Hafnarstjórn
343. fundur
28. júlí 2026
kl.
16:00
-
17:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir
formaður
Sigurjón Andrés Jónasson
varaformaður
Friðrik Júlíus Jósefsson
aðalmaður
Birkir Snær Guðjónsson
aðalmaður
Baldur Marteinn Einarsson
aðalmaður
Starfsmenn
Birgitta Rúnarsdóttir
embættismaður
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Svanur Freyr Árnason
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Birgitta Rúnarsdóttir
Stjórnandi hafna
Dagskrá
1.
Frystihússbryggja Eskifjörður - Undirbúningur dýpkunar
Farið yfir stöðu mála vegna dýpkunarframkvæmda og þau gögn og tölur sem borist hafa. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að ganga frá samningi við Hagtak hf. um dýpkun.
2.
Steypt athafnasvæði á milli Strandarbryggju og flokkarahúss Hafnargötu 1
Gögn um hugsanlega greiðsluþátttöku lögð fram. Hafnarstjórn samþykkir fyrirkomulag verks.
3.
Seatrade Cruise Med 2026
Boð Íslandsstofu um þátttöku á Seatrade Cruise Med 2026 sem fer fram á Las Palmas Cruise Port terminal á Las Palmas de Gran Canaria á Spáni dagana 16. og 17 september 2026. Hafnarstjórn samþykkir að fulltrúi Fjarðabyggðarhafna sæki ráðstefnuna.
4.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Fundargerð 483. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands lögð fram til kynningar.
5.
Umsögn um áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum
Umsögn Hafnasambands Íslands: Áform um breytingu á gjaldskráákvæði hafnalaga lögð fram til kynningar