Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lagt fram lögfræðiálit, dagsett 17. nóvember 2011, unnið af lögfræðistofunni Sókn. Einnig lögð fram drög að bréfi til lóðarhafa.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur mannvirkjastjóra að senda lóðarhafa framlagt bréf, ásamt lögfræðiáliti.
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulaginu Bakkagerði 1 á Reyðarfirði. Breytingin fellst í að raðhúslóðum er breytt í íbúðarhúsalóðir, lóðum er breytt og þær sameinaðar, númerum lóða er breytt, kvaðir eru settar á tvær lóðir, hæðum húsa er breytt og lóðum er fjölgað. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu og vísar erindinu til bæjarstjórnar.
Lögð fram breytingartillaga deiliskipulags iðnaðarsvæðisins á Kollaleiru á Reyðarfirði. Helstu breytingar felast í: Vesturhluti iðnaðarsvæðisins er stækkaður til suðurs um 10.000m2 og deiliskipulag vöruflutningahafnar minnkar sem því nemur. Fyrirhugaða gatan Tjarnarvogur, ásamt lóðum vestan hennar, er felld niður. Mörkum lóða við Leiruvog og Búðareyri 33,35 og 37 er breytt og lóðin nr. 39 við Búðareyri er felld niður. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu og vísar erindinu til bæjarstjórnar.
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulaginu Melur 1 á Reyðarfirði. Breytingin fellst í að gert er ráð fyrir fjölgun íbúða, fækkun einbýlishúslóða og fjölgun raðhúsalóða. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu og vísar erindinu til bæjarstjórnar.
Lögð fram breytingartillaga deiliskipulags vöruflutningahafnar á Reyðarfirði. Breyting fellst í að 10.000m2 hluti svæðisins er felldur út úr skipulaginu og er látinn tilheyra deiliskipulagi iðnaðarsvæðis á Kollaleiru. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu og vísar erindinu til bæjarstjórnar.
Breytingartillaga á deiliskipulaginu Dalur 1, íþróttasvæði og leikskóli á Eskifirði lagt fram.Helstu breytingar eru áður grenndarkynntar breytingar á opnun lækjar innst á skipulagssvæðinu ásamt staðsetning á nýju vallarhúsi. Auk þessa er gert ráð fyrir eldsneytisafgreiðslu, stækkun æfingarsvæðis og nýjum bílastæðum sunnan við aðkomu að sundlaug Eskifjarðar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir fram lagða deiliskipulagstillögu og vísar henni til bæjarstjórnar til auglýsingar.
Lagt er til að bílskúr í eigu Fjarðabyggðar er stendur við Strandgötu 33a, Eskifirði verði rifinn. Skúrinn var á árum áður notaður fyrir sumarvinnu, en hefur ekki verið notaður sem slíkur í nokkur ár. Ástand hans er þannig að mat mannvirkja- og umhverfissviðs er að það borgi sig ekki að gera hann upp.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir niðurrif bílskúrsins.
Nefndin samþykkir byggingaleyfið.
Margrét Ósk Vilbergsdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir byggingu einingahús við Efri Skálateig 1a. Byggingarleyfið grenndarkynnt hjá nágrönnum án athugasemda. Jákvæð umsögn Fornleifaverndar ríkisins um fornminjar á svæðinu liggur fyrir.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir byggingaleyfið.
Umsókn Baldurs Guðlaugssonar og Sigrúnar Guðlaugsdóttur frá 27.09.2011 um að girða af hluta Óstúns sem er innan við Ósinn á Fáskrúðsfirði og jafnframt að reisa þar lítið sumarhús. Lagt fram minnisblað eigna- og skipulagsfulltrúa en þar kemur fram að svæðið er ódeiliskipulagt, að deiliskipulagning svæðisins með breyttri landnotkun kalli á breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 og að efsti hluti Óstúns sé ofan hættumatslína A og B vegna ofanflóða.
Nefndin frestar afgreiðslu og felur eigna- og skipulagsfulltrúa að ræða við bréfritara.
Lagt fram til kynningar bréf, dagsett 11. nóvember 2011, frá Teiknistofunni Eik, en stofan hefur verið að vinna nýtingaráætlun fyrir Arnarfjörð fyrir vestan. Verkefnið fyrir vestan er samstarfsverkefni Fjórðungssambands Vestfirðinga, Háskólaseturs Vestfjarða og Teiknistofunnar Eikar. Eitt aðal markmið verkefnisins var að þróa aðferðarfræði við gerð strandsvæðaskipulags og eins og áður segir var Arnarfjörðurinn valinn sem tilraunarverkefni.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin lýst vel á verkefnið og felur mannvirkjastjóra að vinna málið áfram.
Lögð fram frumathugun fyrir aurflóðavarnir, neðan Urðarbotna í Norðfirði. Helstu niðurstöður frumathugunar eru að lagt er til að byggður verði leiðigarður til að beina aurflóðum úr Stekkjarlæk yfir að snjóflóðagarði þar sem þau eru stöðvuð með lágum þvergarði (aurgildru). Leiðigarðurinn er 140 m langur með 2,5 m virka hæð og stendur einungis 1,5 m upp úr núverandi landi. Vatnsrás framan við garðinn er grafin niður um 1 m. Rásin beinir Stekkjarlæk meðfram garðinum og í 2 m vítt ræsi undir snjóflóðavarnargarðinum í Drangagili, annað ræsið af tveimur undir snjóflóðagarðinum. Jafnframt verður byggður um 1,5 m hár þvergarður vestan ræsisins til þess að stöðva aur úr aurflóðunum en hleypa í gegnum sig vatni. Aurgildran er hönnuð til þess að halda um 3 000 m3 af aur. Umfram aur rennur bæði yfir þvergarðinn og í farveg Stekkjarlækjar til vesturs, flóð af slíkri stærðargráðu hafa fallið einu sinni á síðustu 60 árum. Til þess að bregðast við auknu rennsli inn í ræsakerfi bæjarins er lagt til að rennsli í gegnum garðinn verði stýrt með grind við ræsið ofanvert sem takmarkar vatnsmagn í gegnum ræsið í úrkomutoppum. Kostnaður við framkvæmdirnar er gróflega metinn um 12 mkr. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir frumathugunina fyrir sitt leiti og vísar henni til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.
Lögð fram frumathugun vegna ofanflóða við Nýjarbæjalæk Fáskrúðsfirði. Helstu niðurstöður frummatsins eru að lagt til að reistir verði varnargarðar í gilsmynni annars vegar og neðan þess hins vegar. Í gilsmynni, við klettahaft, verði um 7 m hár þvergarður úr stórgrýti. Garðurinn hleypir vatni greiðlega í gegn en heldur aftur af snjó. Þannig minnkar stórlega magn þess krapa sem skriðið getur af stað í flóði. Neðan gils taki við um 200 m langur og 2,5 til 4,5 m hár leiðigarður sem beinir krapaflóði og vatni Nýjarbæjarlækjar inn að 4,5 m hárri þvergildru, í um 50 m hæð y.s. á aurkeilunni vestan lækjarins. Þar mun krapi safnast fyrir og stöðvast. Læk verður veitt um ræsi í gegnum þvergildruna niður í Nýjarbæjarlæk á ný og lækjarfarvegurinn við Skólabrekku hreinsaður og rofvarinn. Að auki verði land ofan við skóla og íþróttavöll hækkað um 1 m með halla niður í Nýjarbæjarlæk. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Tillögur að lögun varna að umhverfi og mótun og uppgræðslu lands mun landslagsarkitektastofan Landmótun setja fram.
Kostnaður við framkvæmdina er metinn um 40 mkr.. Garðarnir verja 12 íbúðarhús sem standa innan núverandi hættusvæða C og B. Verðmæti þeirra nemur 195 mkr. m.v. fasteignamat en 529 mkr. m.v. brunabótamat.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir frumathugunina fyrir sitt leiti og vísar henni til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.
Málið áður tekið fyrir á síðasta fundi nefndarinnar, þar sem ákveðið var að fá umsögn Samband íslenskra sveitarfélaga til yfirferðar. Fyrir liggur svar frá Sambandinu, þar sem fram kemur að Sambandið hafi ekki skilað inn umsögn og hafi óskað eftir framlengingu á umsagnartíma. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd óskar eftir að fá umsögnina þegar hún liggur fyrir.
Lögð fram drög að nýrri skipulagsreglugerð, umsagnartími er til 1. desember næstkomandi.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við drögin.
Lagt fram bréf, dagsett 18. október 2011, frá áhugahópi um rekstur samvinnufélags með leiguíbúðir á Íslandi. Í bréfinu eru útlistaðar hugmyndir hópsins en markmið umrædds samvinnufélags er að eignast a.m.k. 300 - 400 íbúðir eingöngu með það að markmiði að leigja þær út á kostnaðarverði. Óskað er eftir stuðningi Fjarðabyggðar í formi fjárframlags. Málið áður á dagskrá bæjarráðs.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir með bæjarráði og útilokar ekki aðkomu að málinu.
Lagður fram tölupóstur og listi yfir atriði/slysahættur frá Slysavarnadeildinni Hafdísi Fáskrúðsfirði. En deildin fór hring um bæinn og vill benda Fjarðabyggð á nokkur atriði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin þakkar góðar ábendingar og felur mannvirkjastjóra að koma málinu áfram.
Málið rætt. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur mannvirkjastjóra að kanna hvort að vilji verktaka sé að framlengja núverandi samninga.
Lögð fram til kynningar gjaldskrá fyrir tjaldsvæðin í Fjarðabyggð, en gjaldskráin var samþykkt á 267. fundi bæjarráðs. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin beinir því til bæjarráðs að hún hefði viljað sjá gjaldskrá þannig setta upp að eitt gjald hefði verið á hverja einingu, þ.e. tjald, fellihýsi, hjólhýsi o.s.frv. Það gjald hefði geta verið 1000 kr. á sólarhring og svo greitt aukalega fyrir rafmagn. Mat nefndarinnar er að þessi uppsetning á gjaldskrá höfði betur til fjölskyldufólks.
Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi frest til að sækja um styrk í Framkvæmdarsjóð ferðamannastaða, umsóknarfrestur er til 25. nóvember 2011. Um er að ræða alveg nýjan sjóð en ráðstöfunarfé hans kemur af svonefndu gistináttagjaldi. Framkvæmdasjóðurinn leggur sérstaka áherslu á verkefni þar sem horft er til heildarmyndar ferðamannastaða og ferðamannaleiða. Hægt er m.a. að sækja um styrki fyrir skipulags- og hönnunarvinnu ásamt undirbúningsrannsóknum. Ef sótt er um styrk fyrir byggingu mannvirkja eða aðrar framkvæmdir verður skipulag, fullnaðarhönnun og framkvæmdaleyfi að liggja fyrir. Að jafnaði getur styrkur ekki numið hærri upphæð en 50 % af kostnaði. Heimilt er að áfangaskipta verkefnum og styrkveitingu í 3-5 áfanga á jafnmörgum árum. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að sótt verði um styrki í eftirfarandi verkefni:
- Helgustaðarnámu, framkvæmdir vegna aðgengi að námu og uppsetningu á snyrtingum fyrir gesti.
- Hólmanes, framkvæmdir við uppsetningu skilta og gerð göngustíga að svæðinu.
- Saxa, skipulags og hönnunarvinnu
Lagt fram bréf, dagsett 10. nóvember 2011, frá Náttúrustofu Austurlands, varðandi útbreiðslu ágengra tegunda í Fjarðabyggð. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til eftirfarandi verkáætlun, en óskar jafnframt eftir athugasemdum og ábendingum Náttúrustofu Austurlands varðandi þessar áherslur.
Tillaga að verkáætlun fyrir Fjarðabyggð/ Skógarkerfill, Lúpína og Njóli.
1. Bæjarfélagið kappkostar að halda umræddum tegundum í skefjum innan þéttbýlismarka skv. skipulagi.
2. Lögð verði áhersla á að halda umræddum tegundum í skefjum innan fólkvanga/friðaðra og friðlýstra svæða innan sveitarfélagsins.
3. Bæjarfélagið mun veita Skógræktarfélögum í sveitarfélaginu aðstoð við að hefta framgang Lúpínu, Kerfils og Njóla á skilgreindum skógræktarsvæðum.