Stjórn menningarstofu
45. fundur
25. nóvember 2026
kl.
16:15
-
19:20
Grunnskóli Eskifjarðar
Nefndarmenn
Birgir Jónsson
formaður
Tanja Tómasdóttir
varaformaður
Júlíus Óli Jacobsen
aðalmaður
Arndís Bára Pétursdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Gunnar Jónsson
embættismaður
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
bæjarritari
Dagskrá
1.
Geymslur minjasafna og sýningar
Farið á vettvang á Eskifirði og skoðaðar geymslur minjasafna. Geymslur við Strandgötu 48 og Strandgötu 86 skoðaðar.
2.
Úttekt á hljóðkerfum Eskifjarðarkirkju og Egilsbúðar
Stjórn fól forstöðumanni menningarstofu að vinna áfram að málinu eftir fund stjórnar. Framlagt minnisblað Eflu hf. um úttekt á stöðu hljóðkerfa Egilsbúðar og Tónlistarmiðstöðvar ásamt gögnum frá HjóðX og Exton. Farið yfir niðurstöður úttektarinnar.
Stjórn vísar umfjöllun um hljóðkerfi til næsta fundar stjórnarinnar.
Stjórn vísar umfjöllun um hljóðkerfi til næsta fundar stjórnarinnar.
3.
Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Framlagt minnisblað um stöðu hönnunar sýningar ásamt greinargerð um stöðu fyrsta áfanga og framkvæmdir sem eru framundan við að ljúka honum. Jafnframt er lagt fram minnisblað um stöðu framkvæmda við annan áfanga uppbyggingarinnar.
Stjórn tekur málið fyrir að nýju á næsta fundi og óskar eftir að fá tímasetta verkáætlun verkáfanga sem eftir eru.
Stjórn tekur málið fyrir að nýju á næsta fundi og óskar eftir að fá tímasetta verkáætlun verkáfanga sem eftir eru.
4.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2027
Framlagðar upplýsingar um styrkumsóknir vegna ársins 2027.
5.
Umsókn um styrki vegna fornleifarannsókna
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu stjórnar menningarstofu erindi Félags áhugafólks um fornleifarannsóknir á Stöðvarfirði varðandi styrk til framhald fornleifagraftrar.
Stjórn samþykkir að styrkja verkefnið um sömu fjárhæð og verið hefur.
Stjórn samþykkir að styrkja verkefnið um sömu fjárhæð og verið hefur.
6.
Ársreikningur Sjóminjasafns Austurlands 2025
Framlagður til staðfestingar ársreikningur Sjóminjasafns Austurlands fyrir árið 2025 ásamt árskýrslu fyrir safnið.
Stjórn staðfestir ársreikning Sjóminjasafns Austurlands 2025.
Stjórn staðfestir ársreikning Sjóminjasafns Austurlands 2025.