Skipulags- og framkvæmdanefnd
74. fundur
17. nóvember 2026
kl.
15:00
-
17:15
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður
Kristinn Þór Jónasson
varaformaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir
aðalmaður
Húnbogi Sólon Gunnþórsson
aðalmaður
Hafþór Eiríksson
aðalmaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Svanur Freyr Árnason
sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Framkvæmdaleyfi Sléttukrókur
Þuríður vék af fundi undir þessum lið.
Framlögð beiðni frá Vegagerðinni um breytingu á útgefnu framkvæmdaleyfi dags. 14. júlí 2026, vegna rannsókna á vegstæði í Sléttukrók sem hluta af vegagerð fyrir botni Reyðarfjarðar. Breytingin snýst að stærð plans breytist úr 4m í 10m og gláar verða 1:1,15 í stað 1:1,25. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir uppfærslu framkvæmdaleyfisins samkvæmt beiðni Vegagerðarinnar og að efni verði tekið úr vegkafla við Miðstrandavík á Vattarnesvegi.
2.
Framkvæmdaleyfi til byggingar bakkavarnar í Sléttuá
Þuríður vék af fundi undir þessum lið.
Umsókn um framkvæmdaleyfi til byggingar bakkavarnar í Sléttuá. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
3.
Umsókn um staðsetningu hreinsihauga vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Grjótá Eskifirði
Staðsetning hreinsihauga fyrir olíumengaðan jarðveg. Framlögð tillaga um staðsetningu út við Svínaskála. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu og felur sviðsstjóra að ræða við starfsmenn Eflu um lítils háttar breytingar á staðsetningu og leggja fyrir fund að nýju.
4.
Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um stöðuleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að gefa út stöðuleyfi. Nefndin áréttar að gámar eru ekki varanlega lausn þar af leiðandi eru stöðuleyfi einungis veitt til 12 mánaða.
5.
Leikskólinn Dalborg áfangi IV. Endurbætur á eldri byggingu
Farið yfir stöðu framkvæmda og kostnaðar við endurgerð eldri hluta Leikskólans Dalborgar. Fyrir liggur að fjárveiting til framkvæmdanna er undir framkvæmdarkostnaði vegna viðbótaverka við framkvæmdina. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar erindi til bæjarráðs til frekari vinnslu vegna fjárhagsáætlunar ársins.
6.
Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík
Farið yfir stöðu framkvæmda og kostnaðar við viðhald í Breiðdalsskóla. Fyrir liggur að fjárveiting til framkvæmdanna er undir framkvæmdarkostnaði vegna viðbótaverka og ófyrirséðs kostnaðar við framkvæmdina. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar erindi til bæjarráðs til frekari vinnslu vegna fjárhagsáætlunar ársins.
7.
Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina
Farið yfir kostnaðaráætlun og framkvæmdir vegna Fjarðabyggðahallarinnar. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur áætlunina upp að nýju þegar fyrirliggur tímalína framkvæmdarinnar.
8.
Erindi til skipulags- og framkvæmdanefndar Leikvöllur við Breiðdals- og Stöðvafjarðarskóla
Erindi til skipulags og framkvæmdanefndar er varðar leikvöllinn við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla á Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur þjónustu- og framkvæmdarfulltrúa að skoða úrbætur með hlutaðeigandi aðilum. Nefndin vísar erindinu jafnframt til umræðu í fjölskyldunefnd.