Fara í efni

Fjölskyldunefnd

60. fundur
10. júní 2026 kl. 16:15 - 17:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Sigrún Eva Grétarsdóttir aðalmaður
Valborg Ösp Árnadóttir Warén aðalmaður
Anna Guðný Gunnarsdóttir aðalmaður
Alma Eiðsdóttir varamaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar
Dagskrá
1.
Kynning á fjölskyldusviði 2026
Málsnúmer 2606074
Sviðsstjóri fór yfir starfsemi fjölskyldusviðs og nefndarinnar. Kynntir voru helstu málaflokkar og lykiltölur.
2.
Skóladagatöl 2026-2027
Málsnúmer 2601102
Nefndin samþykkir framlagðar breytingar á skóladagatölum fyrir skólaárið 2026-2027. Stjórnanda fræðslumála- og skólaþjónustu falið að vera í sambandi við leikskólastjóra Dalborgar varðandi fækkun skráningardaga og fjölgun lokunardaga og samskipti við foreldra sökum þess.
3.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027
Málsnúmer 2603185
Fjölskyldunefnd fór yfir uppfærða tímaáætlun vegna fjárhags- og starfsáætlunarvinnu fyrir 2027-2030. Vinnu verður framhaldið á næsta fundi.