Fara í efni

Stjórn menningarstofu

37. fundur
10. júní 2026 kl. 16:15 - 17:45
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Birgir Jónsson formaður
Tanja Tómasdóttir varaformaður
Júlíus Óli Jacobsen aðalmaður
Arndís Bára Pétursdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Erindisbréf stjórnar menningarstofu
Málsnúmer 2205296
Framlagt til kynningar og umræðu erindisbréf stjórnarinnar.
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2027
Málsnúmer 2603195
Tekin umræða um áherslur í menningarmálaflokknum á árinu 2027 í rekstri og fjárfestingu.
Stjórn felur bæjarritara að vinna að rammanum áfram.
3.
Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030
Málsnúmer 2605021
Skipan stjórnar Tónlistarmiðstöðvar Austurlands með vísan til 62. gr. samþykkta Fjarðabyggðar. Bæjarstjórn skipar þrjá fulltrúa, og þrjá til vara, í stjórn Tónlistarmiðstöðvar Austurlands að fenginni tilnefningu stjórnar menningarstofu.
Stjórn tilnefnir Gunnar Jónsson, Jóhann G. Harðarson og Þórhildi Tinnu Sigurðardóttur sem aðalmenn og til vara verði Þórður Vilberg Guðmundsson, Árni Pétur Árnason og Anna Marín Þórarinsdóttir. Vísar stjórn tilnefningu til staðfestingar bæjarstjórnar.
4.
Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030
Málsnúmer 2605021
Skipun fulltrúa í stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga sbr. 62. gr samþykkta Fjarðabyggðar. Bæjarstjórn skipar aðal- og varafulltrúa í stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga samkvæmt stofnsamningi og eftir tilnefningu stjórnar menningarstofu.
Stjórn tilnefnir Birgi Jónsson sem aðalmann og Ragnar Sigurðsson til vara. Vísar stjórn tilnefningu til staðfestingar bæjarstjórnar.
5.
Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030
Málsnúmer 2605021
Skipun fulltrúa í stjórn Sköpunarmiðstöðvar. Bæjarstjórn skipar aðal- og varafulltrúa í stjórn Sköpunariðstöðvar samkvæmt stofnsamningi og eftir tilnefningu stjórnar menningarstofu.
Stjórn tilnefnir Bryngeir Ágúst Margeirsson sem aðalmann og til vara Tönju Tómasdóttur. Vísar stjórn tilnefningu til staðfestingar bæjarstjórnar.