Hafnarstjórn
223. fundur
11. júní 2019
kl.
11:30
-
13:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson
formaður
Eydís Ásbjörnsdóttir
varaformaður
Kamma Dögg Gísladóttir
aðalmaður
Sævar Guðjónsson
aðalmaður
Rúnar Már Gunnarsson
aðalmaður
Starfsmenn
Karl Óttar Pétursson
bæjarstjóri
Marinó Stefánsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Marinó Stefánsson
Sviðstjóri framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Beiðni um ferðastyrk vegna sjóbjörgunarráðstefnu 15-18.júní
Hafnarstjórn samþykkir að veita 300.000 kr í styrk til að sækja ráðstefnu um sjóbjörgun í Kanada með sérstaka áherslu á björgun úr farþegaskipum. Þá er fulltrúum björgunarsveitanna gert að miðla efninu til starfsmanna Fjarðabyggðahafna að ráðstefnu lokinni. Hafnarstjóra falið að ganga frá styrkveitingu.
2.
Beiðni um leyfi til efnistöku úr hafsbotni á allt að 520.00 m3 við Eyri í Reyðarfiðrði
Formaður Hafnarstjórnar fór til fundar við Orkumálastjóra til að ræða þær umsóknir varðandi efnistöku í sjó sem hafa verið í vinnslu og seinagang á úrvinnslu þeirra. Niðurstaða fundar með orkumálastjóra er að öll gögn að hálfu Fjarðabyggðar liggja fyrir og Orkustofnun mun hraða afgreiðslu af sinni hálfu
3.
Seatrade Europe 11-13 september
Hafnarstjórn hefur sent hafnarstjóra síðustu ár á Seatrade Europe sem er sölusýning fyrir skemmtiferðaskip. Hafnarstjórn felur atvinnu- og þróunarstjóra Fjarðabyggðar að ganga frá samningu við Cruise Iceland um að samnýta starfsmann á sýningunni fyrir Fjarðabyggðarhafnir.