Fara í efni

Stjórn menningarstofu

42. fundur
15. september 2026 kl. 14:15 - 16:15
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Birgir Jónsson formaður
Tanja Tómasdóttir varaformaður
Júlíus Óli Jacobsen aðalmaður
Arndís Bára Pétursdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2027
Málsnúmer 2603195
Lögð fram drög að útfærslu á fjárhagsáætlun miðað við rammaúthlutun frá bæjarráði.
Sviðsstjóra falið að vinna áfram að áætlunargerðinni og leggja fyrir stjórn endanlega útfærslur.
2.
Uppbygging annars áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Málsnúmer 2607073
Farið yfir framgang annars áfanga og tímasetningar vegna afhendingar á húsnæði. Farið yfir kostnaðargreiningu verkefnis.
3.
Verkefni menningarstofu 2026
Málsnúmer 2602053
Framlögð skýrsla forstöðumanns um lista- og menningarhátíðina Innsævi sem og yfirlit yfir annað menningarstarf á liðnu sumari ásamt því sem framundan er.