Hafnarstjórn
341. fundur
8. júní 2026
kl.
16:00
-
18:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir
formaður
Sigurjón Andrés Jónasson
varaformaður
Friðrik Júlíus Jósefsson
aðalmaður
Birkir Snær Guðjónsson
aðalmaður
Baldur Marteinn Einarsson
aðalmaður
Starfsmenn
Birgitta Rúnarsdóttir
embættismaður
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Birgitta Rúnarsdóttir
stjórnandi hafna
Dagskrá
1.
Starfsemi Fjarðabyggðarhafna
Starfsemi og verkefni Fjarðabyggðarhafna kynnt ásamt því að farið var yfir erindisbréf hafnarstjórnar.
2.
Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining
Stjórnendur hafna ásamt Majid Eskafi fóru yfir vinnuna sem unnin hefur verið í tengslum við þróun Mjóeyrarhafnar. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að halda opinn upplýsingafund fyrir íbúa um uppbyggingu Mjóeyrarhafnar til framtíðar.
3.
Beiðni um styrk vegna sjómannadagsins í Neskaupstað 2026
Lögð fram beiðni Sjómannadagsráðs Neskaupstaðar um styrk vegna hátíðahalda á sjómannadaginn 2026. Hafnarstjórn samþykkir að veita hefðbundinn styrk.
4.
Beiðni um styrk vegna sjómannadagsins á Eskifirði 2026
Sjómannadagsráð Eskifjarðar óskar eftir styrk til að standa straum af dagskrá Sjómannadagsins á Eskifirði 2026. Hafnarstjórn samþykkir að veita hefðbundinn styrk.
5.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð 482.fundar í stjórn Hafnarsambands Íslands