Fara í efni

Stjórn menningarstofu

33. fundur
10. mars 2026 kl. 14:00 - 15:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson formaður
Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm varaformaður
Arndís Bára Pétursdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð
Málsnúmer 2508067
Fundur var haldinn með fulltrúum ungmenna- og íþróttafélaganna í Fjarðabyggð um framkvæmd 17. júní hátíðarhalda.
Kynntur var rammi að skipulagi og fjármögnun hátíðarinnar.
Fulltrúar félaganna eru sáttir við framkvæmdina og samþykkir stjórn tillöguna sem send verður til félögunum.
Jafnframt voru lögð fram drög samningi við bæjarhátíðir í Fjarðabyggð.
Stjórn samþykkir að fulltrúar hátíðanna verði boðaðir á næsta fund stjórnarinnar.
2.
Afgreiðsla menningarstyrkja 2026
Málsnúmer 2603052
Tillaga forstöðumanns að úthlutun menningarstyrkja vegna umsókna 2026 lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu hjá stjórn menningarstofu.
Stjórn menningarstofu fór yfir umsóknir og rökstuðning um afgreiðslu umsóknanna.
Stjórn samþykkir tillögu forstöðumanns og felur honum að ganga frá úthlutun og tilkynna um niðurstöðu hennar til umsækjendanna.
3.
Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2211009
Farið yfir næstu skref varðandi endurskoðun stefnunnar. Fundur er áformaður 8. apríl sem kynningarfundur um endurskoðun menningarstefnunnar. Jafnframt samþykkt að haldin verði vinnustofa um menningarmál í framhaldi kynningarfundar.
4.
Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga
Málsnúmer 2602047
Vísað frá bæjarráði til nefnda sveitarfélagsins óskum innviðaráðuneytisins um hvernig einfalda megin regluverk um verkefni sveitarfélaga. Óskað er eftir tillögum fagsviða og nefnda um verkefni sem væru til þess fallin að einfalda reglur sem sveitarfélögum eru settar.
Lagt fram til kynningar.
5.
Verkefni menningarstofu 2026
Málsnúmer 2602053
Lögð fram til kynningar greinargerð um úthlutanir listamannadvalar í Þórsmörk árið 2026.