Fara í efni

Félagsmálanefnd

130. fundur
11. febrúar 2020 kl. 16:15 - 17:00
í Molanum fundarherbergi 1 og 2
Nefndarmenn
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir formaður
Ásmundur Páll Hjaltason varaformaður
Heiðar Már Antonsson aðalmaður
Valdimar Másson aðalmaður
Lára Elísabet Eiríksdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Helga Elísabet Guðlaugsdóttir Félagsmálastjóri
Dagskrá
1.
457.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, nr. 116/2012, með síðari breytingum (móttaka flóttafólks og innflytjendaráð)
Málsnúmer 2001214
Velferðarnefnd Alþingis sendi til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, nr. 116/2012, með síðari breytingum (móttaka flóttafólks og innflytjendaráð), 457. mál. Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemd við frumvarpið.
2.
Félagsmálanefnd 2020
Málsnúmer 2001229
Framlögð er tillaga um fundartíma félagsmálanefndar á vorönn 2020. Fastur fundartími verður á þriðjudögum kl. 16:15 einu sinni í mánuði skv. tillögunni. Félagsmálanefnd samþykkir tillöguna.
3.
Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027
Málsnúmer 1810136
Farið yfir stöðu endurskoðunar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027. Lögð fram tillaga sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um að leitað verði eftir ábendingum frá öðrum nefndum í stjórnkerfi Fjarðabyggðar um viðfangsefni sem ástæða væri til að skoða við gerð lýsingar aðalskipulagsins. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að leitað verði eftir afstöðu bæjarráðs, fræðslunefndar, félagsmálanefndar, íþrótta- og tómstundanefndar, menningar- og nýsköpunarnefndar og hafnarstjórnar. Félagsmálanefnd felur félagsmálastjóra að skrifa minnisblað til sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um afstöðu nefndarinnar.
4.
Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 15
Málsnúmer 2001027F
Framlögð fundargerð 15. fundar framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna. Fulltrúar félagsmálanefndar í framkvæmdaráði gerðu grein fyrir fundargerðinni. Félagsmálanefnd staðfestir fyrirliggjandi fundargerð.
4.1 Rekstur Uppsala 2019
4.2 Rekstur Hulduhlíðar 2019
4.3 Endurnýjun húsnæðis Uppsala
4.4 Umsóknir um framlög úr framkvæmdasjóði aldraðra 2020
4.5 Samningar um rekstur Hulduhlíðar og Uppsala við Sjúkratryggingar Íslands 2020-2021
4.6 Þátttaka í norrænu verkefni um fjarheilbrigðisþjónustu