Skipulags- og framkvæmdanefnd
60. fundur
8. júní 2026
kl.
16:15
-
18:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður
Kristinn Þór Jónasson
varaformaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir
aðalmaður
Húnbogi Sólon Gunnþórsson
aðalmaður
Guðröður Hákonarson
varamaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason
embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck
Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar
Dagskrá
1.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Bakkagerði 1, Bakkagerði 11
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Bakkagerði 1, Bakkagerði 11. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi Bakkagerði 1 vegna Bakkagerðis 11. Breytingin er ekki talið hafa grenndaráhrif og málinu er vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
2.
Óveruleg breyting á Deiliskipulag Hlíðarendi Eskifirði - Strandgata 77b
Óveruleg breyting á Deiliskipulag Hlíðarendi Eskifirði - Strandgata 77b. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna fyrir Steinholtsvegi 6 og leggja fyrir nefnd að nýju.
3.
Breyting á deiliskipulagi Bakkar 3 - Sólbakki 1 bílskúrar
Auglýsingu vegna breytingar á deiliskipulagi Bakkar 3 - Sólbakki 1 bílskúrar lokið. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir skipulagið og vísar erindinu til samþykktar í bæjarstjórn.
4.
Umsókn um lóð Gilsholt 2, 750 Fáskrúðsfirði
Umsókn um lóð Gilsholt 2, 750 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að koma með tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi.
5.
Grenndarkynning Mógerði 5
Grenndarkynningu lokið. Athugasemdir vegna óverulegrar breytinga á deiliskipulagi við Mógerði 5, 730 Reyðarfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd getur ekki fallist á tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi með teknu tilliti til athugasemda sem bárust við grenndarkynningu. Skipulagsfullrúa falið að vinna málið áfram með umsækjanda.
6.
Grenndarkynning Skólavegur 50A, 750 Fáskrúðsfjörður
Grenndarkynningu vegna viðbyggingar við Skólaveg 50a, 750 Fáskrúðsfirði lokið. Engar athugasemdir komu á kynningartíma. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir niðurstöðu grenndarkynningar og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
7.
Umsókn um lóð Strandgata 33, 735 Eskifirði
Umsókn um lóð Strandgata 33, 735 Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagðar breytingar og úthlutun á lóðinni Strandgata 33 og vísar erindinu í bæjarráð.
8.
Umsókn um lóð Bakkagerði 11, 730 Reyðarfirði
Umsókn um lóð Bakkagerði 11, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar erindinu til bæjarráðs.
9.
Strandgata 45 og Kirkjustígur 1a Esk. ósk um stækkun lóða
Ósk um stækkun einkalóðar að vegg sem liggur að göngustíg meðfram Lambeyrará. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu meðan beðið er eftir merkjalýsingu.
10.
Byggingarleyfi Leirubakki 4
Umsókn um byggingarleyfi Leirubakki 4, 735 Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
11.
Byggingarleyfi Garðaholt 5, 750 Fáskrúðsfjörður
Umsókn um byggingarleyfi fyrir Garðaholt 5, 750 Fáskrúðsfjörður. Skipualgs- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
12.
Byggingarleyfi Skólavegur 50A, viðbygging 750 Fásk
Byggingarleyfi Skólavegur 50A, viðbygging 750 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu þar til aðaluppdráttum hefur verið skilað.
13.
Framkvæmdaleyfi fjarskiptamastur Breiðdalsvík
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir að reisa fjarskiptamastur á Breiðdalsvík. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu þar til svar hefur borist frá Mílu.
14.
Framkvæmdaleyfi fjarskiptamastur Stöðvarfirði
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir að reisa fjarskiptamastur á Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu þar til leyfi lóðarhafa liggur fyrir.
15.
Sléttukrókur framkvæmdaleyfi
Framlögð beiðni frá Vegagerðinni um framkvæmdaleyfi vegna rannsókna á vegstæði í Sléttukrók sem hluta af vegagerð fyrir botni Reyðarfjarðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
16.
Samgönguvika 2026
Samgönguvika 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
17.
Umsagnarbeiðni - Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045, nr. 04532026
Umsagnarbeiðni - Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045, nr. 04532026. Skipulags- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við fyrirhugað aðalskipulag og felur skipulagsfulltrúa að svara erindinu.
18.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi - Skjólhraun
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi - Skjólhraun. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnenda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vinna málið áfram.
19.
Kvenfélagsbekkir, Norðfirði
Kvenfélagið Nanna óskar eftir leyfi að setja upp bekki á Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir staðsetningarnar og felur stjórnenda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að upplýsa kvenfélagið.
20.
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
21.
Fundargerðir Úrgangsráðs Austurlands
Fundargerðir úrgangsráðs Austurlands frá 26. janúar og 13. maí lagðar fram. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna en kallar eftir ítarlegri fundargerðum.
22.
Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030
Undirnefndir kosnar af höfuðnefndum og bæjarráði.
Fjallskilanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd kýs fimm fulltrúar og jafn margir til vara í fjallskilanefnd. Fjallskilanefnd er skipulags- og framkvæmdanefnd til ráðuneytis um fjallskil og afréttarmál. Hún skal fjalla um fjallskil og afréttarmál í umboði skipulags- og framkvæmdanefndar. Fundargerðir fjallskilanefndar skulu lagðar fyrir skipulags- og framkvæmdanefnd áður en þær fá fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu til næsta fundar.
Fjallskilanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd kýs fimm fulltrúar og jafn margir til vara í fjallskilanefnd. Fjallskilanefnd er skipulags- og framkvæmdanefnd til ráðuneytis um fjallskil og afréttarmál. Hún skal fjalla um fjallskil og afréttarmál í umboði skipulags- og framkvæmdanefndar. Fundargerðir fjallskilanefndar skulu lagðar fyrir skipulags- og framkvæmdanefnd áður en þær fá fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu til næsta fundar.
23.
Leikskólinn Dalborg áfangi IV. Endurbætur á eldri byggingu
Niðurstöða verðkönnunar á endurbótum innandyra á eldri byggingu Dalborgar á Eskfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, VHE ehf.