Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdanefnd

69. fundur
22. september 2026 kl. 15:00 - 17:10
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður
Kristinn Þór Jónasson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson varamaður
Húnbogi Sólon Gunnþórsson aðalmaður
Guðröður Hákonarson varamaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður
Erla Margrét Gunnarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Erla Margrét Gunnarsdóttir Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027
Málsnúmer 2606170
Lögð fram tillaga að launaáætlun 2027 og fjallað um áherslur áframhaldandi vinnu í fjárhagsáætlungerð. Skipulags- og framkvæmdarnefnd felur sviðsstjóra að skila launaáætlun til fjármálastjóra.
2.
Byggingarleyfi Heiðarvegur 37 - Stríðsárasafn, annar áfangi 730 Reyðarfjörður
Málsnúmer 2609190
Umsókn um byggingarleyfi fyrir 2. áfanga uppbyggingu Stríðsárasafnssins við Heiðarveg 37, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
3.
Byggingarleyfi Mógerði 3, 730 Reyðarfjörður
Málsnúmer 2609105
Umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishús við Mógerði 3, 730 Reyðarfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
4.
Byggingarleyfi Hafnargata 1, slönguhús, 750 Fáskrúðsfjörður
Málsnúmer 2609162
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir slönguhúsi á Hafnargötu 1, 750 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
5.
Umsókn um stækkun á lóð Búðarmelur 27, 730 Reyðarfjörður
Málsnúmer 2609174
Umsókn um stækkun lóðar við Búðarmel 27 á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaða stækkkun á lóð og kallar eftir uppdrætti af óverulegri breytingu á deiliskipulagi, Melur 1, og leggja fyrir nefnd að nýju.
6.
Umsókn um stækkun lóðar Efstagerði 1, 730 Reyðarfjörður
Málsnúmer 2609171
Óskað er eftir stækkun á lóðum við Efstagerði 1-7, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaða stækkkun á lóðunum, með fyrirvara um staðsetningu vatnslagna, nefndin felur skipulagsfulltrúa að afla þeirra upplýsinga og vera í sambandi við umsækjanda. Skipulags- og framkvæmdanefnd kallar í framhaldi eftir uppdrætti af óverulegri breytingu á deiliskipulagi og leggja fyrir nefnd að nýju.
7.
Umsókn um lóð Egilsbraut 16, 740 Norðfjörður
Málsnúmer 2608008
15:50 Guðröður Hákonarson vék af fundi undir þessum lið.
Minnisblað er inniheldur bréf frá umsækjanda varðandi umsókn um lóð við Egilsbraut 16, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar erindinu til næsta fundar í ljósi fyrri viðræðna við félagasamtökin Bærinn okkar, sbr. gr. 2.3 í lóðaútlutunarreglum Fjarðabyggðar.

Nefndin felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að ræða við forsvarsmenn Bærinn okkar og kalla eftir framkvæmdaáætlun til að leggja fram á næsta fundi nefndar sem er á dagskrá eftir tvær vikur, þriðjudaginn 6. október.

8.
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026
Málsnúmer 2602149
Fundargerð 192. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
9.
Hætta móttöku lífúrgangs
Málsnúmer 2609177
Minnisblað um lífúrgangsmál á Austurlandi lagt fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.