Fara í efni

Landbúnaðarnefnd

9. fundur
29. ágúst 2013 kl. 11:00 - 12:00
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Sigurður Baldursson Aðalmaður
Halldór Árni Jóhannsson Aðalmaður
Ármann Elísson Aðalmaður
Sigfús Vilhjálmsson Aðalmaður
Axel Jónsson Aðalmaður
Árni Steinar Jóhannsson Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Árni Steinar Jóhannsson Umhverfisstjóri
Dagskrá
1.
Hausthret 2013 - mat á stöðu
Málsnúmer 1308110
Veðurstofan hefur varað við slæmu veðri dagana 30.ágúst - 2.september á landinu. Verst er veðurspáin fyrir Vestfirði og Norðurland. Landbúnaðarnefnd telur ekki tilefni til sérstakra aðgerða í Fjarðabyggð vegna þessa hrets.
2.
Gangnaboð 2013
Málsnúmer 1308111
Landbúnaðarnefnd samþykkir að fjáreigendur verði gerðir ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir eiga fjárvon samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur. Landbúnaðarnefnd tilnefnir Sigurð Baldursson fjallskilastjóra fyrir Fjarðabyggð. Göngur skulu fara fram á tímabilinu 14. - 29. september 2013. Seinni göngum skal lokið fyrir 15. október 2013. Fyrir 6. nóvember 2013 mun fjallskilastjóri láta kanna og smala þá eyðistaði þar sem hugsanlega er fjárvon. Kostnaður af þeim eftirleitum greiðist úr fjallskilasjóði, kr. 18.000.- pr. dagsverk. Jafnframt samþykkir landbúnaðarnefnd eftirfarandi tillögu fyrir haustið 2013 að skiptingu fjallskiladeildarinnar í gangnasvæði og skulu göngur fara fram sem hér segir: Tilgreindir umsjónaraðilar eru gangnaforingjar: Norðfjarðarsvæði: Gangnastjóri er Axel Jónsson og Leifur Jónsson skal sjá um fjallskil frá Nípu að Fannardalsá. Guðröður Hákonarson skal sjá um fjallskil í Fannardal bæði norðan og sunnan ár. Þórður Júlíusson skal sjá um fjallskil í Seldal og Staðarháls. Sigfinnur Karlsson, Önundur Erlingsson, Jón Þór Aðalsteinsson og Viðar Guðmundsson skulu sjá um fjallskil sunnan Norðfjarðarár og Oddsdal. Á Hólaströnd sjá um fjallskil: Valgeir Guðmundsson. Eskifjarðarsvæði: Halldór Jóhannsson er gangnastjóri og hefur umsjón með fjallskilum fyrir utan Hrafnsdal og útúr eins og þörf er á, þó ekki í Viðfirði og Sandvík. Verði vart við fé í Viðfirði eða Sandvík, þá verður gerður út leiðangur til að ná í það. Magnús Guðnason hefur umsjón með fjallskilum frá Bleiksá að Helgustaðadal. Sjöfn Gunnarsdóttir umsjón með fjallskilum í Helgustaðadal og Hrafnadal. Hellisfjarðarsvæði: Lagt er til að allt Hellisfjarðarfjarðarsvæðið verði smalað samdægurs í samráði við gangastjóra. Tillaga að dagsetningu er 14. eða 21. september 2013, gangnastjórar verði þeir Önundur Erlingsson og Sigfinnur Karlsson og leggi þeir til 5 menn, Sjöfn Gunnarsdóttir leggi til 2 menn, Viðar Guðmundsson leggi til 2 menn, því til viðbótar leggi Fjarðabyggð til 5 dagsverk. Þá sjá um fyrirstöðu vestan Hrafnadals, Sjöfn Gunnarsdóttir og að austan Halldór Jóhannsson. Mjóifjörður: Marsibil Erlendsdóttir er gangnastjóri. Hún hefur umsjón með fjallskilum í Mjóafirði og samkvæmt samkomulagi þá munu Vallamenn smala sínu fé í Mjóafirði. Gildir fyrir öll fjallskilasvæði: Þeir aðilar sem tilgreindir eru sem gangnaforingjar á sínu svæði geta kallað til aðra sem fjár eiga von á þeim svæðum sem þeim eru falin. Landbúnaðarnefnd Fjarðabyggðar hefur komið á þeirri vinnureglu að fjáreigendur eru ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir eiga fjárvon á samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur, Fjállskil á svæðinu frá Bleiká að Hjálpleysuá að sveitafélagsmörkum við Fljótsdalshérað, verið framkvæmd af fjáreigendum á Völlum í samráði við fjallskilastjóra Fjarðabyggðar. Sunnan varnarlínu í Reyðarfirði munu fjáreigendur sjá um eins og verið hefur. Verði fjár vart í Reykjadal og austan hans í Mjóafirði verður gerður út leiðangur. Lagt er til að smalað verði helgina 14. til 15. september 2013 og að fjáreigendur í Breiðdal sjái um smölun í Stöðvardal að Kambanesi.