Fara í efni

Hafnarstjórn

347. fundur
12. október 2026 kl. 16:00 - 18:15
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir formaður
Sigurjón Andrés Jónasson varaformaður
Friðrik Júlíus Jósefsson aðalmaður
Adam Ingi Guðlaugsson varaformaður
Baldur Marteinn Einarsson aðalmaður
Starfsmenn
Birgitta Rúnarsdóttir embættismaður
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Birgitta Rúnarsdóttir stjórnandi hafna
Dagskrá
1.
Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining
Málsnúmer 2505124
Áframhaldandi umræða um næstu skref í kjölfar skipulagsgreiningar Mjóeyrarhafnar.
2.
Erindi til hafnarstjórnar, löndunarkrani og innsiglingarljós Breiðdalsvík
Málsnúmer 2610086
Lagt fram erindi frá Elís Pétri Elíssyni vegna löndunarkrana og innsiglingarljóss á Breiðdalsvík. Hafnarstjórn þakkar erindið. Nýr löndunarkrani fyrir Breiðdalsvíkurhöfn er á leið til landsins og væntanlegur í næstu viku. Innsiglingarljós er einnig í pöntun og verður sett upp um leið og það kemur. Stjórnanda hafna falið að svara erindinu á grundvelli upplýsinga.
3.
Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2027
Málsnúmer 2609191
Uppfærð gjaldskrá lögð fram. Hafnarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun.
4.
Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2027
Málsnúmer 2608131
Áframhaldandi umræða um starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2027.
5.
Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn
Málsnúmer 2501155
Fyrir liggur að fara þarf í að moka umframefni ofan af klöppum vegna landmótunar á Digranesvegi 1 og 3 á Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn samþykkir að farið verði í verkið.