Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Bréf dags. 20. febrúar 2012 þar sem Pizzafjörður ehf. óskar eftir að breyta notkun á húsnæðinu að Hafnarbraut 17 í Neskaupstað. Erindi áður tekið fyrir 17. maí 2012 þar sem því var frestað þar sem engin bílastæði voru við húsið. Bílastæðamál hafa nú verið leyst.
Nefndin samþykkir breytta notkun Hafnarbrautar 17 og að byggingafulltrúi veiti undanþágu vegna aðgengismála fatlaðra til 1. júní 2013.Lagt fram bréf ásamt afstöðumynd, dagsett 4. júlí 2012, frá Þórhalli Pálssyni skipulagsráðgjafa þar sem fyrir hönd landeiganda Hofs 2 í Norðfirði er óskað eftir því að deiliskipuleggja jörðina.
Nefndin samþykkir að landeigandi láti vinna deiliskipulag fyrir jörðina Hof 2 í Norðfirði.
Lögð fram byggingarleyfisumsókn, dagsett 3. júlí 2012, þar sem Björgunarsveitin Geisli sækir um leyfi til að staðsetja 40 feta gám norðan við húsnæði sveitarinnar að Grímseyri 9 á Fáskrúðsfirði. Gámurinn verður klæddur og einangraður.
Nefndin samþykkir byggingarleyfið fyrir sitt leyti, en gerir kröfu um að gámurinn verði klæddur að utan, þannig að viðbygging falli að núverandi byggingu. Byggingarfulltrúi mun gefa út byggingarleyfið þegar endanlegum teikningum hefur verið skilað inn.
Lögð fram byggingarleyfisumsókn, dagsett 2. júlí 2012, þar sem Loðnuvinnslan hf. sækir um að byggja skorstein, rofahús, ketilhús og stækkun á tæknirými. Skorsteinn verður 50 m. á hæð, rofahús stærð 15,5 fm., ketilhús 42,2 fm. en stækkun á tæknirými er breyting innanhúss. Teikningar frá Verkfræðistofu Austurlands, hönnuður Elís B. Eiríksson.
Nefndin samþykkir byggingarleyfið og felur byggingarfulltrúa að afgreiða það.
Bæjarráð vísaði umsögn til umfjöllunar í nefndinni.