Fjölskyldunefnd
53. fundur
9. mars 2026
kl.
16:15
-
18:00
að Búðareyri 2, fundarherbergi 1
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Birgir Jónsson
varaformaður
Helga Rakel Arnardóttir
aðalmaður
Jóhanna Sigfúsdóttir
aðalmaður
Stefán Þór Eysteinsson
aðalmaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir
embættismaður
Líneik Anna Sævarsdóttir
Fundargerð ritaði:
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
Stjórnandi félagsþjónustu
Dagskrá
1.
Skóladagatöl 2026-2027
Farið yfir fyrirliggjandi minnisblað um skóladagatöl 2026-2027, afgreiðslu frestað og stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að afla frekari upplýsinga og skýra nokkur álitamál fyrir næsta fund nefndarinnar.
2.
Forvarnarfræðsla um ávana- og vímuefnaneyslu ungmenna
Árni Einarsson ráðgjafi hjá FRÆ hélt kynningu fyrir fjölskyldunefnd um ávana- og vímuefnaneyslu ungmenna sem hann fer með í Verkmenntaskóla Austurlands, 10. bekki allra grunnskóla í Fjarðabyggð, til starfsfólks skólanna og foreldra.
3.
Fundargerðir farsældarráðs á Austurlandi 2026
Vísað frá farsældarráði 2. fundargerð farsældarráðs til kynningar í fjölskyldunefnd.
4.
Beiðni um kaup á stólum
Fjölskyldunefnd þakkar fyrir erindið og vísar því til vinnslu í komandi fjárhagsáætlunargerð.
5.
Einfaldað regluverk um verkefni sveitarfélaga
Farið yfir tækifæri til einföldunar í regluverki gagnvart verkefnum sveitarfélaga. Fjölskyldusviði falið að senda inn tillögur og ábendingar í vefkönnun sem kynnt er í samráðsgátt stjórnvalda.
6.
Ungmennaráð - 22
Fundargerð 22. fundar ungmennaráðs kynnt fyrir fjölskyldunefnd.
7.
Öldungaráð - 24
Fundargerð 24. fundar öldungaráðs kynnt fyrir fjölskyldunefnd.