Fara í efni

Fjölskyldunefnd

66. fundur
16. september 2026 kl. 12:00 - 14:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Helga Rakel Arnardóttir varaformaður
Sigrún Eva Grétarsdóttir aðalmaður
Valborg Ösp Árnadóttir Warén aðalmaður
Anna Guðný Gunnarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir embættismaður
Bergey Stefánsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar
Dagskrá
1.
Þjónusta Píeta í Fjarðabyggð
Málsnúmer 2609064
Kynning til fjölskyldunefndar á starfi Píeta samtakanna í Fjarðabyggð og á landsvísu.
2.
Kynningar fyrir fjölskyldunefnd
Málsnúmer 2609096
Helga Sól Birgisdóttir forstöðumaður heimaþjónustu Fjarðabyggðar kynnir stuðningsþjónustu sveitarfélagsins við eldra fólk í Fjarðabyggð
3.
Drög að reglugerð um skilgreiningu hugtaksins ósanngjörn byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar
Málsnúmer 2609141
Lagt fram til kynningar drög að reglugerð um skilgreiningu hugtaksins "ósanngjörn byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar".
4.
Notendaráð sveitarfélaga
Málsnúmer 2609131
Starfstími ungmennaráðs skal vera frá 10. september til 31. maí ár hvert og er það skipað níu fulltrúum og níu til vara. Á fyrsta fundi ráðsins að hausti kýs það sér formann og varaformann úr sínum röðum. Fyrir 10. september ár hvert skulu eftirfarandi stofnanir tilnefna fulltrúa í ungmennaráð til tveggja ára í senn og skal bæjarstjórn staðfesta tilnefningu fulltrúanna.:

A.
Einn fulltrúi og einn til vara komi úr 8. til 10. bekk frá hverjum grunnskólanna fimm í Fjarðabyggð. Fulltrúi nemenda skólans skal valinn með almennri kosningu nemenda.

B.
Tveir fulltrúar og tveir til vara á aldrinum 16 ? 17 ára koma frá Verkmenntaskóla Austurlands. Fulltrúar nemenda skólans skulu valdir með almennri kosningu nemenda.

C.
Stjórnir íþrótta- og ungmennafélaganna og unglingadeilda björgunarsveitanna í Fjarðabyggð koma sér saman um tvo fulltrúa og tvo til vara frá ungmenna- og íþróttafélögunum. Félögin sem hér um ræðir eru Austri, Ársól, Efling, Gerpir, Hrafnkell Freysgoði, Leiknir, Súlan, Valur og Þróttur. Hvert félag á einn fulltrúa í senn og ræður stafrófsröð.

Sveitarfélagið mun leita tilnefninga hlutaðeigandi. Fulltrúi þeirra skal vera á aldrinum 13-17 ára. Skulu fulltrúar a og b liðar gr. skipaðir á oddatölu árs en fulltrúar c. liðar gr. á sléttri tölu árs þannig að skipunartími stjórnarmanna skarast.
Eftir yfirferð varðandi lögbundin notendaráð sveitarfélaga þ.e. samráðshóp í málefnum fatlaðs fólks, öldungaráð og ungmennaráð fór nefndin yfir erindisbréf ungmennaráðs. Stjórnanda félagsþjónustu falið að kalla eftir tilnefningum í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks og unnið er að tilnefningum í ungmennaráð og öldungráð.