Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lagt fram minnisblað um efni Vorbæklings framkvæmdasviðs 2012 dags. 16. mars 2012 unnið af Önnu Katrínu Svarvardóttur.
Nefndin óskar eftir því að í bæklingnum verði einnig fjallað um opnunartíma söfnunarstöðva um leið og fjallað verður um móttöku á garðaúrgangi. Að öðru leyti gerir nefndin ekki athugasemdir við efni Vorbæklings 2012.
Lögð fram til kynningar frumathugunarskýrsla útgefin af Verkís dags. 27. janúar 2012 um aurflóðavarnir Urðarbotna í Norðfirði. Í skýrslunni er lagt til að byggður verði leiðigarður til að beina aurflóðum úr farvegi Stekkjarlækjar yfir að snjóflóðagarði þar sem þau yrðu stöðvuð af lágum þvergarði. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Málið var áður tekið fyrir á 31. fundi nefndarinnar og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar, engar breytingar hafa orðið sem breyta afstöðu nefndarinnar og fer því frumathugunin til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málið var áður tekið fyrir á 31. fundi nefndarinnar, en síðan þá hefur frumhönnunin verið send í rýni til Veðurstofu Íslands og erlendra ráðgjafa um krapaflóðavarnir. Við þessa rýni hefur frumathugunin tekið smávægilegum breytingum. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir breytingarnar og samþykkir þær fyrir sitt leyti og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Erindi frá Ingibjörgu Þórðardóttir vegna friðunar á varplendi fugla í botni Norðfjarðar. Í erindinu leggur Ingibjörg til að hundar verði bannaðir á umræddu svæði frá apríl til júlí eða á meðan varpfuglar eru að koma upp ungum. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir bréfi, tekur undir ábendingar bréfritara og mun láta setja upp merki sem vekur athygli á að svæðið sé varpland fugla.
Framlagður tölvupóstur frá Bjarna Ólafi Birkissyni fyrir hönd KFF dags. 6. mars 2012 þar sem óskað er eftir að báðar íbúðirnar sem KFF er með á leigu hjá Fjarðabyggð verði færðar undir nýjar reglur um útleigu leiguíbúða Fjarðabyggðar til félagasamtaka.
Nefndin samþykkir að íbúð 106 í Réttarholti 1-3 falli undir reglur um útleigu íbúða til félagasamtaka, en getur ekki orðið við beiðni um íbúð 202 í sama húsi.
Stefán Már tók ekki þátt í umræðu eða afgreiðslu á þessum lið.
Lagt fram kauptilboð, dagsett 19. mars 2012, frá Önnu Sigfinnsdóttur í eignina Nesbakki 11, íbúð merkt 03 0102, fastanúmer 216-9518. Kauptilboð bjóðanda er 7.000.000 kr en fasteignarmat eignarhlutans er 7.378.000 kr. Þar af er lóðarmat 578.000 kr.
Nefndin samþykkir tilboðið með fyrirvara um samþykki bæjarráðs og fyrirvara um afhendingartíma, en núverandi leigjandi hefur 6 mánaða uppsagnarfrest og hefur rétt á að vera í íbúðinni til loka ágústmánaðar 2012, nema um annað verði samið.
Samningur um veghald í þéttbýli milli Fjarðabyggðar og Vegagerðarinnar lagður fram til kynningar. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2012 til 31. desember 2012.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /> |
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Áskorun frá aðalfundi UMF Leiknis 8. mars 2012 þar sem skorað er á bæjarstjórn að laga bílastæði við íþróttavöllinn á Fáskrúðsfirði áður en Íslandsmótið í knattspyrnu 2012 hefst í maí.
Nefndin vísar erindi Umf. Leiknis til fjárhagsáætlunar.
Erindi Olíudreifingar dags. 9. mars 2012 þar sem óskað er eftir samstarfi við Fjarðabyggð um að koma upp þjónustumiðstöð á Reyðarfirði fyrir þau fyrirtæki sem hyggjast stunda olíuleit og vinnslu á Drekasvæðinu. Fyrirtækið óskar jafnframt eftir að gerð verði viljayfirlýsing þar sem Olíudreifingu eru tryggð afnot af aðstöðu sem hægt er að markaðssetja sem þjónustumiðstöð fyrir aðila sem sinna leit og vinnslu á Drekasvæðinu.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir drög að viljayfirlýsingu og gerir ekki athugasemdir við hana fyrir sitt leyti og vísar henni til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Frágangi vegna niðurrifs Hólma í Reyðarfirði í samræmi við leiðbeiningar Húsafriðunarnefndar er lokið. Húsafriðunarnefnd benti jafnframt á að í aflögðum kirkjugarði við Hólma séu óvenju vegleg minningarmörk, sem og grjótsökkull gömlu kirkjunnar, sem bæði hafa mikið gildi á þessum stað.
Nefndin leggur til sett verði upp skilti með upplýsingum um sögu Hólma sem Prestseturs og bújarðar. Jörðin Hólmar var prestsetur til 1930.
Gunnar Karlsson vék af fundi eftir afgreiðslu á þessum lið.
Lagt fram bréf frá Sparsjóður Norðfjarðar vegna lóða við Stekkjarholt 13, en Sparisjóðurinn hefur áhuga á að gatan austan við lóðina verði lækkuð.
Nefndin sér ekki rök fyrir því að fara í umbeðnar breytingar, en felur byggingarfulltrúa að ræða við lóðarhafa um frágang lóðar og aðlögun hennar að aðliggjandi götum.
Lagt fram til kynningar minnisblað, dagsett 22. mars 2012, frá Eimskip Ísland ehf þar sem er gert grein fyrir húsnæðismálum fyrirtækisins á Hrauni við Mjóeyrarhöfn.