Fara í efni

Landbúnaðarnefnd

11. fundur
28. ágúst 2014 kl. 13:00 - 00:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Sigurður Baldursson Formaður
Ármann Elísson Aðalmaður
Þórhalla Ágústsdóttir Aðalmaður
Marsibil Erlendsdóttir Aðalmaður
Árni Steinar Jóhannsson Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Anna Katrín Svavarsdóttir Umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Drög að Áætlun til þriggja ára um refaveiðar.
Málsnúmer 1404061
Nefndin felur umhverifsfulltrúa að senda inn ábendingar vegna endugreiðsluhlutfalls í samræmi við umræður á fundinum.
2.
Gangnaboð 2014
Málsnúmer 1408103
Landbúnaðarnefnd samþykkir að fjáreigendur verði gerðir ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir eiga fjárvon samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur. Landbúnaðarnefnd tilnefnir Sigurð Baldursson fjallskilastjóra fyrir Fjarðabyggð. Göngur skulu fara fram á tímabilinu 13-27. september 2014. Seinni göngum skal lokið fyrir 13. október 2014. Fyrir 6. nóvember 2014 mun fjallskilastjóri láta kanna og smala þá eyðistaði þar sem hugsanlega er fjárvon. Kostnaður af þeim eftirleitum greiðist úr fjallskilasjóði, kr. 18.000.- pr. dagsverk. Jafnframt samþykkir landbúnaðarnefnd eftirfarandi tillögu fyrir haustið 2014 að skiptingu fjallskiladeildarinnar í gangnasvæði og skulu göngur fara fram sem hér segir: Tilgreindir umsjónaraðilar eru gangnaforingjar:
Norðfjarðarsvæði: Gangnastjórar eru Axel Jónsson og Leifur Jónsson, skulu þeir sjá um fjallskil frá Nípu að Fannardalsá. Guðröður Hákonarson skal sjá um fjallskil í Fannardal bæði norðan og sunnan ár. Þórður Júlíusson skal sjá um fjallskil í Seldal og Staðarháls. Sigfinnur Karlsson, Önundur Erlingsson, Jón Þór Aðalsteinsson og Viðar Guðmundsson skulu sjá um fjallskil sunnan Norðfjarðarár og Oddsdal. Á Hólaströnd sér um fjallskil: Valgeir Guðmundsson. Eskifjarðarsvæði: Halldór Jóhannsson er gangnastjóri og hefur umsjón með fjallskilum fyrir utan Hrafnsdal og útúr eins og þörf er á, þó ekki í Viðfirði og Sandvík. Verði vart við fé í Viðfirði eða Sandvík, þá verður gerður út leiðangur til að ná í það. Magnús Guðnason hefur umsjón með fjallskilum frá Bleiksá að Helgustaðadal. Sjöfn Gunnarsdóttir umsjón með fjallskilum í Helgustaðadal og Hrafnadal. Hellisfjarðarsvæði: Lagt er til að allt Hellisfjarðarfjarðarsvæðið verði smalað samdægurs í samráði við gangastjóra. Tillaga að dagsetningu er 13. eða 20. september 2014, gangnastjórar verði þeir Önundur Erlingsson og Sigfinnur Karlsson og leggi þeir til 5 menn, Sjöfn Gunnarsdóttir leggi til 2 menn, Viðar Guðmundsson leggi til 2 menn, því til viðbótar leggi Fjarðabyggð til 5 dagsverk. Þá sjá um fyrirstöðu vestan Hrafnadals, Sjöfn Gunnarsdóttir og að austan Halldór Jóhannsson.
Mjóifjörður: Marsibil Erlendsdóttir er gangnastjóri. Hún hefur umsjón með fjallskilum í Mjóafirði og samkvæmt samkomulagi þá munu Vallamenn smala sínu fé í Mjóafirði. Lagt er til að suðurströnd Mjóafjarðar frá Nípu og að Súlu við Reyki verði smöluð 18. Október 2014, leggi Fjarðabyggð til 5 dagsverk og Axel Jónsson eitt dagsverk.
Sunnan varnarlínu í Reyðarfirði munu fjáreigendur sjá um eins og verið hefur. Fjáreigendur í Breiðdal sjá um smölun í Stöðvardal að Kambanesi.
Gildir fyrir öll fjallskilasvæði: Þeir aðilar sem tilgreindir eru sem gangnaforingjar á sínu svæði geta kallað til aðra sem fjár eiga von á þeim svæðum sem þeim eru falin. Landbúnaðarnefnd Fjarðabyggðar hefur komið á þeirri vinnureglu að fjáreigendur eru ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir eiga fjárvon á samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur, Fjallskil á svæðinu frá Bleiká að Hjálpleysuá að sveitafélagsmörkum við Fljótsdalshérað, verði framkvæmd af fjáreigendum á Völlum í samráði við fjallskilastjóra Fjarðabyggðar.
3.
Lausaganga stórgripa
Málsnúmer 1403118
Landbúnaðarnefnd samþykkir drög þessi fyrir sitt leyti.
4.
Viðbragðsáætlun vegna mögulegs eldgoss
Málsnúmer 1408105
Landbúnaðarnefnd felur umhverfissfulltrúa að senda leiðbeiningar um viðbrögð við eldgosi á öll lögbýli í sveitarfélaginu.