnir þá ber sveitarstjórn að láta af hendi efni í girðingu.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin tekur vel í erindið og felur mannvirkjastjóra að ræða útfærslu betur við sóknarnefnd og leggja aftur fyrir nefndina.
10.
Helgustaðanáma, drög að umsjónarsamningi
Málsnúmer 1110185

Lögð fram drög að umsjónarsamningi milli Umhverfisstofnunar og Fjarðabyggðar vegna Helgustaðarnámu í Reyðarfirði, en svæðið er friðlýst og er á válista umhverfisráðuneytisins. Einnig lagðar fram hugmyndir að uppbyggingu á umhverfi námunnar, þar sem sérstaklega er hugað að verndunar, aðgengis- og öryggismálum. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur mannvirkjastjóra að klára samninginn og leggja fram til samþykktar. Einnig felur nefndin sviðinu að hefja gerð deiliskipulags fyrir svæðið í samvinnu við Umhverfisstofnun og Náttúrustofu Austurlands. Gæta verður sérstaklega að samráði við landeiganda.
11.
Hjólastígur milli byggðakjarna í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1110156

Lögð fram til kynningar umsókn um styrk til Vegagerðarinnar vegna lagningar hjólastígs frá þéttbýlinu á Reyðarfirði út í álver og svo þaðan til Eskifjarðar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin felur mannvirkjastjóra að vinna málið áfram.
12.
Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Málsnúmer 1103025

Málið var lagt fram til kynningar á síðasta fundi nefndarinnar. Bæjarráð tók erindið fyrir á 265. fundi sínum og óskaði eftir umsögn eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 16. desember 2011.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin felur mannvirkjastjóra að vinna umsögn í samvinnu við framkvæmdarstjóra Fjarðabyggðarhafna og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.
13.
Refa -og minkaveiði fyrirkomulag 2011
Málsnúmer 1101085

Lagt fram minnisblað umhverfisfulltrúa, dagsett 3. nóvember 2011, vegna refa- og minkaveiða í Fjarðabyggð veiðitímabilið 2010 til 2011. Á veiðitímabilinu var veiðin eftirfarandi:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Refir 79

Yrðlingar 36

Samtals 115

 

Minkar 128

Hvolpar 18

Samtals 146

 

Miðað við árangur veiðitímabilsins þá er veiðin sambærileg og árið 2007, en nær ekki þeim fjölda sem veiddur var árin 2008 og 2009.

 

Nefndin styður óbreytt fyrirkomulag veiða og vísar málinu til frekari vinnslu landbúnaðarnefndar. 
14.
Samantekt úr sorphirðu jan-sept 2011
Málsnúmer 1111016

Lagt fram minnisblað umhverfisfulltrúa, dagsett 4. nóvember 2011, vegna sorpsmagns frá janúar til loka september 2011. Ljóst er að flokkun hefur verið að aukast jafnt og þétt frá ársbyrjun 2011, en þá var lögð fram skýrsla frá Íslenska gámafélaginu þar sem dregið var saman sorpmagn og árangur í flokkun síðan græna tunnan var innleidd.  Þær tölur byggðust á magntölum frá ágúst til desember 2010.  Meðtal þess sorps sem fór í endurvinnslutunnuna var 13 % í Fjarðabyggð fyrir það tímabil, þó árangur væri misjafn á milli staða. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Í kjölfarið samþykkti nefndin áætlun um að reyna stuðla að betri flokkun í sveitarfélaginu.  Meðal annars voru starfsmenn Íslenska gámafélagsins fengnir til að fara í alla grunnskóla með fræðslu, sendur var út veglegur vorbæklingur og birtar voru upplýsingar á heimasíðu Fjarðabyggðar.  

Nú þegar sömu tölur eru skoðaðar fyrir fyrstu 9. mánuði ársins hefur endurvinnsluhlutfallið hækkað og jafnast á milli byggðarkjarna.  Meðaltal flokkunar í Fjarðabyggð er komin í 18% sem er aukning um 5% frá því á síðasta ári. Stefnan er að hlutfallið verði rúmlega 20% í Fjarðabyggð, en þá er búið að taka tillit til þess að engin fríblöð eru borin út í sveitarfélaginu.  Árangurinn er jákvæður og ljóst er að íbúar eru að læra betur inn á flokkunina og eru að tileinka sér notkun endurvinnslutunnunnar. Hér að neðan eru upplýsingar um skiptingu á milli hverfa:

 

 Endurvinnslu %

2010

2011

Eskifjörður

10%

16%

Fáskrúðsfjörður

23%

21%

Neskaupstaður

14%

17%

Reyðarfjörður

18%

19%

Stöðvarfjörður

15%

20%

 

Nefndin lýsir ánægju sinni með þann árangur sem náðst hefur.

15.
Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði.
Málsnúmer 0903071

Lagt fram minnisblað, dagsett 2. nóvember 2011, sem unnið er af Mannviti fyrir Framkvæmdarsýslu ríkisins vegna hugsanlegs umframefnis á Tröllagilssvæðinu, þ.e. efni sem ekki er nothæft í varnargarða. Ljóst er að ónothæft efni er meira en ráð var fyrirgert og að finna verður tippstaði sem verktaki getur komið efninu fyrir á. Í matsskýrslu vegna framkvæmdanna var fjallað sérstaklega um þennan þátt og þá svæði sem mætti nota undir tipp. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin leggur til að svæðið neðan við gamla frystihúsið verði notað í haust, falli meira efni til á næsta ári, þá verða önnur svæði skoðuð.
16.
Afgreiðslur byggingafulltrúa - 25
Málsnúmer 1111002F
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa