Hafnarstjórn
349. fundur
16. nóvember 2026
kl.
16:00
-
17:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir
formaður
Sigurjón Andrés Jónasson
varaformaður
Friðrik Júlíus Jósefsson
aðalmaður
Birkir Snær Guðjónsson
aðalmaður
Baldur Marteinn Einarsson
aðalmaður
Starfsmenn
Birgitta Rúnarsdóttir
embættismaður
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Svanur Freyr Árnason
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Birgitta Rúnarsdóttir
stjórnandi hafna
Dagskrá
1.
Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining
Framhald umræðna um næstu skref í kjölfar skipulagsgreiningar Mjóeyrarhafnar
2.
Dýpkun Frystihússbryggja Eskifjörður
Farið yfir undirbúning vegna fyrirhugaðra dýpkunarframkvæmda við Frystihússbryggju á Eskifirði.
3.
Útboð - Vöttur, mönnun og viðhald
Þriðjudaginn 10.nóvember 2026 fór fram opnun tilboða í útboði á mönnun og viðhaldi á dráttarbátnum Vetti fyrir árin 2027-2029. Hafnarstjórn felur stjórnanda hafna og EFLU að fara yfir niðurstöðu útboðs og leggja fyrir að nýju.
4.
Verðkönnun - Upphækkun og styrking Innri Löndunarbryggja
Lögð fram niðurstaða verðkönnunar í upphækkun og styrkingu Innri Löndunarbryggju á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn samþykkir ganga til samninga við Nestak sem átti lægsta tilboð.
5.
Ástandsskoðun trébryggja Norðfjarðarhöfn
Lagt fram innra minnisblað vegna trébryggju í Norðfjarðarhöfn. Hafnarstjórn felur stjórnanda hafna að vinna að bráðabirgðaviðgerðum í samræmi við umræður á fundinum ásamt því að vinna áfram að varanlegri viðgerð bryggjunnar.
6.
Stefnumótun móttaka skemmtiferðaskipa
Umræða um skemmtiferðaskip í samhengi við aðra vinnu í tengslum við eflingu ferðaþjónustu í Fjarðabyggð. Til kynningar er lögð fram samantekt Cruise Iceland á skipakomum skemmtiferðaskip, farþegafjölda og tekjur hafna af skemmtiferðaskipum á þessu ári. Áframhaldandi umræða verður á næsta fundi hafnarstjórnar.
7.
Tryggingar hafnarmannvirkja
Stjórnanda hafna er falið að fara yfir tryggingar á hafnarmannvirkjum í Fjarðabyggðarhöfnum, gera samantekt og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
8.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Lögð fram til kynningar gögn af Hafnasambandsþingi 2026 sem fór fram í Reykjanesbæ 22.- 23.október síðastliðinn.