Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lagt fram minnisblað lóðarhafa unnið af Landslögum, dagsett 29. desember 2011, varðandi málefni Ægisgötu 6, 730 Fjarðabyggð.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir málið og felur mannvirkjastjóra að vinna málið áfram.
Agnar Bóasson vék af fundi undir þessum lið.
Umsókn, dagsett 4.janúar 2012, frá Einari Guðmundi Þorvaldssyni þar sem sótt er um leyfi til að byggja 56 m2 bílskúr á lóðinni við Hólsveg 11 á Eskifirði.
Nefndin fór yfir umsóknina og framlögð gögn. Þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag af umræddu hverfi þá skal grenndarkynna framkvæmdina og felur nefndin byggingarfulltrúa að vinna málið áfram. Grenndarkynninguna skal senda á Hólsveg 9a og 9b, Hátúns 20, 22 og 24 auk Strandgötu 65.
Lagt fram erindi móttekið 19. janúar 2012 frá Grænnípu ehf þar sem sótt er um stöðuleyfi við höfnina á Stöðvarfirði. Um er að ræða 12,5 m2 veiðifæraskúr. Á lóðinni við Bólsvör 1 var upphaflega gert ráð fyrir gáma- og veiðarfæraskúrum.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin leggur til að lóðin verði nýtt með sama hætti og gámasvæði á Eskifirði og gjöld verði samkvæmt gjaldskrá hafnarsjóðs.
Lagt fram til kynningar bréf, dagsett 13. janúar 2012, frá Eiríki Bogasyni, framkvæmdarstjóra Samorku, en boðað er til 17. aðalfundar Samorku, föstudaginn 17. febrúar næstkomandi. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vísar málinu til bæjarráðs.
Lagðar fram upplýsingar og tilboð í biðskýli vegna skipulagðara samganga í Fjarðabyggð.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að gengið verði til samninga um kaup á fjórum skýlum fyrir árið 2012 og svo sex til viðbótar fyrir árin 2013 og 2014.
Lagt fram bréf, dagsett 6. janúar 2012, frá Skólaráði Nesskóla, vegna brunavarna á miðstigsgangi Nesskóla. Málið var áður á 276. fundi bæjarráðs þar sem því var vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Við gerð fjárhags- og viðhaldsáætlunar fyrir árið 2012 var gert ráð fyrir fjármagni til endurbóta á áður umræddum gangi, þar á meðal er gert ráð fyrir uppsetningu á eldvarnarhurðum og uppsetningu og tengingu á brunaviðvörunarkerfi. Útfærsla endanlegra flóttaleiða verður svo á áætlun árið 2013.
Nefndin þakkar fyrir ábendinguna og leggur áherslu á að þessum málum verði komið í viðundandi horf sem fyrst.
Lögð fram drög að samningi milli Fjarðabyggðar og landeiganda Þernunes í Reyðarfirði, vegna urðunar úrgangs í landi Þernuness, í Mýrdal og Auratúni. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarráðs.
Lagt fram bréf, dagsett 13. janúar 2012, vegna landmótunar, uppfyllingar og starfsleyfisskyldu slíkra framkvæmda. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur eigna- og skipulagsfulltrúa að lista upp þau svæði sem notuð hafa verið sem tippsvæði í Fjarðabyggð og leggja fyrir nefndina. Nefndin mun svo í framhaldinu ákveða fyrir hvaða svæði á að sækjum um starfsleyfi og þá í hvaða aðgerðir þarf að fara til að svo megi vera.
Lagt fram bréf, dagsett 17. janúar 2012, frá Orkustofnun þar sem farið er fram á að Rafveita Reyðarfjarðar heimili Netorku að veita Orkustofnun upplýsingar um magn raforku (í MWh) sem það selur á hverju dreifiveitusvæði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að veita Netorku umboð til að afhenda umbeðnar upplýsingar til Orkustofnunar og felur mannvirkjastjóra að gefa út umboðið.
Lagðar fram til umsagnar "Reglur um styrki í tengslum við atvinnuuppbyggingu vegna endurgerðar gamalla húsa og fasteigna í eigu Fjarðabyggðar". Málið hefur verið á forræði bæjarráðs sem á 276. fundi sínum óskaði eftir umsögn eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin gerir ekki athugasemdir við framlagðar reglur og vísar þeim aftur til bæjarráðs til lokaafgreiðslu.
Lagðir fram til staðfestingar samningar um veghald í þéttbýli fyrir árið 2011. Í framhaldinu er verið að ganga frá nýjum samningum við Vegagerðina vegna ársins 2012.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin staðfestir samningana, enda eru þeir í takt við þær tekjur er gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun fyrir árið 2011.
Fyrir liggur tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til framkvæmdastjóra og mannauðsstjóra sveitarfélaga þar sem samstarfsnefnd sambandsins og KÍ v/Félags leikskólakennara beinir þeim tilmælum til sveitarstjórna að huga reglulega að hljóðvist og vinnuaðstæðum barna og fullorðinna (bókun 5 um starfsaðstæður, en samkvæmt henni voru samningsaðilar sammála að óska eftir því við Vinnueftirlit ríkisins að gerð verði úttekt á vinnuaðstæðum í leikskólum, sérstaklega með tilliti til hljóðvistar og vinnuaðstæðna barna og fullorðinna, þ.m.t. vegna sérkennslu). Fram kemur í tölvupóstinum að Vinnueftirlit ríkisins hafi komið á fund samstarfsnefndar 14. desember og tilmælin til sveitarstjórna frá þeim fundi voru að sveitarfélög hugi reglulega að hljóðvist og vinnuaðstæðum barna og fullorðinna. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Mannvirkjastjóri fór yfir könnun á hljóðvist sem Marinó Stefánsson gerði haustið 2011 í leikskólum Fjarðabyggðar, en sú könnun var gerð með þeim hætti að starfsfólk skólanna svaraði spurningalista um hljóðvist og vinnuaðstæður, en könnunin hefur áður fengið umfjöllun í fræðslu- og frístundarnefnd.
Nefndin tekur undir bókun fræðslu- og frístundarnefndar og leggur áherslu á að Vinnueftirlit ríkisins framkvæmi hávaðamælingar í skólum þannig að betur sé hægt að gera sér grein fyrir vinnuaðstæðum og þá þeim úrbótum sem nauðsynlegt er að ráðast í.