Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lögð fram lýsing á skipulagsverkefni og matslýsing dags. 14. september 2012 unnin af Landmótun sf.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir lýsingu skipulagsverkefnisins ásamt matslýsingu og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Lögð fram lýsing á skipulagsverkefni dags. 17. september 2012 unnin af Alta ehf.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir lýsingu skipulagsverkefnisins og samþykkir fyrir sitt leyti að Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 verði breytt og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarstjórnar.
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi frá mannvirkjastjóra Fjarðabyggðar fyrir hönd Vatnsveitu Fjarðabyggðar og RARIK dags. 7. september 2012 ásamt teikningum frá Mannvit dags. 8. ágúst 2012, útboðs- og verklýsingu ásamt tilboðsskrá dags. í ágúst 2012 og tímaskema dags. 6. september 2012.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu leyfisins til bæjarstjórnar.
Lagt fram bréf, dagsett 20. ágúst 2012, frá Tómasi Valdimarssyni, húseiganda að Hátúni 3, 735 Fjarðabyggð. Óskar bréfritari eftir því að Fjarðabyggð taki þátt í kostnaði vegna stoðveggjar neðan við lóðina. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd sér ekki forsendur til að taka þátt í kostnaði við umræddan vegg.
Mál var áður á dagskrá 43. fundar nefndar og var þar frestað. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að breyta skráningu á umræddu húsnæði í samræmi við óskir bréfritara og felur byggingarfulltrúa að ganga frá því.
Lagt fram bréf, dagsett 11. september 2012, frá Þóru Björk Nikulásdóttur, þar sem óskað er eftir því að fá tún á jörðinni Hvalnesi til beitar fyrir hross. Jörðin Hvalnes í Stöðvarfirði er eign sveitarfélagsins. Landið hefur ekki verið nýtt um áraraðir. Það verður því ekki annað séð, en að heimild til þess að beita heimatún jarðarinnar verði til góðs fyrir jörðina.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að Þóru Björk Nikulásdóttur Fjarðarbraut 29 Stöðvarfirði verið heimilað að beita hrossum á gömlu túnin í Hvalsnesi í Stöðvarfirði. Umsækjandi skal fjarlægja núverandi girðingar á þeim túnum / hólfum sem hann ætlar að nýta og girða með rafmagnsgirðingum. Leyfi til beitarinnar er til eins árs í senn.
Lagt fram bréf, dagsett 4. september 2012, frá Karli Egilssyni og fjölskyldu vegna skógræktar lundar ofan við Svínaskálahlíð.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að veita Karli Egilssyni og fjölskyldu ráðgjöf til þess að umræddur lundur fái skartað sínu fegursta. Nefndin bendir á að umrætt svæði er innan svæðis Skógræktarfélags Eskifjarðar og að samráð verði haft við skógræktarfélagið. Umhverfisstjóri mun jafnframt aðstoða fjölskylduna eftir föngum.
Lögð fram hugmynd Hjörvars O. Jenssonar um verkefnið "Graffitibærinn Neskaupstaður". Málið var áður á dagskrá atvinnu- og menningarnefndar sem vísaði því til umsagnar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir málið og frestar afgreiðslu. Nefndin óskar eftir frekari gögnum um hverjir eru umsækjendur og hver aðkoma bæjaryfirvalda eigi að vera.
Lagt fram bréf, dagsett 3. september 2012, frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Ráðuneytið hefur látið vinna drög að heildstæðu frumvarpi til náttúruverndarlaga líkt og kveðið er á um í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, drögin byggjast á hítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands. Óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins fyrir 25. september nk. Bæjarráð tók málið fyrir og fól eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd að gefa umsögn fyrir tilskilinn tíma.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin frestar afgreiðslu til næsta fundar.
Lagt fram minnisblað mannvirkjastjóra, dagsett 16. september 2012, varðandi viðhaldsmál á snjóflóðanetum í Drangagili ofan við Norðfjörð. Einnig lagt fram minnisblað Verkfræðistofu Austurlands, dagsett 10. september 2012, sama efnis.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur mannvirkjastjóra að vinna málið áfram.