Fara í efni

Fjölskyldunefnd

57. fundur
20. apríl 2026 kl. 16:15 - 18:00
í Búðareyri 2 fundarherbergi 2
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Birgir Jónsson varaformaður
Helga Rakel Arnardóttir aðalmaður
Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir embættismaður
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
Líneik Anna Sævarsdóttir
Fundargerð ritaði:
Laufey Þórðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
1.
Verkefni með skólasamfélaginu við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Málsnúmer 2601101
Fjölskyldunefnd felur stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu að vinna málið áfram. Tekið fyrir að nýju á næsta fjölskyldunefndarfundi.
2.
Úthlutunarlíkan grunnskóla 2026-2027
Málsnúmer 2604081
Fyrri umræða að úthlutun til grunnskóla 2026-2027. Fjölskyldunefnd samþykkir að vísa úthlutun kennslutímamagns til síðari umræðu.

3.
Úthlutun til leikskóla 2026-2027
Málsnúmer 2604090
Fyrri umræða að úthlutun til leikskóla fyrir 2026-2027. Fjölskyldunefnd samþykkir að vísa úthlutun kennslutímamagns til síðari umræðu.
4.
Beiðni um kaup á stólum
Málsnúmer 2603035
Fjölskyldunefnd þakkar fyrir erindið og vísar því til umræðu við fjárhagsáætlunargerð næsta árs.
5.
Nauðsynlegar framkvæmdir við knattspyrnuvöllinn á Búðagrund á Fáskrúðsfirði.
Málsnúmer 2604086
Fjölskyldunefnd þakkar erindið og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að ræða við ritara meðfylgjandi bréfs.
6.
Skýrsla stjórnenda - félagsþjónusta og barnavernd
Málsnúmer 2311096
Stjórnandi félagsþjónustu kynnir helstu mál á sviði félagsþjónustu og barnaverndar.