Hafnarstjórn
98. fundur
2. maí 2012
kl.
17:00
-
19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson
Framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Markaðsstarf Fjarðbyggðahafna
Umræða um markaðsmál Fjarðabyggðarhafna. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að sjá um að safna saman upplýsingum um Fjarðabyggðarhafnir, þjónustu í Fjarðabyggð og á Austurlandi sem tengist hafnsækinni starfsemi til upplýsinga þeim sem áhuga sýna á starfsemi í Fjarðabyggð.
2.
Fundagerðir CI á árinu 2012
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland frá 23. febrúar 2012. Kynnt.
3.
Franski spítalinn - bryggjuaðstaða
Framhald erindis frá 11. maí 2011 þar sem óskað er eftir aðkomu hafnarsjóðs að gerð bryggju framan við Franska spítalann á Fáskrúðsfirði. Fyrir fundinum lá minnisblað vegna málsins. Hafnarstjórn samþykkir að byggja bryggju á grunni minnisblaðsins. Kostnaður við verkið er áætlaður allt að 10 millj.kr.
4.
Hafnarmál á Norðfirði
Gerð grein fyrir stöðu mála.
5.
Ósk um að setja upp vindmælir á vitan á Neskaupstað
Erindi frá Stefáni K. Guðjónssyni þar sem óskað er eftir að fá að setja upp vindmæli í Norðfjarðarvitann á festingu sem er til staðar og ekkert henni. Hafnarstjórn samþykkir að heimila uppsetningu á vindmæli.
6.
Smábátahöfn Reyðarfirði
Fundargerð frá opnun tilboða í yfirborðsfrágang við smábátahöfnina á Reyðarfirði dags. 11. apríl 2012. Hafnarstjórn staðfesti verksamning við lægstbjóðanda.
7.
Umsókn um styrk til endurbyggingu á bryggju við sjóhús
Erindi frá Sævari Jónssyni móttekið 16. apríl 2012 þar sem óskað er eftir ákveðinni fjárhæð í styrk til endurbyggingar á bryggju framan við sjóhús að Egilsbraut 26. Hafnarstjórn tekur vel í erindið en óskar eftir að fá kostnaðarmat á verkið. Afgreiðslu frestað.
8.
Smábátahöfn Stöðvarfirði
Úttekt Siglingastofnunar á hafnarmálum á Stöðvarfirði með tilliti til möguleika á fjölgun leguplássa fyrir smábáta. Málið tekið fyrir á næsta fundi.
9.
Tillaga bæjarstjóra um vorhreinsun í tengslum við útgáfu vorbæklings
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 2. apríl sl. að farið verði í sérstakt átak í umhverfismálum í tengslum við útgáfu vorbæklings 2012. Sérstaklega verði beint sjónum að bæjarkjörnunum, umhverfi fyrirtækja og lóða í þeirra umsjá, lóða í umsjón einstaklinga og opinna svæða sem eru á ábyrgð bæjarfélagsins. Hvatt verði sérstaklega til umhverfisvitundar og mikilvægi þess að fallegt og snyrtilegt umhverfi séu lífsgæði. Bæjarráð vísaði umfjöllun um samþykktina til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarnefndar og framkvæmd verði á hendi framkvæmdasviðs sem vinni verkefnaáætlun til að stuðla að framgangi verkefnisins. Hafnarsjóður fagnar framtaki bæjarráðs. Jafnframt bendir hafnarstjórn á að í framkvæmdaáætlun ársins 2012 eru ætlaðar um 60 milljónir króna til umhverfisfrágangs við umhverfi hafna.