Hafnarstjórn
55. fundur
24. mars 2009
kl.
17:00
-
19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson
Framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Skýrsla um Norður-Íshafssiglingar janúar 2009
Skýrsla um Norður - Íshafssiglingar frá janúar 2009 unnin fyrir Fjárfestingastofu og nokkrar hafnir. Vísað til umfjöllunar frá síðasta fundi.
Hafnarstjórn fór yfir skýrsluna en hún gefur til kynna að ekki sé hagkvæmt við núverandi aðstæður að fara Norður - Íshafsleiðina með vöruflutninga. Hafnarstjórn mun fylgjast með málinu áfram.
2.
Beiðni um undaþágu til að taka lóðs að/ frá Mjóeyrarhöfn.
Bréf frá Eimskipum dags. 24. febrúar 2009 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsþjónustu fyrir Robert Podbrzeski, skipstjóra á BBC Reydarfjordur. Einnig kynnt svar við erindinu þar sem heimildin er samþykkt.
3.
Ósk um undanþágu frá hafnsöguskyldu vegna Rafal Sysak skipstjóra
Tölvupóstur frá Grendal ehf dags. 6. febrúar 2009 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Rafal Sysak skipstjóra á olíuskipinu Otilia. Einnig kynnt svar við erindinu þar sem beiðninni er hafnað.
4.
Siglingamerki við Mjóeyrarhöfn
Kynnt bréf til Siglingastofnunar dags. 11. mars 2009. Þar sem óskað er eftir svari um hvenær farið verði í gerð innsiglingamerkis í tengslum við Mjóeyrarhöfn sem gert var ráð fyrir. Kynnt.
5.
Kynning á Köfunarþjónustunni ehf
Bréf frá Köfunarþjónustunni mótt. 17. mars 2009. Kynnt þjónusta fyrirtækisins.
6.
Umsókn um aðild að Cruise Iceland
Kynnt formleg umsókn frá Fjarðabyggðarhöfnum dags. 10. mars 2009, um aðild að Cruise Iceland. Framkvæmdastjóra falið að fylgja málinu eftir.
7.
Endurbygging á bryggju í Viðfirði
Tölvupóstur frá Skúla Hjaltasyni og Þórarni Guðnasyni dags. 17. mars 2009, þar sem óskað er eftir styrk til endurbyggingar bryggju í Viðfirði. Hafnarstjórn samþykkir að veita styrk í samræmi við reglur um endurbyggingu gamalla bryggja.