Fara í efni

Hafnarstjórn

88. fundur
13. september 2011 kl. 17:00 - 19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson Framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa
Málsnúmer 1005131
Fyrir fundinum lá minnisblað frá ferða og menningamálafulltrúa dags. 6. september 2011 um stöðu undirbúnings fyrir komu skemmtiferðaskipa. Kynnt.
2.
Fundagerðir CI á árinu 2011
Málsnúmer 1102034
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland frá 18. ágúst 2011. Kynnt.
3.
Hafnarsjóður - akstursvarnir
Málsnúmer 1108115
Kynnt tilboð sem bárust í gerð akstursvarna fyrir Fjarðabyggðarhafnir. Gengið var til samninga við lægstbjóðanda. Hafnarstjórn samþykkti að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
4.
Fyrirspurn um umhverfismál á Reyðarfirði
Málsnúmer 1106170
Bréf frá eigna-skipulags og umhverfisnefnd 5. september 2011, til lóðarhafa við Ægisgötu á Reyðarfirði, þar sem lóðarhafar eru hvattir til úrbóta á lóðum sínum. Kynnt.
5.
Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði
Málsnúmer 0905163
Farið yfir hugmyndir að endurnýjun bryggjunnar.  Hafnarstjórn leggur til að farið verði eftir hugmynd 3 og fengin verði útfærsla á aðstöðu fyrir flotbryggju austan á bryggjunni.
6.
Dýpkun smábátahafnar Eskifirði
Málsnúmer 1109018
Kynnt drög að gögnum vegna dýpkunar smábátahafnar á Eskifirði. Rætt um umfang verksins, verktíma og fjármögnun. Hafnarstjórn samþykkir að bjóða verkið út og það verði fjármagnað af liðnum grjótvarnir óstaðsett.
7.
Smábátahöfn Eskifirði
Málsnúmer 0910146
Kynnt drög nr. 2 að umhverfi smábátahafnarinnar á Eskfirði. Hafnarstjórn lýst vel á hugmyndina en gerði nokkrar athugsemdir sem þarf að skoða betur.