Fara í efni

Gjaldskrár

Fjölskyldusvið

Egilsbúð

Aðstaða 1-4 tímar 4-8 tímar Sólahringur Pr. tíma Þrif Gæsla

Stórsalur og svið

36.880 kr.

73.610 kr.

98.080 kr.

(1)

Tónleikahaldari

Hljóðmaður

10.600 kr.

Eldhús

0 kr.

0 kr.

0 kr.

0 kr.

0 kr.

Fundarsalur 1

12.310 kr.

24.620 kr.

49.090 kr.

Fundarsalur 2

18.490 kr.

36.830 kr.

61.300 kr.

Salur

18.490 kr.

36.830 kr

61.300 kr.

Tónleikahald og aðrir menningarviðburðir samkvæmt gjaldskrá. 

STEF gjald er innheimt af Fjarðabyggð og bætist við leigu nema um annað sé samið. 

STEF gjaldið er breytilegt eftir fjölda gesta og fyrirkomulagi tónlistarflutnings.

Viðburðir í húsinu sem kalla sérstaklega á aukin þrif eru ekki innifalin í leigu.(1)  Leigutaka ber að greiða tjón sem verða kann á húsnæði og innanstokksmunum vegna  viðburða. Leigutaka ber að upplýsa forráðamann um tjón sem verður á húsnæði eða búnaði. 

Leigusamningur skal gerður um hverja útleigu.

Skrúður

Aðstaða 1-4 tímar 4-8 tímar Sólarhringur Þrif Gæsla

Stór og lítill salur húsið allt (2)

18.490 kr.

40.680 kr.

73.770 kr.

(1)

Tónleikahaldari

Einkasamkvæmi allt húsið (2)

0 kr.

0 kr.

52.940

(1)

Stór salur, svið ásamt áföstum kaffisal fyrir stærri fundi, kvikmyndasýningar, leiksýningar,  dansleiki og tónleikahald. Búnaður í húsinu er m.a. hljóðkerfi, myndvarpi og sýningartjald.

Innifalið í leigu eru afnot af eldhúsi og búnaði. Tónleikahald og aðrir menningarviðburðir samkvæmt gjaldskrá. 

STEF gjald er innheimt af Fjarðabyggð og bætist við leigu nema um annað sé samið. STEF gjaldið er breytilegt eftir fjölda gesta og fyrirkomulagi tónlistarflutnings.

(1) Almennt gildir að leigutaki þrífi húsnæði áður en því er skilað nema samið sé um annað við Slysavarnardeildina Hafdísi. Hægt er að fá keypt þrif en við það hækkar leiga sem nemur  kostnaði við þrifin. Upphæð er breytileg.

(2) Hægt er að fá keypta aðstoð við hljóð- og tæknivinnu vegna tónleika- og annarra viðburða en um slíka þjónustu er samið sérstaklega við Slysavarnardeildina Hafdísi. 

Leigutaka ber að skila húsnæði og búnaði í sama ásigkomulagi í lok leigutíma og greiða tjón sem verða kann á húsnæði, búnaði og innanstokksmunum.

Leigusamningur skal gerður um hverja útleigu og húsnæðið skal tekið út eftir hverja útleigu.

Valhöll

Aðstaða 1-4 tímar 4-8 tímar Sólarhringur Þrif Gæsla

Stór salur / svið (2)

24.620 kr.

49.090 kr.

98.080

(1)

Tónleikahaldari

Salur með bar og anddyrissalur

18.440 kr.

36.830 kr

(1)

Innifalið í leigu eru afnot af eldhúsi og búnaði.

Leiga á húsnæðinu vegna styttri funda stendur til boða og er þá leigugjald 12.060 krónur.

STEF gjald er innheimt af Fjarðabyggð og bætist við leigu nema um annað sé samið. STEF gjaldið er breytilegt eftir fjölda gesta og fyrirkomulagi tónlistarflutnings.

(1) Almennt gildir að leigutaki þrífi húsnæði áður en því er skilað nema samið sé um annað við Vini Valhallar. Hægt er að fá keypt þrif en leiga hækkar sem nemur kostnaði við þrifin. Upphæð er breytileg. 

(2) Hægt er að fá keypta aðstoð við hljóð- og tæknivinnu vegna tónleika- og annarra viðburða en um slíka þjónustu er samið sérstaklega við Vini Valhallar. 

Leigutaka ber að skila húsnæði í sama ásigkomulagi í lok leigutíma og greiða tjón sem verða kann á húsnæði og innanstokksmunum.

Leigusamningur skal gerður um hverja útleigu.

Útleiga félagsmiðstöðva í Neskaupstað, á Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði, Stöðvarfirði og á Breiðdalsvík.

Útleiga á félagsmiðstöðvum Verð

1-4 tímar

18.500 kr.

4-8 tímar

36.800 kr.

8-12 tímar

49.000 kr.

24 tímar

61.000 kr.

Leigutaka ber að ganga snyrtilega um allt húsnæði og taka með sér allt rusl og aðra muni. 

Leigusali áskilur sér þann rétt að rukka aukalega fyrir öll aukaþrif.

Gjaldskrá Tónlistarskóla Fjarðabyggðar

Gildir frá 1. maí 2026

Námsgjöld (á önn)

Námstegund Tímalengd á viku 20 ára og yngri 21 árs og eldri
Fullt nám 60 mínútur 40.026 kr. 82.472 kr.
Hlutanám 40 mínútur 32.021 kr. 65.978 kr.
Hálft nám 30 mínútur 26.820 kr. 55.261 kr.
Hópnám 60 mínútur 23.886 kr. 49.220 kr.
Hljóðfæraleiga - 8.378 kr. 8.631 kr.

Afsláttarkjör

Ef tveir eða fleiri aðilar úr sömu fjölskyldu eru í fullu tónlistarnámi greiðir sá sem greiðir hæsta gjaldið fullt gjald en aðrir í fjölskyldunni fá:

  • 50% afslátt af einstaklingstímum
  • 25% afslátt af hópnámstímum

Reglur um niðurfellingu gjalda

  • Ef um veikindi barns er að ræða sem vara 4 vikur eða lengur er hægt að fella niður helming tónlistarskólagjalda gegn framvísun læknisvottorðs.
  • Ef um veikindi kennara er að ræða sem vara 4 vikur eða lengur og ekki er hægt að útvega forfallakennslu eru tónlistarskólagjöld felld niður sem því nemur.
  • Forföll langveikra barna og niðurfelling gjalda vegna þeirra eru metin í hvert sinn af tónlistarskólastjóra.

 

GJALDSKRÁ FYRIR SUNDLAUGAR Í FJARÐABYGGÐ

Kort gilda í allar sundlaugar Fjarðabyggðar
Gildir frá 1. maí 2026

Ungmenni (16–17 ára)

Tegund Verð
Stakt gjald325 kr.
10 skipti*1.814 kr.
3 mánaða kort6.509 kr.
6 mánaða kort9.356 kr.
Árskort15.966 kr.

Fullorðnir (18 ára og eldri)

Tegund Verð
Stakt gjald1.145 kr.
10 skipti*6.926 kr.
3 mánaða kort17.363 kr.
6 mánaða kort28.824 kr.
Árskort46.230 kr.

Annað

Þjónusta Verð
Leiga á sundfötum/handklæði (pr. stk.)728 kr.
Gufubaðsklúbbar (leiga fyrir hóp í hvert skipti)8.342 kr.
Endurprentun á Skidata persónugerðu korti1.188 kr.

Upplýsingar

  • Börn undir 16 ára aldri fá frítt í sund.
  • 50% afsláttur fyrir eldri borgara og öryrkja gegn framvísun örorkukorts frá TR.

Athugasemdir

* 10 skipta kort renna út eftir fjögur ár ef inneign er ekki nýtt innan þess tíma.
* 10 skipta kort gilda ekki fyrir hópa.

Gjaldskrá fyrir stuðningsþjónustu í Fjarðabyggð

skv. heimild 26. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og lög um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018

Gildir frá 1. maí 2026

Þjónustuþegar greiða fyrir aðstoð við almenn heimilisstörf, heimsendingu matar og akstur. Snjómokstur er innheimtur sérstaklega.

Aðstoð við almenna stuðningsþjónustu

Fullt gjald fyrir almenna stuðningsþjónustu er 1.868 kr. fyrir hvern unninn tíma. Aldrei er þó innheimt fyrir meira en tvo tíma á viku og er almenn þjónusta umfram það gjaldfrjáls.

Niðurfelling gjalds fyrir stuðningsþjónustu

Sótt er um niðurfellingu gjalda í gegnum íbúagátt Fjarðabyggðar. Umsóknir þarf að endurnýja árlega. Skili þjónustuþegi ekki inn umsókn og tekjuupplýsingum greiðir hann fullt gjald.

Niðurfelling gjalda gildir ekki fyrir heimsendingu matar eða akstur.

Heimsendur matur

Hver máltíð kostar 1.628 kr.

Akstur á vegum heimaþjónustu

  • Akstur innan þess byggðarkjarna sem þjónustunotandi á lögheimili er gjaldfrjáls.
  • Ferðir sem samþykktar eru í þjónustusamningi eða vegna sérfræðiaðstoðar eru greiddar 59 kr. á hvern km.
  • Fyrir aðrar ferðir utan byggðarkjarnans skal greitt skv. gjaldskrá Ferðakostnaðarnefndar fjármálaráðuneytis.

Snjómokstur

Snjómokstur er einungis veittur einstaklingum sem:

  • a) Falla undir lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og/eða
  • b) Eru eldri einstaklingar og/eða öryrkjar sem hafa nú þegar stuðningsþjónustu inn á heimili, geta ekki mokað sjálfir og búa ekki með einstaklingi sem er fær um að moka.

Snjómokstur er aðeins framkvæmdur samkvæmt beiðni félagsþjónustunnar. Sækja þarf um þjónustuna í gegnum íbúagátt.

Þessari þjónustu verður ekki sinnt fyrr en að forgangsmokstri er lokið eða samkvæmt ákvörðun verkstjóra.

Þjónusta Verð
Snjómokstur (handmokstur) 9.338 kr.
Vélmokstur (stungið út úr bílastæði) 17.960 kr.

Snjómokstur lýtur sömu reglum um niðurfellingu gjalda og önnur stuðningsþjónusta.

Innheimta

Gjöld eru innheimt mánaðarlega og berast reikningar í heimabanka. Greiðsluseðlar berast ekki með pósti nema sérstaklega sé óskað eftir því.

Tekjumark fyrir árið 2026

Við ákvörðun tekjumarka er miðað við upphæðir bóta almannatrygginga þann 1. janúar 2026.

Málskot

Heimilt er að skjóta ákvörðun um synjun á niðurfellingu gjalds fyrir stuðningsþjónustu til Úrskurðarnefndar velferðarmála, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík eða á www.urvel.is.

Skal það gert skriflega og innan þriggja mánaða frá því notanda var kunnugt um ákvörðun.

Gjaldskrá - Skíðamiðstöðin Oddsskarði

Gjaldskrá

Skíðamiðstöðin í Oddsskarði
Gildir frá 1. maí 2026

Lyftukort

  • 3 klst
  • Börn 1.756 kr.
  • Fullorðnir 4.889 kr.
  • Dagskort
  • Börn 2.115 kr.
  • Fullorðnir 5.742 kr.
  • Helgarpassi (föstudagur – sunnudagur)
  • Börn 3.405 kr.
  • Fullorðnir 10.534 kr.
  • Vetrarkort
  • Börn 12.610 kr.
  • Fullorðnir 29.634 kr.
  • Skólakort (fyrir framhalds- og háskólanema)
  • 21.389 kr.

Sérþjónusta

  • Opnun utan hefðbundins opnunartíma (4 tímar) 83.420 kr.
  • Leiga á skíðaskála 38.800 kr.

Skíðaleiga

  • Undir 110 cm (skíði, skór og stafir) 3.618 kr.
  • Yfir 110 cm (skíði, skór og stafir) 4.889 kr.
  • Bretti og skór 3.735 kr.
  • Stök skíði/bretti eða skór (börn) 2.037 kr.
  • Stök skíði/bretti eða skór (fullorðnir) 2.716 kr.
  • Hjálmar gjaldfrjálsir

Afslættir og upplýsingar

  • Börn 0–10 ára: Frítt
  • 67 ára og eldri & öryrkjar: 50% afsláttur
  • 20% afsláttur af vetrarkortum fyrir áramót
  • Hægt er að kaupa vetrarkort í sundlauginni á Eskifirði og í Neskaupstað og á netinu
Gjaldskrá - Líkamsræktarstöðvar Fjarðabyggðar

Gjaldskrá

Líkamsræktarstöðvar á Eskifirði, Norðfirði og Breiðdal

Kort gildir jafnt í allar stöðvarnar

Gildir frá 1. maí 2026

Líkamsrækt

Tegund Verð
Stakur tími1.601 kr.
10 tíma kort*9.525 kr.
Mánaðarkort12.819 kr.
3 mánaða kort31.292 kr.
6 mánaða kort44.911 kr.
12 mánaða kort56.939 kr.
Opnun utan hefðbundins opnunartíma970 kr.
12 mánaða kort fyrsta útkallshóps ** björgunarsveitanna í Fjarðabyggð 37.830 kr.

Ungmennaafsláttur: 25% fyrir 13–18 ára

Líkamsrækt + sund

Tegund Verð
Stakur tími1.601 kr.
10 tíma kort9.525 kr.
Mánaðarkort15.171 kr.
3 mánaða kort38.150 kr.
6 mánaða kort54.126 kr.
12 mánaða kort70.713 kr.

Afsláttur: 50% afsláttur fyrir eldri borgara og öryrkja (við framvísun örorkukorts frá TR)

Skilmálar og upplýsingar

  • 10 skipta kort renna út eftir 4 ár ef inneign er ekki nýtt innan þess tíma.
  • Öll tímabilskort eru gefin út sem plastkort eða QR kóði. ** á mánuði í minnst 3 mánuði.
  • Heimilt er að leggja kort í bið:
    • Lágmark: 7 dagar
    • Hámark: 4 vikur
    • Aðeins einu sinni á hverju tímabili
  • Nafnbreytingar á kortum eru ekki heimilaðar.
Gjaldskrá - Leikskólar Fjarðabyggðar

Gjaldskrá

Leikskólar í Fjarðabyggð

Gildir frá 1. maí 2026

Gjöld

Lýsing Verð
Almennt vistunargjald (allt að 30 klst./viku) – verð á klst.571 kr.
Almennt vistunargjald (umfram 30 klst./viku) – verð á klst.1.940 kr.
Viðbótargjald fyrir tíma fyrir kl. 8:00 (á mánuði)9.700 kr.
Viðbótargjald fyrir tíma eftir kl. 16:00 (á mánuði)4.850 kr.
Skráningardagur2.910 kr.
Morgunhressing2.724 kr.
Síðdegishressing2.724 kr.
Hádegismatur0 kr.

Dæmi um mánaðargjöld

Dvalarstundir á dag Án afsláttar Með tekjutengdum 50% afslætti Með hressingu Með hressingu + viðbótargjaldi Með 50% afslætti + hressingu + viðbótargjaldi
4 tímar11.427 kr.5.713 kr.14.150 kr.23.850 kr.13.287 kr.
5 tímar14.283 kr.7.142 kr.17.007 kr.26.707 kr.14.716 kr.
6 tímar17.140 kr.8.570 kr.19.864 kr.29.564 kr.16.144 kr.
7 tímar26.840 kr.13.420 kr.32.287 kr.41.987 kr.23.717 kr.
8 tímar36.540 kr.18.270 kr.41.987 kr.56.537 kr.30.992 kr.

Skipulag starfs innan leikskóla Fjarðabyggðar

  • Faglegt starf fer fram frá kl. 09:00 – 14:00 alla virka daga.
  • Frjáls tími, morgunverður og leikur: 07:45 – 09:00 og 14:00 – 16:15.

Sveigjanlegur dvalartími

Dvalartími er sveigjanlegur og getur verið breytilegur milli daga.

  • Lágmark: 20 klst./viku
  • Hámark: 42,5 klst./viku

Skráning fyrir annir:

  • 20. ágúst – haustönn
  • 20. desember – vorönn
  • 20. apríl – sumarönn

Dvalargjöld í leikskólum

Dvalargjöld í leikskólum Fjarðabyggðar eru reiknuð mánaðarlega og miðast við dvöl barns út frá fjölda klukkustunda á viku, án skráningardaga.

Almennt vistunargjald

Vistun allt að 30 klukkustundum á viku kostar 571 kr. á klukkustund, eða 11.427 kr. á mánuði fyrir vistun sem er að jafnaði 4 tímar á dag.

Vistun umfram 30 klukkustundir á viku kostar 1.940 kr. á klukkustund, eða 11.427 kr. + 9.700 kr. á mánuði fyrir vistun sem er að jafnaði 7 tímar á dag.

Viðbótargjöld

Greitt er viðbótargjald fyrir vistun utan hefðbundins tíma:

  • Kl. 7:45–8:00: 9.700 kr. á mánuði
  • Kl. 16:00–16:15: 4.850 kr. á mánuði

Skráningardagar og skert opnun

  • 20 skráningardagar á ári
  • Gjald: 2.910 kr. á dag
  • Leikskólar lokaðir 6 daga á ári (skipulagsdagar)
  • Lokað 24. og 31. desember
  • Stytting opnunartíma 4x á ári vegna starfsmannafunda
  • Dagsetningar skráningardaga eru breytilegar á milli ára í tengslum við:
  • Vetrarfrí grunnskóla, jólafrí, páskafrí.
  • Dagar samkvæmt ákvörðun hvers skóla s.s. við upphaf og lok sumarleyfis og á klemmudögum

Breytingar

  • Gagnkvæmur uppsagnarfrestur á dvalarsamningi miðast við 20. hvers mánaðar og tekur gildi næstu mánaðarmót á eftir. Hið sama gildir um breytingar á dvalarsamningi.

Innheimta

  • Greitt fyrirfram
  • Eindagi: 15. hvers mánaðar
  • Ógreitt í 2 mánuði = pláss fellur niður (eftir viðvörun)

Afslættir

Systkinaafsláttur

  • Fullt gjald fyrir barn í lengstri vistun
  • 50% afsláttur fyrir annað barn
  • Þriðja barn: ekkert gjald

Tekjutengdur afsláttur

  • Einstaklingar: undir 9.000.000 kr. – 50% afsláttur
  • Sambúð: undir 13.600.000 kr. – 50% afsláttur
  • Gildir ekki um fæðisgjöld
  • Sækja þarf um árlega fyrir 20. ágúst

Niðurfelling gjalda

  • Sumarleyfi: að lágmarki 4 vikur
  • Hægt að taka allt að 8 vikur (15. maí – 15. september)
  • Beiðni þarf að berast fyrir 20. apríl
  • Lokun vegna aðstæðna: gjöld felld niður
  • Veikindi barns ≥ 4 vikur: 50% afsláttur (með vottorði)

Gjaldskrá íþróttahúsanna í Fjarðabyggð

Gildir frá 1. maí 2026

Salirnir eru eingöngu leigðir út til íþróttastarfs. Ekki er heimilt að halda afmæli eða aðra sambærilega viðburði.

Staðsetningar

  • Neskaupstaður
  • Eskifjörður
  • Fáskrúðsfjörður
  • Reyðarfjörður
  • Stöðvarfjörður
  • Breiðdalsvík

Gjaldskrá

Leiga Verð
Salarleiga 1/3 salur (Neskaupstaður, Reyðarfjörður) 4.578 kr.
Salarleiga allur salur (Neskaupstaður, Reyðarfjörður) 9.797 kr.
Salarleiga (Eskifjörður, Stöðvarfjörður, Breiðdalsvík) 5.432 kr.
Spinningsalur (Reyðarfjörður) 4.462 kr.
Salarleiga (Fáskrúðsfjörður) 9.797 kr.

Fjarðabyggðarhöllin

Tegund leigu Verð
Tímaleiga – heill salur 28.712 kr.
Tímaleiga – 1/2 salur 17.247 kr.
Tímaleiga – 1/4 salur 11.495 kr.
Tímaleiga – frjálsíþróttasvæði 8.633 kr.
Tímaleiga – 1/1 salur
(2x í viku, lágmark 3 mánuðir)
21.825 kr.
Tímaleiga – 1/2 salur
(2x í viku, lágmark 3 mánuðir)
14.793 kr.

Skilmálar

Leigutaki ber ábyrgð á að ganga snyrtilega um húsnæðið og taka með sér allt rusl og aðra muni að leigu lokinni.

Leigusali áskilur sér rétt til að rukka aukalega fyrir aukaþrif ef þess gerist þörf.

Gjaldskrá fyrir leigu á íþróttahúsum í Fjarðabyggð undir stórviðburði

Gildir frá 1. maí 2026

Hægt er að leigja íþróttahúsin í Fjarðabyggð undir stórviðburði, svo sem ráðstefnur, tónleika og árshátíðir. Leiga er háð því að húsin séu ekki upptekin á umræddum tíma.

Umsóknir skulu sendar til íþrótta- og tómstundafulltrúa með góðum fyrirvara.

Lágmarksleigutími er einn sólarhringur.

Verðskrá (sólarhringsleiga)

Staðsetning / tegund Verð Viðbótar sólarhringur
Neskaupstaður, Reyðarfjörður og Fáskrúðsfjörður 297.790 kr. 74.496 kr.
Reyðarfjörður (eldri salur), Eskifjörður og Stöðvarfjörður 134.830 kr. 36.860 kr.
Fjarðabyggðarhöllin – heill salur 441.350 kr. -
Fjarðabyggðarhöllin – hálfur salur 220.190 kr. -

Skilmálar

  • Leigutaki ber ábyrgð á að ganga snyrtilega um húsnæðið og taka með sér allt rusl og aðra muni að viðburði loknum.
  • Leigutaki sér um þrif nema annað sé sérstaklega samið.
  • Leigusali áskilur sér rétt til að rukka aukalega fyrir aukaþrif ef þess gerist þörf.
  • Skylt er að undirrita leigusamning þar sem fram koma kvaðir og skyldur leigutaka.

Gjaldskrá fyrir grunnskóla í Fjarðabyggð

Gildir frá 1. maí 2026

Gisting fyrir skóla- og íþróttahópa

Tegund Verð
Skólastofa, stór (>10), ein nótt 32.567 kr.
Skólastofa, lítil (<10), ein nótt 21.924 kr.
Aðgengi að eldhúsi 11.654 kr.

Fundir og veislur

Tegund Verð
Skólastofa eftir kl. 17:00 / helgar (allt að 4 klst.) 10.269 kr.

Salir í grunnskólum

Tegund Verð
Dagur (08:00–17:00), allt að 4 klst. 15.911 kr.
Kvöld (17:00–22:00) eða helgar, allt að 4 klst. 20.167 kr.
Salur, sólarhringur 36.132 kr.
Hver viðbótar klst. 2.820 kr.
Aðgengi að eldhúsi fyrir sal 13.782 kr.

Sérstofur

Heimilisfræðistofa

Dagur (14:00–18:00), allt að 4 klst. 13.782 kr.
Kvöld (18:00–22:00) eða helgar 20.167 kr.
Heill dagur / til kl. 20:00 26.554 kr.

Smíðastofa

Dagur (14:00–18:00), allt að 4 klst. 13.782 kr.
Kvöld (17:00–22:00) eða helgar 20.167 kr.
Heill dagur / til kl. 20:00 26.554 kr.

Skilmálar

  • Leigutaki skal undirrita leigusamning við skólastjóra viðkomandi skóla.
  • Annar búnaður er leigður samkvæmt ákvörðun skólastjóra.
  • Afsláttur vegna leigu lengur en þrjá sólarhringa er ákveðinn af skólastjóra.
  • Leigutaki skal ganga snyrtilega um húsnæðið og skila því hreinu.
  • Húsgögnum og búnaði skal skila í sama ástandi og uppsetningu.
  • Leigusali getur rukkað fyrir aukaþrif og útköll.
Þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk samkvæmt heimild í 20. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra

Gildir frá 1. maí 2026

Þjónustugjald

Þjónustugjald í þjónustuíbúðum fyrir eldra fólk í Breiðabliki í Neskaupstað er:

4.031 kr. á mánuði

Þjónustugjaldið leggst við húsaleigu og hússjóð samkvæmt 20. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra.

Gjaldskrá fyrir frístundaheimili í Fjarðabyggð

Gjaldskrá þessi á við um skólafrístund, vetrarfrístund, sumarfrístund og lengda viðveru.

Gildir frá 1. maí 2026

Frístund – gjaldskrá

Þjónusta Gjald
Frístund (fram að kl. 16:00) 369 kr. / klst.
Frístund eftir kl. 16:00 369 kr. / 15 mín.

Vistun fram yfir kl. 16:00 kostar 369 kr. á dag.

Systkinaafsláttur

Systkinaafsláttur er milli vistunargjalds á frístundaheimili og vistunargjalds í leikskóla.
  • Fullt gjald fyrir barn í lengstri vistun.
  • 50% afsláttur fyrir annað barn.
  • Frítt fyrir þriðja barn.

Greiðslur og uppsagnir

  • Gjaldið greiðist mánaðarlega.
  • Uppsagnarfrestur er til 20. hvers mánaðar og tekur gildi 1. næsta mánaðar.
  • Breytingar á vistun fara eftir sömu reglu.
  • Ef greiðsla dregst í tvo mánuði getur vistun verið felld niður að undangenginni viðvörun.

Réttur til gjaldfrjálsrar vistunar

Nemendur í 1.–4. bekk sem bíða eftir skólaakstri eiga rétt á gjaldfrjálsri vistun á meðan beðið er.

Tekjutengdur afsláttur

  • Einstaklingar undir 9.000.000 kr.: 50% afsláttur.
  • Sambúðarfólk undir 13.600.000 kr.: 50% afsláttur.

Tekið er mið af meðaltekjum síðustu 12 mánaða samkvæmt staðgreiðsluskrá.

Sótt er um afslátt rafrænt í íbúagátt og skila þarf staðgreiðsluskrá. Umsókn skal endurnýja árlega, eigi síðar en 20. ágúst.

Reglur um niðurfelling gjalda

  • Helmingur gjalda fellur niður við veikindi barns í 4 vikur eða lengur með læknisvottorði.
  • Langveik börn eru metin sérstaklega af skólastjóra í hverju tilviki.

Gjaldskrá bókasafna í Fjarðabyggð

Gildir frá 1. maí 2026

Bókasafnsskírteini

  • Bókasafnsskírteini eru gjaldfrjáls fyrir íbúa Fjarðabyggðar.
  • Árskort fyrir aðra en íbúa: 2.716 kr.

Sektir

Tegund Gjald
Dagsekt á hvert gagn 97 kr.
Hámarkssekt á hvert gagn 2.910 kr.
Hámarkssekt á hvern einstakling 7.760 kr.

Önnur útlán

  • Útlán til skipa – 25 bækur í kassa: 4.365 kr.

Gögn glatast

Ef gögn glatast eða skemmast í vörslu lánþega er verðmæti eldri gagna metið hverju sinni, en innkaupsverð gildir um gögn sem eru innan við tveggja ára gömul.

Millisafnalán

  • Millisafnalán utan Fjarðabyggðar – lánþegi greiðir sendingarkostnað skv. gjaldskrá Póstsins.

Lánstími

  • Heimilt er að hafa eldri bækur að láni í 30 daga.
  • Heimilt er að hafa nýjar bækur að láni í 14 daga.
  • Heimilt er að hafa tímarit að láni í 14 eða 30 daga eftir ritum.

Hámarksútlán

  • 4 bækur.
  • Hámarksútlán nýrra bóka: 1 bók.

Skipulags- og framkvæmdasvið

Gjaldskrá þessi gildir bara sem Fjarðabyggð sem sjálfstæður aðili eða í samstarfi við fyrirtæki sem annast rekstur fjarskiptakerfa og eða lagningu stofn- eða dreifikerfa af hverju tagi leggur heimtaugar í dreifbýli sem hluta af verkefninu Ísland ljóstengt. Eigendur fasteigna í dreifbý1i eiga þess kost að tengjast óvirkum hluta ljósleiðarakerfis þar sem sveitarfélagið hefur með styrkveitingu Fjarskiptasjóðs eða annarra aðila, ákveðið að byggja upp ljósleiðarakerfi í samstarfi við fjarskiptafyrirtæki. Styrkhæfir tengistaðir þurfa að uppfylla skilyrði skilmála verkefnisins Ísland ljóstengt.

Skilyrði styrkveitingar er að fasteign sé tengd ljósleiðaraheimtaug sem tilbúin er til virkrar notkunar.

Tengigjald styrkhæfra  tengistaða er 250.000 kr. sem greiðist af eiganda fasteignar. 

Virðisaukaskattur er ekki lagður á fjárhæð. Tengigjald er á gjalddaga þegar notandi leggur fram ósk um tengingu virks búnaðar.

Tengigjald óstyrkhæfra tengistaða er 500.000 kr. sem er grunngjald og greiðist af eiganda fasteignar. Virðisaukaskattur er ekki lagður á fjárhæð grunngjalds. Nemi kostnaður við lagningu heimtaugar hærri fjárhæð greiðist raunkostnaður við heimtaugina. Tengigjald er á gjalddaga þegar lagningu heimtaugar er lokið.

Ljósleiðarheimtaug er frágengin að fullu frá stofnstreng og inn fyrir húsvegg til notanda sem óvirkur hluti kerfis.

Línuleigugjald ljósleiðaraheimtauga í eigu sveitarfélagsins bar sem rekstri er ekki útvist er kr. 2.300 á mánuði án virðisaukaskatts og innheimtuþóknunar endursöluaðila. 

Línuleigugjald og stafræn þjónustugjöld eru innheimt af fjarskiptafyrirtækjum.

Ljósleiðarakerfi er opið þeim aðilum sem selja stafræna þjónustu til notenda.

Ljósleiðaraheimtaugar eru eign sveitarfélagsins í 10 ár eftir að lagningu heimtaugar lýkur, en eign notanda að þeim tíma liðnum hafi sveitarfélagi ekki ráðstarfað ljósleiðarakerfi annað. 

Notandi ljósleiðaraheimtaugar greiðir allan viðhaldskostnað frá þeim tíma sem heimtaugin verður virk en selji sveitarfélagið ljósleiðarakerfið gilda skilmálar sölu.

Lagning heimtaugar og tenging hennar er framkvæmd af þeim jarðvinnuverktaka sem annast ljósleiðaralagningu með samkomulagi sveitarfélagsins og aðila sem standa að verkinu. í öllum tilfellum er miðað við að fyrir liggi samkomulag við viðkomandi landeiganda og að fullt samráð verði haft við hann varðandi lagnaleiðir.

Álagning fasteignagjalda 2026

Álagning fasteignagjalda í Fjarðabyggð er sem hér segir:

  • Fasteignaskattur A verði 0,400 % 1 af húsmati og lóðarhlutamati
  • Fasteignaskattur B verði 1,32 % 2 af húsmati og lóðarhlutamati
  • Fasteignaskattur C verði 1,65 % 3 af húsmati og lóðarhlutamati.
  • Lóðarleiga íbúðarhúsnæðis verði 0,70 % af lóðarhlutamati.
  • Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis verði 3,00 % af lóðarhlutamati.
  • Vatnsgjald, fast gjald verði  5.179 kr. á hverja veitu og 424 kr. á hvern fermetra.
  • Fráveitugjald verði 0,3232 % af húsmati.

    Gjald vegna meðhöndlunar úrgangs vegna íbúðarhúsnæðis verður samkvæmt sérstakri gjaldskrá og eru gjöld mismunandi eftir úrgangsflokki og stærð íláta. Jafnframt verður lagt á fast gjald til reksturs grenndar- og móttökustöðva á allar fasteignir sveitarfélagsins í samræmi við lög um meðhöndlun úrgangs.  Gjöldin verði innheimt með fasteignagjöldum.

    Fjöldi gjalddaga verði tíu – mánaðarlega frá 1. febrúar.  Eindagi fasteignagjalda er síðasti virki dagur gjalddagamánaðar. 

1)  Íbúðarhúsnæði og eignir skv. 2.gr. reglugerðar um fasteignaskatt nr. 1160/2005 sbr. lög um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

2) Sjúkrastofnanir og eignir skv. 3.gr. reglugerðar um fasteignaskatt  nr. 1160/2005 sbr. lög um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

3) Atvinnuhúsnæði og annað húsnæði skv. 4.gr. reglugerðar um fasteignaskatt nr. 1160/2005 sbr. lög um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995

Reglur um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega árið 2026

  1. gr.

Tekjulágum ellilífeyrisþegum, 67 ára og eldri sem og örorkulífeyrisþegum með fulla örorku (75%) fyrir 1. janúar 2026 sem eiga lögheimili í Fjarðabyggð er veittur afsláttur af fasteignaskatti, samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Fjarðabyggðar ár hvert og reglum þessum, sbr. heimild í 4.mgr. 5 gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.   

Niðurfelling fasteignaskatts skal vera tekjutengd og miðuð við árstekjur 2025 samanber álagningu skattstjóra 2026 og er sem hér segir: 

a) Einstaklingar:     

  • Brúttótekjur allt að kr.    6.916.936       100  %  afsláttur

  • Brúttótekjur yfir kr.        9.147.489          0  %  afsláttur

b) Hjón og samskattað  sambýlisfólk:         

  • Brúttótekjur allt að kr.    10.505.945     100 %  afsláttur

  • Brúttótekjur yfir kr.       12.556.013          0  %  afsláttur

Afsláttur af fasteignaskatti er tekjutengdur og er allt að kr. . 128.524-.  Afsláttur er hlutfallslegur og reiknaður af fasteignaskatti viðkomandi eignar.  Tekið er tillit til allra skattskyldra tekna, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekna síðastliðins árs skv. skattframtali. Miðað er við sameiginlegar tekjur hjóna og samskattaðs sambýlisfólks. 

2. gr. 

Afsláttur af  fasteignaskatti miðast við að elli- og örorkulífeyrisþegar eigi og búi í því húsnæði sem afslátturinn er veittur af.  Rétt til afsláttar eiga einnig þeir elli- og örorkulífeyrisþegar sem búa á stofnunum og hafa lögheimili þar þrátt fyrir að þeir séu ekki með lögheimili í húsnæðinu.  Skilyrði er að húsnæðið sé eingöngu nýtt í eigin þágu, s.s. til tómstundaiðkunar. Réttur þessi er ekki til staðar ef atvinnustarfsemi fer fram í húsnæðinu eða húsnæðið er leigt út. 

Hjón og samskattað sambýlisfólk fær fullan afslátt þó einungis annar aðilinn uppfylli skilyrði 2. gr.  Ef um fleiri en einn íbúðareiganda er að ræða að eign, sem ekki uppfylla skilyrði um afslátt er veittur afsláttur skv. 1.gr í samræmi við eignarhlut þeirra.

3. gr.

Hafi orðið veruleg breyting á högum umsækjanda er fjármálasviði heimilt að víkja frá skilyrðum 2. gr. þessara reglna varðandi búsetu í íbúð og viðmiði um tekjumörk.

4. gr.

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar veitir Þjóðskrá leyfi til að sækja upplýsingar með öruggum hætti í gegnum vefþjónustu ríkisskattstjóra (RSK) um tekjuskattsstofn elli- og örorkulífeyrisþega vegna útreiknings afsláttar þeirra á fasteignaskatti og að gera samning við RSK þar að lútandi. 

5. gr.

Útreikningur fasteignaskattsafsláttar á álagningarseðli fasteignagjalda sem gefinn er út í byrjun febrúar miðast við tekjur ársins 2024 til bráðabirgða og tekjuviðmiðun ársins 2025. Afslátturinn er síðan endurskoðaður þegar álagning skatta ársins 2025 liggur endanlega fyrir vegna eftir álagningu  2026 og er þá miðað við tekjuviðmiðunina skv.1. gr.

1. gr.
Almenn heimild.
Af öllum nýbyggingum og viðbyggingum í þéttbýli í Fjarðabyggð skal greiða gatnagerðargjald samkvæmt samþykkt þessari, sbr. 12. gr. laga um gatnagerðargjald nr.153/2006.

2. gr.
Ráðstöfun gatnagerðargjalds.
Gatnagerðargjaldi skal varið til gatnagerðar í sveitarfélaginu og viðhalds gatna og annarra gatnamannvirkja.
Tekjum sveitarfélagsins vegna byggingarleyfis- og þjónustugjalda skipulags- og framkvæmdasviðs skal varið til að standa undir hluta kostnaðar vegna þjónustu  sveitarfélagsins við lóðarhafa og byggingaraðila. Stofngjöld fráveitu og vatnsveitu og byggingarleyfisgjöld eru innheimt sérstaklega og ekki innifalin í gatnagerðargjaldi.

3. gr.
Gjaldstofn gatnagerðargjalds.
Gatnagerðargjald er tvíþætt. Annars vegar er það vegna nýrra bygginga og hins vegar vegna stækkunar á eldra húsnæði.
Stofn til álagningar gatnagerðargjalds er fermetrafjöldi byggingar á tiltekinni lóð skv. lágmarks nýtingarhlutfalli eða meira. Gjaldstofninn er ákveðinn á eftirfarandi hátt:
a)    Þegar sveitarfélagið úthlutar lóð eða selur byggingarrétt á lóð er gatnagerðargjald lagt á í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem heimilt er að reisa á viðkomandi lóð samkvæmt gildandi deiliskipulagi, nýtingarhlutfall skal að lágmarki vera 0,25.
b)    Þegar gatnagerðargjald verður ekki lagt á skv. a-lið, eða ef byggingarleyfi er veitt fyrir stærri byggingu en álagning skv. a-lið var upphaflega miðuð við, er við útgáfu byggingarleyfis lagt á gatnagerðargjald í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingc)    ar sem byggingarleyfi tekur til.
Við álagningu skv. b-lið 2. mgr. skal miða við stærð húss samkvæmt samþykktum uppdráttum og ÍST 50.

4. gr.
Útreikningur gatnagerðargjalds.
Gatnagerðargjald er reiknað út frá tilgreindu nýtingarhlutfalli lóðar sbr. 3. gr. Sé þess óskað að byggja meira en nýtingarhlutfall lóðar segir til um skal greiða gatnagerðargjald miðað við það nýtingarhlutfall.
Sveitarstjórn er heimilt í sérstökum tilvikum að hækka eða lækka gatnagerðagjöld á einstökum lóðum eða svæðum, sbr. 6. gr. laga 153/2006.

Af hverjum fermetra samkvæmt skilgreindu nýtingarhlutfalli eða af fermetrafjölda byggingar sé hann hærri tala skal greiða ákveðinn hundraðshluta byggingarkostnaðar, pr. fermetra vísitöluhúss fjölbýlis, eins og hann er samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands á grundvelli laga nr. 42/1987
(313.173 kr./m2,) m.v. byggingarvísitölu fyrir október 2025.

Hundraðshluti byggingarkostnaðar ákvarðast eftir hústegund svo sem hér segir:
Einbýlishús með eða án bílageymslu 6,3 %
Par-, rað- og keðjuhús, með eða án bílageymslu 6,3 %
Fjölbýlishús með eða án bílageymslu ( fleiri en 6 íbúðir) 2,7%
Verslunar-, skrifstofu - og þjónustuhúsnæði 6,6 %
Iðnaðar- og geymsluhúsnæði 3,8 %
Gripahús í þéttbýli 3,8 %

Þegar veitt er byggingarleyfi fyrir endurbyggingu, breytingu eða breyttri notkun húsnæðis þannig að hún færist í hærri gjaldflokk, sbr. 1. mgr. skal greiða gatnagerðargjald sem svarar til mismunar hærri og lægri gjaldflokksins. Lóðarhafi, eða byggingarleyfishafi þar sem það á við, á ekki rétt á endurgreiðslu ef bygging færist í lægri gjaldflokk við slíka breytingu.

5. gr.
Undanþágur frá greiðslu gatnagerðargjalds.
Undanþegnar greiðslu gatnagerðargjalds eru eftirtaldar byggingar:
a.     Lagnakjallarar og aðrir gluggalausir kjallarar, sem aðeins er gengið í innan frá.
b.       Óeinangruð smáhús, minni en 6 fermetrar. Fyrir stærri hús er greitt sama gatnagerðargjald og fyrir hesthús.
c.        Sameiginlegar bifreiðageymslur fyrir þrjár eða fleiri bifreiðar.

6. gr.
Sérstök lækkunarheimild gatnagerðargjalds.
Sveitarstjórn er heimilt skv. 6. gr. laga 153/2006 að lækka eða fella niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður, svo sem vegna þéttingar byggðar, atvinnuuppbyggingar, lítillar ásóknar í viðkomandi lóð eða eftirspurnar eftir leiguhúsnæði.

7. gr.
Greiðsluskilmálar.
Gjalddagar gatnagerðargjalds skulu vera sem hér segir:
    a. Við lóðarúthlutun skal greiða 50% gatnagerðargjalds.
Hafi ekki verið lagt bundið slitlag á viðkomandi götu við lóðarúthlutun skal einungis greiða 20% gjaldsins við lóðarúthlutun og 30% við lagningu bundins slitlags.
    b. Við útgáfu byggingarleyfis skal greiða 25%.
    c. Þegar hús er fokhelt skal greiða 25%.

Af gjaldföllnu gatnagerðargjaldi skulu greiðast dráttarvextir, skv. ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.   Eindagi gjalda skv. gjaldskrá þessari er 30 dögum eftir gjalddaga.  
Hafi gjöldin eigi verið greidd fyrir eindaga, fellur úthlutun lóðarinnar úr gildi.   Umsækjandi lóðar, sem fengið hefur sömu lóð úthlutað á ný og greiðir ekki innan greiðslufrests, fær ekki úthlutað lóð í þriðja sinn, nema fyrir liggi greiðsla gatnagerðargjalda.

8. gr.
Ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds. Lögveðsréttur.
Lóðarhafi leigulóðar og eigandi eignarlóðar ber ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds. Gatnagerðargjald er ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði tryggt með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign með forgangsrétti fyrir hvers konar samnings- og aðfararveði.

9. gr.
Endurgreiðsla gatnagerðargjalds.
Gatnagerðargjald skal endurgreitt í eftirtöldum tilvikum:
    a)     Ef lóðarhafi skilar úthlutaðri lóð eða ef lóðarúthlutun er afturkölluð.
    b)     Ef gatnagerðargjald hefur verið greitt í tengslum við útgáfu byggingarleyfis, en leyfið fellur úr gildi.
Gatnagerðargjald skal endurgreitt innan 90 daga ef lóð er afturkölluð skv. a-lið. Sama gildir um gatnagerðargjald sem lagt hefur verið á í tengslum við útgáfu byggingarleyfis, sbr. b-lið, en þá skal gatnagerðargjald endurgreitt innan 90 daga frá því að byggingarleyfishafi hefur sannanlega krafist endurgreiðslu.
Gatnagerðargjald skal endurgreitt og verðbætt, án vaxta, miðað við breytingu á vísitölu neysluverðs frá því lóðarhafi greiddi gatnagerðargjaldið til endurgreiðsludags.
Um endurgreiðslu fer að öðru leyti skv. 9. gr. laga um gatnagerðargjald nr.153/2006.

10. gr.
Eldri samningar og skilmálar um gatnagerðargjöld.
Um samninga um gatnagerðargjöld af tilteknum lóðum, sem lóðarhafar eða lóðareigendur hafa gert við Fjarðabyggð fyrir gildistöku gjaldskrár þessarar, svo og skilmálar varðandi gatnagerðargjöld, sem sveitarstjórn hefur sett fyrir sömu tímamörk og lóðarhafi og lóðareigandi hefur undirgengist, fer eftir þágildandi gjaldskrám.

11. gr.
Afsláttur á árinu 2025.
Gefinn verður allt að 50 % afsláttur á gatnagerðagjöldum fyrir íbúðarlóðir á árinu 2025 en 75 % aflsáttur á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík vegna byggðarsjónamiða.
Skilyrði fyrir veitingu afsláttar eru eftirfarandi:  
að lóðarumsókn eða viðbygging sé í skipulögðu eða byggðu hverfi.
að lokið hafi verið við lagningu allra heimæða og að yfirborð götu sé malbikað.
að byggingarframkvæmdir hefjist á árinu 2025.
að umsækjandi sé skuldlaus við sveitarfélagið.

Skipulags- og framkvæmdanefnd er enn fremur heimilt að lækka eða fella niður gjöld vegna sér-hæfðs félagslegs húsnæðis, svo sem sambýla fyrir fatlað fólk, þjónustuíbúða fyrir aldraða og félags¬legs leiguhúsnæðis enda sé slíkt húsnæði í eigu stofnana, félagasamtaka eða félaga sem ekki eru rekin í ágóðaskyni. Þinglýsa skal kvöð á umrætt húsnæði um að greiða skuli gatnagerðargjald af því ef það fellur af einhverjum ástæðum ekki lengur undir ákvæði þetta.

12. gr.
Einingarverð og gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett fram með heimild í lögum nr. 153/2006 um gatnagerðargjald og öðlast gildi 1. janúar 2026 eftir birtingu þessarar auglýsingar. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1436/2024.

Fjarðabyggð 
27. nóvember 2025

Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
 

1.gr

Fjarðabyggð selur afnot af rafhleðslustöðvum og raforku fyrir bíla samkvæmt gjaldskrá þessari.

2.gr
Raforka sem seld er miðast við afköst að 11kWh. á klukkustund.

3.gr.
Afnot af hleðslustöð er veitt með sérstakri hleðslulausn sem felur í sér sjálfvirka aðgangsstýringu og afgreiðslu notanda ásamt greiðslumiðlun fyrir afnot af stöðinni og seldri orku. Notandi staðgreiðir veitta þjónustu með bankakortum sem tengd eru hugbúnaði (application) en notandi skráir sig sem notenda að.

4.gr.
Verð fyrir afnot af rafmagni er eftirfarandi:

Samkvæmt mæli fyrir hverja kílóvattstund: 

Hleðslustöðvar í Fjarðabyggð Eining Án vsk. Með 24% vsk

Kr./kWh

26,53 kr.

32,90 kr.

 

1. gr. Lög og reglur

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar innheimtir gjöld vegna urðunar á úrgangi í Þernunesi, sbr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.

2. gr. Þjónustugjald á urðunarstað

Viðskiptavinir greiða fyrir úrgang eftir þyngd (kr/kg) samkvæmt gjaldskrá. 

Gjöld vegna móttöku og/eða meðhöndlunar úrgangs á móttökustöð í Þernunesi eru eftirfarandi:

Blandaður/grófur úrgangur Timbur Múrbrot Aðrir flokkar heimilaðir á urðunarstað

kr./kg. með VSK

76

58

76

60*

*Ef vinna þarf úrgang sérstaklega fyrir urðun er heimilt að innheimta tímagjald skv. gjaldskrá.

3. gr Starfsreglur á urðunarstað

  1. Öll losun skal fara fram í samráði við rekstraraðila, Fjarðabyggð.
  2. Flutningsaðilum ber að virða opnunartíma urðunarstaðarins og nýta sér hann eftir fremsta megni. Ef flutningsaðili þarf að losa sorp utan opnunartíma ber að tilkynna það til rekstraraðila með hæfilegum fyrirvara eða að lágmarki tveimur klukkustundum.
  3. Allur úrgangur skal umfangsminnkaður áður en hann berst á urðunarstað þar á meðal pressanlegur úrgangur sem skal berast pressaður.
  4. Aðeins fyrirtækjum með starfsleyfi til að flytja úrgang er heimilt að koma með úrgang beint í móttökustöðina í Þernunesi nema að fenginni undanþágu hjá Fjarðabyggð.
  5. Ekki er heimilt að flytja úrgang sem á uppruna sinn utan sveitarfélagsins á urðunarstað án leyfis Fjarðabyggðar. Fjarðabyggð getur með samþykki lagt 50% hærra gjald á slíkan úrgang en segir í 2. mgr.
  6. Flutningsaðili ber ábyrgð á þeim farmi sem hann flytur inn á urðunarstaðinn þar til hann hefur verið móttekinn. Förmum sem innihalda úrgang sem óheimilt er að losa á urðunarstað skv. reglugerð nr. 738/2003, eða úrgang sem væri hæfur til endurvinnslu, verður hafnað. Komi í ljós að farmur innihaldi slíkan úrgang eftir að losun fer fram skal flutningsaðili bera allan kostnað við að fjarlægja hann. Auk þess getur sveitarfélagið dregið til baka heimild til farmlosunar á urðunarstað.
  7. Rekstraraðili urðunarstaðar áskilur sér rétt til að hafna losun á urðunarstað þegar vindstyrkur fer yfir 10 m/sek. eða vindátt stendur þannig að losun sorps sé ekki viðráðanleg.
  8. Við komu á urðunarstaðinn fer fram vigtun og skráning ásamt greiningu á gerð farms og uppruna hans. Starfsmaður sér um skráningu í samstarfi við flutningsaðila.

4. gr. Aðrar heimildir

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar er heimilt að gera sérstaka samninga um móttöku úrgangs og aðra þjónustuþætti, þegar um er að ræða afmarkaðri eða víðtækari þjónustu en gjaldskrá tekur til svo sem múrbrot og malbik.

5. gr. Staðfestingar og gildistaka

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af bæjarstjórn Fjarðabyggðar með stoð í samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð nr. [ ], sbr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum.  Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1536/2024. 

1.gr 

Samþykktir, lög og reglur

Fjarðabyggð annast sorphirðu frá öllu íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu. Bæjarstjórn skal innheimta gjald samkvæmt gjaldskrá þessari fyrir meðhöndlun úrgangs samkvæmt samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð nr. [ ], sbr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.

2.gr. 

Sorphirðugjald

Fjarðabyggð felur verktaka framkvæmd sérstakrar söfnunar úrgangs frá öllu íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu sem er flokkað í fjóra flokka í þrjú eða fjögur ílát:

Þriggja tunnu kerfi 1:

  • 240 L tvískipt tunna fyrir matarleifar og blandaðan úrgang.
  • 240 L tunna fyrir pappír og pappa
  • 240 L tunna fyrir plast

Þriggja tunnu kerfi 2: 

  • 240 L tvískipt tunna fyrir matarleifar og blandaðan úrgang.
  • 240 L tunna fyrir pappír og pappa
  • 140 L tunna fyrir plast

Heimili geta valið að hafa fjögur ílát en greiða þá aukagjald fyrir fjórðu tunnuna (blandaðan úrgang) samkvæmt neðangreindri gjaldskrá.

Fjögurra tunnu kerfi::

  • 240 L tunna fyrir blandaðan úrgang
  • 140 L tunna fyrir lífrænan úrgang
  • 240 L tunna fyrir pappír og pappa
  • 240 L tunna fyrir plast
Gjaldflokkur nr.Tegund úrgangs / ílátsStærð ílátsGjald kr. / ílát á ári
530240Tvískipt tunna240 L36.232
510240Blandaður240 L39.500
510660Blandaður660 L108.625
511100Blandaður1100 L181.625
520140Lífrænn úrgangur140 L14.245
550240Pappír og pappi240 L14.000
550660Pappír og pappi660 L38.500
551100Pappír og pappi1100 L64.500
560140Plast140 L11.000
560240Plast240 L14.000
560660Plast660 L38.500
561100Plast1100 L64.500

Íbúðir í fjölbýli greiða hlutfall af kostnaði sorpíláta miðað við eignarhlut í sameign, sbr. 43. og 45. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús, og reglugerð nr. 910/2000. Útreikningur hlutfallstölu skal byggður á reglugerð um eignaskiptayfirlýsingar, útreikning hlutfallstalna o.fl. í fjöleignarhúsum. Stærðir og fjöldi íláta mega ekki vera minni en sem nemur 140 lítrum fyrir pappír og pappa, plast og blandaðan úrgang pr. íbúð. Við hvert fjölbýli skal að lágmarki vera 140 lítra ílát undir matarleifar.

3. gr.

Fast gjald

Fast gjald er lagt á allar fasteignir sveitarfélagsins árlega til að standa straum af veittri þjónustu tengdri málaflokknum og er ekki beintengt úrgangsmagni, s.s. umsýslu, fræðslu, hreinsun rusls á víðavangi, rekstri grenndarstöðva og aðgengi að söfnunarstöðvum með gjaldfrjálsan úrgang.

Álagningin er á fasteignir í a-, b-, og c- lið samkvæmt 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Gjaldflokkur nr.Tegund úrgangs / ílátsStærð ílátsGjald kr. / ílát á ári
590001a matshlutarHeimili

25.000

590002b og c matshlutar0 - 500 fm2

65.000

590003b og c matshlutar500 - 1000 fm2

85.000

590004b og c matshlutar1000 - 2500 fm2

105.000

590005b og c matshlutar2500 > fm2

125.000

590006c matshlutihúsnæði án atvinnustarfsemi

35.000

Gjaldið skal innheimt með fasteignagjöldum og er gjalddagi sorpgjalds hinn sami og fasteignagjalda. 

4. gr.

Önnur gjöld

Önnur gjöld sem heimilt er að innheimta vegna auka þjónustu:

  • Umsýslugjald er greitt í hvert skipti sem óskað er eftir breytingum á skráningu íláta. Umsýslugjaldið er 4.000 kr./skipti.

5. gr.

Þjónustugjöld á söfnunar- og móttökustöðvum 

Rekstraraðili annast rekstur á söfnunar- og móttökustöðvum fyrir úrgang í sveitarfélaginu og setur sér gjaldskrá vegna þessa. Gjöld rekstraraðila söfnunarstöðva fyrir gjaldskyldan úrgang mega að hámarki vera 25% hærri en gjöld fyrir urðun blandaðs úrgangs á urðunarstað samkvæmt 2. gr. í gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð.

Gjaldskyldur úrgangur er almennt óendurvinnanlegur úrgangur til urðunar. Dæmi um gjaldskyldan úrgang eru: blandaður heimilisúrgangur og grófur úrgangur s.s. húsgögn, gluggar og stærri úrgangur, timbur og hart plast. Matarleifar eru einnig gjaldskyldar en fara þó ekki í urðun.

Ekki er tekið gjald fyrir endurvinnanlegan úrgang sem ber úrvinnslugjald. Dæmi um gjaldfrjálsan úrgang eru: plastumbúðir, pappi og pappír, málmar, hjólbarðar, raftæki og ýmis spilliefni.

6. gr.

Innheimta

Gjalddagar gjalda skv. 2. gr. fylgja reglum um gjalddaga fasteignagjalda og er skipt jafnt niður á þá. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga, séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Gjalddagi gjalda skv. 2. og 3. grein er 1. hvers mánaðar og eindagi 15 dögum síðar.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

7. gr.

Staðfestingar og gildistaka

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af bæjarstjórn Fjarðabyggðar með stoð í samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð nr.[ ], sbr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum. Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1536/2024. 

Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála

Gildir frá 1. maí 2026

1. gr. Byggingarleyfisgjöld

1.1 Byggingarleyfi og tilkynningarskyldar byggingar

Byggingarleyfisgjald vegna nýbyggingar stærri en 15 m² er skipt í fast gjald og gjald fyrir hvern rúmmetra byggingar. Innifalið í gjaldinu er lögboðin meðferð erinda, lóðarblað, yfirferð teikninga, útsetning lóðar og byggingareits, öryggis- og lokaúttekt (eitt skipti á hvora) og eftirlit byggingarfulltrúa skv. byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Lýsing Gjald
Rúmmetragjald (byggingar >15 m²) 236 kr./m³
Byggingar 15–60 m² 124.293 kr.
Byggingar >60 m² 217.509 kr.
Yfirferð teikninga og umsýsla 15.538 kr./klst.
Vinna byggingarfulltrúa (umfram gjald) 22.294 kr./klst.
Aðkeypt yfirferð séruppdrátta skv. reikningi
Niðurrif mannvirkja 65.027 kr.
Breyting á skráningu byggingar 31.072 kr.
Lágmarksgjald (umsókn byggingarleyfis) 15.537 kr.

Greiða skal byggingarleyfisgjald fyrir hverja umsókn sem tekin er til umfjöllunar. Gjöld eru óendurkræf þótt lóðarúthlutun eða leyfi falli úr gildi.

1.2 Stöðuleyfi

Gjöld miðast við fermetrafjölda lausafjármuna. Lágmarksstærð er 15 m². Stöðuleyfi eru veitt að hámarki til 12 mánaða.

Stöðuleyfisgjald 3.550 kr./m²

1.3 Leigugjöld

Lýsing Gjald
0–15 m² (20 feta gámur) 59.184 kr./ár
16–30 m² (40 feta gámur) 98.639 kr./ár

2. gr. Afgreiðslu- og þjónustugjöld

2.1 Leyfisveitingar og úttektir

Aðrar leyfisveitingar og vottorð31.071 kr.
Úttekt vegna byggingarstjóraskipta31.071 kr.
Úttekt vegna meistaraskipta31.071 kr.
Stöðuúttekt31.071 kr.
Lágmarksgjald15.537 kr.

2.2 Afgreiðslur

Eignaskiptayfirlýsing62.147 kr.
Yfirferð eignaskiptayfirlýsingarskv. reikningi
Breyting á lóðarleigusamningi56.861 kr.
Lóðarúthlutun (umsýsla)31.071 kr.
Stofnun lóðaskv. reikningi
Útsetning lóðarmarka15.537 kr.
Efnistökuleyfi40.440 kr.
Lágmarksgjald15.537 kr.

3. gr. Skipulagsbreytingar

Umsækjandi greiðir kostnað vegna breytinga á aðal- og/eða deiliskipulagi, þar á meðal uppdrætti, auglýsingar og umsýslu.

3.1 Aðalskipulag

Umsýslu- og auglýsingakostnaður 83.125 kr.

3.2 Deiliskipulag

Umsýslu- og auglýsingakostnaður 83.125 kr.

3.3 Framkvæmdaleyfi

Stærri framkvæmdir179.553 kr.
Aðrar framkvæmdir74.801 kr.
Minni framkvæmdir31.073 kr.
Eftirlit umfram eina ferð15.537 kr./klst.
Lágmarksgjald15.537 kr.

4. gr. Gildistaka

Gjaldskrá þessi er sett fram með heimild í lögum um mannvirki nr. 160/2010 og skipulagslögum nr. 123/2010 og öðlast gildi 1. maí 2026.

Jafnframt fellur úr gildi eldri gjaldskrá nr. 1351/2025.

Fjarðabyggðarhafnir

Almenn ákvæði
1. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir Fjarðabyggðarhafnir er sett skv. heimild í 17. grein hafnalaga nr. 61/2003 með síðari breytingum.
Um gjaldtöku tengdri stærð skipa
 

2. gr.
Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu (brt) skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969.
 

3. gr.
Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til Fjarðabyggðarhafna ef þau koma inn fyrir skilgreind mörk hafnanna samkvæmt hafnarreglugerð 835/2020 og njóta þjónustu þeirra.
Skipagjöld
 

4. gr.
Lestargjöld:
Af öllum skipum skal greiða lestargjald, 21,61 kr. á brt. skv. 2. gr. við hverja komu.
Bryggjugjöld:
Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða samkvæmt eftirfarandi:
Skip við bryggju 5,06 kr. á brt. fyrir hverja byrjaða 12 tíma, sem skip liggur bundið, en reiknist hámark 26 sinnum í mánuði.
Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald sem mánaðargjald:
Bátar upp að 10 m að lengd greiði 9.259 kr. á mánuði
Bátar 10-20 m að lengd greiði 18.517 kr. á mánuði
Bátar og fiskiskip lengri en 20 m að lengd greiði 138,21 kr. á brt., en þó aldrei lægra en 18.517 kr. á mánuði
Þjónustubátar upp að 20 m að lengd greiði 31.842 kr. á mánuði
Gestaskútur og skemmtibátar sem koma til hafnar greiði 4.000  kr. fyrir hvern byrjaðan sólarhring.
 

Vörugjöld
5. gr.
Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan skilgreindra marka hafnanna, þó með þeim undantekningum er síðar getur. Farmflytjandi skal skila farmskrá og öðrum nauðsynlegum gögnum til Fjarðabyggðarhafna vegna álagningar vörugjalda.

6. gr.
a.    Fyrir vörur sem fluttar eru í land en eru samkvæmt farmskrá skips ákveðnar til erlendrar hafnar innan 14 daga, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land.
b.    Fyrir vörur sem fluttar eru í land en eru samkvæmt farmskrá skips ákveðnar til annarrar innlendrar hafnar innan 14 daga, skal aðeins greitt hálft vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land.
c.    Fyrir vörur sem fluttar eru á skip en eru samkvæmt farmskrá skips ákveðnar til annarrar innlendrar hafnar skal greitt hálft vörugjald.
d.    Fyrir vörur sem koma frá annarri innlendri höfn og látnar eru í land skal greiða hálft vörugjald.
e.    Fyrir vörur sem settar eru á skip og eru samkvæmt farmskrá ákveðnar til erlendrar hafnar er greitt fullt vörugjald þó varan hafi viðkomu á annarri höfn.
f.    Vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna bilunar eða skemmda á skipi eru undanþegnar innheimtu vörugjalda.
 

7. gr.
Eftirfarandi vörur eru undanþegnar vörugjaldi:
a)    Umbúðir s.s. tómir gámar, tóm fiskikör, tómir tankar o.fl. sem endursendar eru.
b)    Úrgangur sem fluttur er til eyðingar.
 

8. gr.
Vörugjöld reiknast eftir heildarþyngd vöru með umbúðum eða heildarverðmæti afla, samanber skýringar með einstökum gjaldflokkum. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða ábyrgðarmaður skips skal láta Fjarðabyggðarhöfnum í té afrit af farmskrá. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið sannreyna uppgefið vörumagn og flokkun þess. Sé fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðuð skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.
 

9. gr.
Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldsskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:

Vörugjaldsskrá:
1. fl.:    Gjald 425 kr. fyrir hvert tonn:
Laust efni og sekkjað sem losað er eða lestað svo sem kol, laust korn, salt, sandur, möl, kvarts, málmgrýti og önnur steinefni, vikur, kísilgúr, súrál, flúor, ál, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur (brotajárn, pappír og fleira) sem fluttur er til endurvinnslu.
2. fl.:    Gjald 686 kr. fyrir hvert tonn:
Laust efni og sekkjað sem losað er eða lestað svo sem lýsi, fiskimjöl, fiskifóður og melta.
3. fl.:    Gjald 813 kr. fyrir hvert tonn:
Þungavarningur, óunnir málmar, sjávarafurðir, landbúnaðar-afurðir, veiðarfæri, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda og smurningsolíur.  Pakkaðar og niðursoðnar matvörur og drykkjarvörur.
4. fl.:    Gjald 1.785 kr. fyrir hvert tonn:
Aðrar vörur sem ekki eru tilgreindar í 1.- 3.fl., svo sem vélar, tæki og hvers konar varahlutir, vefnaðarvara og fatnaður, gúmmí, búslóðir, pappír, húsgögn, bifreiðar, heimilistæki, skrifstofuvélar, bifhjól, reiðhjól, hjólbarðar og bátar.
5. fl.:    Aflagjald 1,35% af heildar aflaverðmæti:
Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans.
Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast 0,74% af heildaraflaverðmæti skv. Hafnalögum.
Seljanda aflans ber að afhenda Fjarðabyggðarhöfnum skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað.
Seljandi ber ábyrgð á greiðslu aflagjalds.

Leiga innan hafnarsvæða
10. gr.
Leiga svæðis skal vera eftirfarandi:
Geymsla á malarsvæði 125 kr. á m2 á mán.
Geymsla á malbikuðu svæði utan haftasvæðis 235 kr. á m2 á mán.
Geymsla á malbikuðu svæði innan haftasvæðis 280 kr. á m2 á mán.
Leiga fyrir skilgreind geymslusvæði skal vera eftirfarandi:
Geymslugjald fyrir 0-15 m2 eða minna (jafngildir 20 feta gámi), veitt til eins árs í senn 61.014 kr. á ári. Miðað er við almanaksár.
Geymslugjald fyrir 16-30 m2 (jafngildir 40 feta gámi), veitt til eins árs í senn 101.690 kr. á ári. Miðað er við almanaksár.
Gámaplön á vegum Fjarðabyggðarhafna eru einungis ætluð til geymslu á lokuðum gámum. Óheimilt er að geyma hluti utan við eða ofan á gámum. Hlutir sem geymdir eru utan gáma verða fjarlægðir á kostnað eiganda. Sótt er um svæði á gámaplani hjá hafnarvörðum.

Geymsla smábáta á uppsátrum er gjaldfrjáls en stefnt er að því að gjaldtaka muni hefjast árið 2027.

Uppsátur báta á vegum Fjarðabyggðarhafna eru einungis ætluð fyrir geymslu á smábátum. Heimilt er að geyma þar tómar bátakerrur á meðan bátar eru á sjó eða í smábátahöfn. Óheimilt er að geyma annað á svæðunum. Sótt er um svæði á uppsátri hjá hafnarvörðum.

Geymslugjald fyrir nætur og troll á geymslusvæði er það sama og fyrir 16-30 m2 (Geymsla á veiðarfærum á hafnarköntum. Frítt fyrstu vikuna síðan 5.352 kr. á sólarhring.
Aðstaða v/ upptöku báta á hafnarkant. Frítt fyrstu vikuna síðan 10.705 kr. á viku.
Gjald vegna svæðis undir búnað sem varanlega hefur verið komið fyrir á hafnarsvæðum Fjarðabyggðarhafna er 4.068 kr. á m2 á ári. Miðað er við almanaksár.

Ef notað er rafmagn er greitt fyrir það sérstaklega skv. gjaldskrá þessari.


Móttaka úrgangs
11. gr.
Skip sem óskar eftir að Fjarðabyggðarhafnir taki á móti úrgangi skal tilkynna um það að lágmarki 24 klst. fyrir komu til hafnar. 
Við komu til hafnar skulu öll skip sem falla undir 11. grein laga um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33 frá 2004 greiða úrgangs- og förgunargjald óháð því hvort þau skila úrgangi í land. Úrgangsgjald er til þess að standa undir eftirliti og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi. Förgunargjald er innheimt fyrir þann úrgang sem skilað er í land og skal standa undir förgun á þeim úrgangi.
Öll skip sem falla undir grein 11 c. í lögum nr. 33 frá 2004 skulu greiða eftirfarandi vegna úrgangs:
Úrgangsgjald
a.    Úrgangsgjald: Við komu skips til hafna skal skip greiða 1,05 kr. á brt.    Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er 7.669 kr. og hámarksgjald 69.104 kr. 
b.    Úrgangsgjald: Gjald skv. Lið a. Má lækka ef umhverfisstjórnun, hönnun, búnaður og starfræksla skips er með þeim hætti að skipstjóri geti sýnt fram á að minni úrgangur verði til um borð.  Fast gjald verður þá 0,53 kr. á brt.  Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er 7.669 kr. og hámarksgjald 34.551 kr.
c.    Úrgangsgjald: Skip og bátar sem koma oftar en fjórum sinnum til hafnar á almanaksárinu greiða samkvæmt b. lið fyrir fimmtu komu og komur eftir það.
d.    Úrgangsgjald: Skip og bátar sem eru undir 60 metra að lengd, eru ekki hafnsöguskyld og hafa varanlega viðveru í höfnum Fjarðabyggðar skulu greiða fast mánaðargjald vegna eftirlits og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi.  Mánaðargjaldið skal vera 7.669 kr. á mánuði.
Förgunargjald
a.    Förgunargjald: Farþegaskip 60 metra og lengri skulu greiða 2,06 kr. á brt. Gjaldið miðast við eftirfarandi sorpmagn:
Farþegaskip undir 30.000 brt.: 5 m3 
Farþegaskip frá 30.000 brt. til 100.000 brt: 10 m3 
Farþegaskip yfir 100.000 brt.: 15 m3 
Önnur skip skulu greiða 2,74 kr. á brt. Gjaldið miðast við 5 m3 af sorpi.
Greiða skal förgunargjald samkvæmt d-lið fyrir sorp sem fer umfram ofangreinda viðmiðun.
Skip og bátar sem eru undir 60 metrar á lengd og hafa varanlega viðveru í höfnum Fjarðabyggðarhafna skulu háðir sérstöku samkomulagi sem m.a. taki á lögum og reglum um skil á sorpi.
Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er 54.069 kr.
b.    Förgunargjald: Leiti skip til viðurkennds aðila um móttöku á úrgangi getur það fengið álagt förgunargjald skv. b-lið endurgreitt enda skili það áður kvittun móttökuaðilans ásamt réttum upplýsingum um losað magn. Skilyrði endurgreiðslu kostnaðar er að kvittun móttökuaðila hafi borist Fjarðabyggðarhöfnum innan tveggja sólarhringa frá brottför skips.
c.       Samkvæmt 11. grein reglugerðar nr. 1200 frá 2014 getur Umhverfisstofnun veitt skipum í áætlunarsiglingum, sem hafa reglulega viðkomu í höfnum og sýna fram á trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda í hverri höfn á siglingaleiðinni undanþágu frá afhendingu úrgangs. Skipstjóri eða eigandi skips sem fengið hefur undanþágu frá Umhverfisstofnun um afhendingu úrgangs eða skilum á tilkynningum, skal framvísa gildri staðfestingu þess efnis.
d.    Skip sem undanþegin eru gjaldskyldu skv. grein 11 c. í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33 frá 2004 skulu greiða fyrir móttöku hafnar og förgun á almennu sorpi. Lágmarksgjald hafnar fyrir móttöku á úrgangi er 15.366 kr. á hvern rúmmetra og lágmarksgjald er einn rúmmetri. Annist höfnin móttöku á spilliefnum eða sérstökum úrgangi sem hefur í för með sér kostnaðar umfram förgun á almennu sorpi greiðir viðkomandi skip þann kostnað sem til fellur.

Hafnsögugjöld
12. gr.
Öll skip lengri en 100 metrar, að undanskildum innlendum fiskiskipum, og öll skip sem flytja hættulegan varning, skulu taka hafnsögumann við komu, brottför og siglinu um hafnarsvæðið.
Hafnsögugjöld skulu greidd samkvæmt eftirfarandi gjaldskrá:
Fyrir leiðsögn til hafna eða lægi 10,43 kr. fyrir hvert brúttótonn.  Fyrir leiðsögn frá lægi og úr höfn greiðist sama gjald.
Ef skipstjóri skips hefur undanþágu frá hafnsöguþjónustu skv. ákvörðun hafnarstjórnar og hafnsögumaður fer ekki um borð, er veittur 25% afsláttur af hafnsögugjaldi.

Þjónusta dráttarbáts
13. gr.
Tímagjald fyrir aðstoð dráttarbáts miðast við brúttóstærð skips. Fyrir skip minni en 20.000 brt. er tímagjaldið 14,25 kr. á brt. og fyrir stærri skip en 20.000 brt. er tímagjaldið 16,72 kr. á brt.  Lágmarksgjald á klst. er 90.397 kr. og hámarksgjald á hvert skip á klst. er 493.733 kr.
Gjald fyrir fylgd til öryggis í eða úr höfn, er 90.397 kr. á klst.  Lágmarkstími er 1 klst.
Gjald fyrir aukamann á dráttarbáti er 23.814 kr. á klst.
Biðtímagjald er 90.397 kr. á klst. Lágmarkstími er 1 klst. Ef aukamaður er um borð á biðtíma er einnig rukkað fyrir aukamann.
Gjald fyrir fluttan hafnsögumann er 90.397 kr. á klst. Lágmarkstími er 1 klst.
Aðrir flutningar:  90.397 kr. á klst. Lágmarkstími er 1 klst.
Þegar dráttarbátur flytur hafnsögumann og aðstoðar einnig skipið, fellur gjald fyrir flutning hafnsögumanns niður.
Gjald fyrir siglingu dráttarbáts er 90.397 kr. á klst.
Heimahöfn dráttarbáts er Reyðarfjarðarhöfn. Þegar aðstoðar dráttarbáts er óskað í öðrum höfnum er innheimt gjald fyrir siglingu frá og til heimahafnar.
Ef hafnsögumaður telur aðstoð nauðsynlega má hann láta kalla til aðstoðarbát.  Gjald fyrir þjónustu aðstoðarbáta er samkvæmt gjaldskrá þeirra.
Önnur aðstoð dráttarbáts er samkvæmt samningi hverju sinni.
Gjald vegna aðstoðar við hjálparvana fiskiskip stærri en 100 brt. er samkvæmt samkomulagi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi varðandi þóknanir fyrir björgun fiskiskipa, sjá á eftirfarandi slóð https://sfs.is/greinar/kjaramal/.
 

Festargjöld
14. gr.
Starfsmenn á vegum Fjarðabyggðarhafna sjá um bindingu skipa nema um annað hafi verið samið.
Festargjöld fyrir hverja afgreiðslu eru 34.412 kr. Lágmarksfjöldi festarmanna er tveir. Séu fleiri en tveir menn notaðir við afgreiðslu er gjald fyrir hvern aukamann 17.206 kr.  Fyrir festargjöld utan dagvinnutíma er greitt tvöfalt gjald og einnig tvöfalt gjald fyrir aukamann við afgreiðslu utan dagvinnutíma.

Vatnssala
15. gr.
Kalt vatn 246 kr./m3
Lágmarksgjald á hverja afgreiðslu miðast við 20 m3
Afgreiðsla utan dagvinnutíma 14.320 kr. á klst. Lágmarksútkall er 4 klst.
 

Vigtargjald
16. gr.
Almenn vigtun 230 kr. á tonn
Lægsta gjald fyrir einstaka vigtun/löndun 2.110 kr.
Skráningargjald á afla án vigtunar 9.082 kr. á hverja löndun
Vigtun utan dagvinnutíma 14.320 kr. á klst. Lágmarksútkall er 4 klst.

Rafmagnssala
17. gr.
Selt rafmagn 24.94 kr./kWst.
Rafmagn skútur og skemmtibátar 880 kr. fyrir hvern byrjaðan sólarhring.
Mælaleiga 6.958 kr. á ári
Fari tenging fram utan dagvinnutíma greiðist tengigjald 14.320 kr. á klst.
Lágmarksútkall er 4 klst.
Fyrir tengingar beint inn á skinnur skal kaupandi bera kostnað af vinnu rafiðnaðar-manna við aftengingu og tengingu.

Önnur þjónusta
18. gr.
Allan kostnað sem til fellur við hreinsun vegna mengunaróhappa skal mengunarvaldur greiða samkvæmt lögum nr.33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda. Þar getur meðal annars verið um að ræða kostnað vegna starfsmanna Fjarðabyggðarhafna, flutning á búnaði, kostnaður við búnað og tæki hafnarinnar ásamt nauðsynlegum efnum til hreinsunar.
Ef mengunarvarnabúnaður er leigður út greiðir leigutaki allan kostnað, þ.m.t. leigu búnaðar, flutning, kostnað og vinnu starfsmanna Fjarðabyggðarhafna við hreinsun og meðhöndlun búnaðar.

Móttaka skipa sem falla undir ISPS-kóða
19. gr.
Farmskip
Hafnarverndargjald fyrir hverja komu 58.677 kr.
Farmvernd 20,00% álag á vörugjöld
Öryggisgæsla á öryggisvörð í dagvinnu 9.082 kr.
Öryggisgjald á öryggisvörð í yfirvinnu 14.320 kr.

Farþegaskip
Hafnarverndargjald fyrir hverja komu 58.677 kr.
Öryggisgæsla á öryggisvörð í dagvinnu 9.082 kr.
Öryggisgjald á öryggisvörð í yfirvinnu 14.320 kr.
Farþegagjald 240 kr. á farþega.
 

Byggingarréttargjald
20. gr.
Fyrir rétt til byggingar mannvirkja á lóðum sem Fjarðabyggðarhafnir hefur undirbúið til framkvæmda með landfyllingum skal greiða byggingarréttargjald.  Byggingarréttargjald skal greitt af hverjum fermetra byggingarlóðar.  Gjaldið skal að fullu greitt áður en lóðaleigusamningur um byggingarlóð er gerður.  Byggingarréttargjald skal bundið byggingarvísitölu og er  8.247 kr./m2 miðað við byggingarvísitölu 200,9 í september 2024.

Vörugjöld
21. gr.
Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður sem skip hefur siglingu, nema annað sé sérstaklega um samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.
Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.
Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.

Um greiðslu og ábyrgð á greiðslu 
22. gr.
Skipstjóri, eigandi og umráðamaður skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Fjarðabyggðarhafna vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.
Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.
Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts.  Fjarðabyggðarhöfnum er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt með síðari breytingum.

Um innheimtu gjalda
23. gr.
Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.
Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 3. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003.
Fjarðabyggðarhöfnum er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.

Gildistaka
24. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir Fjarðabyggðarhafnir var samþykkt af hafnarstjórn Fjarðabyggðar þann06.10.2025, skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004.
Gjaldskráin öðlast gildi þann 1. janúar 2026 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. 
Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir Fjarðabyggðarhafnir frá 1. janúar 2025.
 

Veitur

1.gr. Gildissvið

Af öllum fasteignum í lögsagnarumdæmi Fjarðabyggðar, sem liggja við vegi eða opin svæði þar sem vatnsæðar liggja í eigu sveitarfélagsins skal greiða vatnsgjald árlega.

2.gr. Vatnsgjald

Vatnsgjald  samanstendur  af  fastagjaldi  fyrir  hverja  matseiningu  og  gjaldi  sem  miðast  við flatarmálsstærð  eignar (fermetragjald)  samkvæmt fasteignamati. Vatnsgjald fer aldrei  yfir  0,33% af fasteignamati þeirra matshluta sem tengdar eru hverri vatnsveitulögn (vatnsinntaki). Liggi ekki fyrir upplýsingar um flatarmál  fasteignar  í  fasteignaskrá skal  gjaldið taka mið af fasteignamati, þ.e. vera 0,27%  af fasteignamati matshlutar. Bílskúrar og sambærilegt húsnæði sem stendur við íbúðarhús (á sömu lóð) er undanþegið fastagjaldi.

3.gr. Fjárhæð vatnsgjalds

Af öllum fasteignum, sem eru gjaldskyldar skal greiða árlegt fastagjald á matseiningu að fjárhæð 5.179  kr. og 424  kr.  á fermetra  samkvæmt  fasteingamati. Árlegt vatngjald af sumarhúsum /frístundahúsum skal þó að lágmarki vera 28.527 kr. Greitt er fastagjald á íbúðarhúsnæði í dreifbýli, fyrir útihús er ekki greitt fastagjald á matseiningu en greitt hálft fermetragjald. 

4.gr. Notkunargjald

Auk vatnsgjalds skulu fyrirtæki og aðrir, er nota kalt vatn til annars en heimilisþarfa, greiða notkunargjald. Fyrirtæki greiða notkunargjald auk vatnsgjalds, skv. lögum (  7 gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004 ). Notkunargjald skal að jafnaði innheimta samkvæmt mæli sem Vatnsveita Fjarðabyggðar leggur til og er gjald fyrir mæli innifalið í fastagjaldi fyrir matseiningu. Auk þessa er ákvæði í reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 421/1992 sem heimilar innheimtu samkvæmt áætlun ef ekki er hægt að koma fyrir mælingu. Notkunargjald hjá Vatnsveitu Fjarðabyggðar er 54,56 kr/m3. Sala á köldu vatni er undanþegin virðisaukaskatti.

5.gr. Fastagjald

Fyrirtæki í Fjarðabyggð borga fastagjald vegna mælinga á notkunargjaldi og er mælagjald háð stærð viðkomandi mælis sem hér segir.

Stærð kr. dag kr. ári

DN25

53,51 kr.

19.543 kr.

DN30

63,90 kr.

23.308 kr.

DN40

72,94 kr.

26.632 kr.

DN50

94,03 kr.

34.321 kr.

DN65

145,58 kr.

51.301 kr.

DN80

245,62kr.

89.667 kr.

DN100

289,36 kr.

105.605 kr.

DN150

300,58kr.

109.730 kr.

DN200

313,99 kr.

114.615 kr.

 

6.gr. Stofngjald

Stofngjald   vatnsveitu   skal   innheimt   af   öllum   fasteignum   sem   tengdar   eru   vatnsveitu Fjarðabyggðar. Til að heimæð  vatnsveitu fáist skal vera búið að tengja fasteign við fráveitu. Gjaldið skal innheimt við veitingu byggingarleyfis eða afhendingu heimæðar. Sama gjald skal greiða við endurnýjun heimæða sem ekki eru í eigu vatnsveitunnar. Gjöld fyrir heimæðar miðast við að ídráttarrör fyrir heimalagnir hafi verið lagt á frostfríu dýpi frá tengistað vatnsveitunnar við lóðamörk,  að  inntaksstað mannvirkis  og  lega  og  frágangur  hafi  verið  tekin  út  og  samþykkt  af starfsmönnum vatnsveitu.

Stærð Verð

32mm

349.012 kr.

40mm

476.709 kr.

50mm

636.608 kr.

63mm

1.050.685 kr.

75mm

1.428.835 kr.

90mm

1.486.777 kr.

Stærri  heimæðar  en  90mm  eru  gjaldfærðar  í  samræmi  við  raunkostnað  þó  aldrei  lægri  en kostnaður vegna 90mm heimæðar.

 

7 .gr. Einingarverð og gildistaka 

Gjaldskrá þessi er sett fram með heimild í 10.gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004 og öðlast gildi 1. janúar 2026.

1. gr.

Hitaveita  Fjarðabyggðar  selur  afnot  af  heitu  vatni  úr  veitukerfi  sínu  samkvæmt  verðskrá þessari  og  reglugerð  hitaveitunnar  fyrir  heitt  vatn  nr.  908/2005.  Gjöld  samkvæmt  gjaldskrá þessari eru gefin upp án skatts á smásöluverð á heitu vatni og virðisaukaskatts, nema annað sé tekið   fram,   og   leggjast   þessir   skattar   á   þau   skv.   gildandi   reglum   á   hverjum   tíma. Virðisaukaskattur á sölu á heitu vatni til hitunar húsa og laugarvatns er 11%.

2. gr.

Ekki  er  takmarkaður  aðgangur  húsveitu  að  heitu  vatni  umfram  það  sem  heimæð  og veitukerfi  gera.  Hitaveitu  Fjarðabyggðar  er  heimilt  að  setja  upp  búnað  hjá  notanda,  sem tryggir aðra notendur gegn óeðlilegum þrýstibreytingum og er starfsmönnum veitunnar einum heimilt að breyta stillingu búnaðarins.

3. gr.

Seðilgjald  kr. 279  leggst  á  útsenda  prentaða  reikninga  en  hægt  er  að  komast  hjá gjaldinu með því að nýta greiðslukortaþjónustu eða beingreiðslur í banka. Reikningar birtast í heimabönkum þeirra sem nýta sér slíka þjónustu.

4. gr.

Reikninga  skal  greiða  á  eindaga.  Séu  reikningar  ekki  greiddir  á  eindaga  er  send  út tilkynning  um  vanskil.  Reikningar  eru  því  næst  sendir  til  innheimtuaðila.  Vextir  leggjast  við skuldina sé ekki greitt á eindaga

5. gr.

Hitaveitugjöld eru krafin mánaðarlega. Lesið verður af mælum mánaðarlega og reikningar gerðir  fyrir  raunnotkun  hvers  mánaðar.  Fyrir  þær  veitur  sem  ekki  er  möguleiki  að  lesa  af mánaðarlega  er  áætlunarreikningur    sendur  út  reikningur  byggður  á  áætlun  sem  tekur  mið  af fyrri  notkun.  Einu  sinni  á  ári  hið  minnsta  er  sendur  uppgjörsreikningur  sem  byggður  er  á álestri og er hann uppgjör á þeim áætlunarreikningum sem sendir hafa verið.

6. gr.

Húseigandi, eða sá sem skráður er fyrir mæli, er ábyrgur fyrir því að tilkynna flutning og er ábyrgur  fyrir  orkunotkun  þar  til  tilkynning  um  annan  notenda  hefur  verið  móttekin  hjá hitaveitunni.

7. gr.

Verð fyrir afnot af heitu vatni er eftirfarandi:

  1. Samkvæmt vatnsmæli fyrir hvern rúmmetra vatns: 

    Grunnverð kr. 197,86

  2. Samkvæmt vatnsmæli fyrir hverja kílóvattastund (kWh):

    Grunnverð kr. 4,23

  3. Mælagjald – fast gjald.

Um  afnot  á  vatni  hitaveitu  til  annarra  nota  en  húshitunar  gilda  sérstök  gjöld  sem  ákveðin 

eru hverju sinni en þó með hliðsjón af gjaldskrá hitaveitunnar.

       D. Önnur gjöld:

Tegund Verð

Umbeðinn aflestur af mælum

1.761 kr.

Lokunargjald

2.388 kr.

Skiptigjald

2.925 kr.

Innheimtugjald er í höndum innheimtuaðila.

8. gr.

Bráðabirgðaheimlagnir.

Lögn Grunnverð Lengdargjald, kr./metra

20 mm

33.188

4.662

25 mm

41.948

5.962

32 mm

43.347

5.962

Lengdargjald  er  greitt  fyrir  hvern  metra  í  heimlögn  sem  lögð  er  til  bráðabirgða.  Ef 

bráðabirgðaheimlögn   verður   síðar   notuð   sem   aðalheimlögn   fyrir   hús,   greiðist   ekkert 

lengdargjald  vegna  bráðabirgðatengingar.  Bráðabirgðaheimlagnir  skulu  aflagðar  innan  24 

mánaða frá tengingu þeirra.

9. gr

Lögn Inntaksgjald kr.

20 mm

610.638

25 mm

793.825

32 mm

1.071.663

40 mm

1.500.327

50 mm

2.175.233

 

Tengigrind er ekki innifalin í heimæðargjaldi.

Ef  heimlagnagjald  stendur  ekki  undir  kostnaði  í  frágengnu  hverfi  er  heimlagnagjald  fyrir nýja eða stækkaða heimlögn greitt samkvæmt kostnaðaráætlun.Heimæð  hitaveitu  liggur  frá  götulögn  eða  tengibrunni  og  inn  fyrir  húsvegg  húsveitu  að inntaksloka. Aukagjald fyrir hvern mæli umfram þann fyrsta skal vera 34.989 kr.

10. gr

Lengdargjald  í  dreifbýli  skal  vera  samkvæmt  kostnaði  en  lengdargjald  í  þéttbýli  er 9.927 kr. og er greitt fyrir hvern metra umfram 20 metra innan lóðamarka.

11. gr.

Önnur atriði til skýringa:

Stærð  heimlagnar  fer  eftir  hússtærð  og  starfsemi  sem  þar  er  áætluð.  Húseigandi  og hönnuður   ákveða   stærð   heimlagna   en   hitaveita   Fjarðabyggðar   ákveður   lágmarksstærð heimlagna fyrir íbúðarhús.Eigandi  íbúðarhúss/fyrirtækis  þarf  að  sækja  tímanlega  um  heimlögn  á  þar  til  gerðu eyðublaði,  hvort  sem  um  er  að  ræða  nýja  heimlögn,  færslu,  breytingu  eða  stækkun  á  eldri heimlögn. Teikningar skulu fylgja umsókn.Heimlagnargjald  skal  greitt  fyrir  hverja  heimlögn  er  tengir  húsveitu  við  kerfi  veitunnar. Heimlagnargjald skal greitt áður en vinna við lagningu hefst.Þegar heimlögn er stækkuð eða þegar heimlögn er breytt samkvæmt beiðni viðskiptavinar, skal  greiða  fyrir  breytinguna  samkvæmt  samkomulagi  og  skal  tekið  mið  af  raunkostnaði  við breytinguna. Heimilt  er  að  veita  afslátt  af  tengigjöldum  ef  tengikostnaður  er  sannanlega  lægri en gjaldskrá miðar við. Heimilt  er  að  leggja  álag  á  tengigjald  ef  tengikostnaður  er  sannanlega  hærri  en  gjaldskrá miðar við.Gjaldskrá  þessi,  sem  samþykkt  er  af  bæjarráði  og  bæjarstjórn  Fjarðabyggðar,  er  hér  með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi 1. janúar 2025  og  birtist  til  eftirbreytni  öllum  sem  hlut  eiga  að  máli.  Jafnframt  er  úr  gildi  felld  eldri gjaldskrá sama efnis.

1.gr

Hitaveita Fjarðabyggðar selur afnot af heitu vatni úr fjarvarmaveitukerfum sínum samkvæmt gjaldskrá þessari.

2.gr

Ekki  er  takmarkaður  aðgangur  húsveitu  að  heitu  vatni  umfram  það  sem  heimæð  og veitukerfi gera. 

3.gr.

Seðilgjald  kr.  261  -  leggst  á  útsenda  prentaða  reikninga  en  hægt  er  að  komast  hjá gjaldinu með því að nýta greiðslukortaþjónustu eða beingreiðslur í banka. Reikningar birtast í heimabönkum þeirra sem nýta sér slíka þjónustu.

4.gr.

Reikninga  skal  greiða  á  eindaga.  Séu  reikningar  ekki  greiddir  á  eindaga  er  send  út tilkynning um vanskil. Reikningar eru því næst sendir til innheimtuaðila. Vextir leggjast við skuldina sé ekki greitt á eindaga

5.gr.

Hitaveitugjöld eru krafin mánaðarlega. 

6.gr.

Staður Eining Án vsk. Með 2% jöfnunargjaldi Með 11% vsk.

Orkugjald Norðfirði

kr/kWh

15,52

15,83

17,57

Orkugjald Reyðarfirði

kr/kWh

19,18

19,56

21,71

 

1. gr.

Álagningarstuðull.

Álagningarstuðull  fyrir  fráveitugjald  er  0,3232%  af  húsmati  fasteigna.  Fráveitugjald  er 

innheimt    bæði    af    húsmati    heimila    og    fyrirtækja.    Fráveitugjald    er    innheimt    með 

fasteignagjöldum.

2. gr.

Þjónustugjald

Fyrir hverja fasteign innan marka Fjarðabyggðar með eigin fráveitu, eða fráveitu sem ekki er 

tengd  holræsakerfi  í  eigu  Fjarðabyggðar,  skal  greiða  árlegt  þjónustugjald,  sbr.  22.  gr. 

samþykktar um fráveitu í Fjarðabyggð. Greiða skal sérstakt gjald fyrir hverja rotþró, ef fleiri 

en ein rotþró er á sömu fasteign.

Undanþegnir  frá  gjaldskyldu  eru  aðilar  sem  framvísa  samningi  um  tæmingu  rotþróa  við 

þjónustuaðila  með  gilt  starfsleyfi  heilbrigðiseftirlits,  sbr.  18.  gr.  samþykktar  um  fráveitur  í 

Fjarðabyggð.

Ef fleiri en ein húseign er tengd rotþró skal þjónustugjaldi deilt með jöfnum hætti á fasteignir, 

nema ef sýnt er fram á aðra eignar- eða notkunarskiptingu á þrónni.

3. gr.

Gjaldskrá

Þjónustugjald samkvæmt 1. gr. skal vera árlegt gjald sem hér segir:

Stærð rotþróar í lítrum – þjónustugjald Verð kr.

< 3.500 lítrar

25.607

3.500 – 5.500 lítrar

38.410

5.500 – 8.000 lítrar

49.612

8.000 lítrar

49.612

Fyrir hvern viðbótarrúmmetra

8.000

Tímagjald hreinsibíls á klst. 20.534

Förgunargjald er samkvæmt verðskrá Sorpstöðvar Fjarðabyggðar.

Fjárhæð árgjalds miðast við að tæming og skoðun rotþróar eigi sér stað annað hvert ár. Komi 

fram  beiðni  um  eða  ef  nauðsynlegt  er  að  tæma  rotþró  sérstaklega,  skal  greiða  sérstakt  gjald 

sem er 70% álag á árlega greiðslu.

Fjárhæð  árgjalds  miðast  við  að  hreinsibíll  þurfi  ekki  að  nota  lengri  barka  en  30  metra.  Ef 

leggja þarf lengri barka þá bætast við 3.201 kr. að 50 metrum, en 10.043 kr. eftir það.

Ef  fleiri  en  ein  húseign  nýtir  rotþró  og  um  er  að  ræða  íbúðarhúsnæði  eða  sumarbústaði 

sérmetna í fasteignamati, skal aldrei innheimta hærra gjald skv. 1. mgr. en 24.004 kr. af hverri 

húseign.

Sveitarstjórn  er  heimilt  að  innheimta  sérstakt  aukagjald  þar  sem  þannig  háttar  til  að  um 

óvenjumikinn  kostnað  er  að  ræða  við  hreinsun  og  tæmingu  rotþróa  eða  þegar  sérstakar 

aðstæður krefjast aukinnar þjónustu. Gjaldið skal nema tímagjaldi fyrir hreinsibíl, skv. 2. gr., 

fyrir  tíma  umfram  2ja  klst.  vinnu-  og  aksturstíma,  sem  sérstaklega  er  tilkominn  vegna 

viðkomandi rotþróar.

4. gr.

Gjalddagi og innheimta

Gjalddagi og innheimta þjónustugjalds skv. 2. gr. fer fram með sama hætti og á sama tíma og 

álagning  fasteignaskatts.  Gjöld  samkvæmt  gjaldskrá  þessari  er  heimilt  að  innheimta  með 

fjárnámi  í  fasteign  sem  rotþró  tengist  án  tillits  til  eigendaskipta.  Njóta  gjöldin  lögveðréttar  í 

lóð  og  mannvirkjum  næstu  tvö  ár  eftir  gjalddaga,  með  forgangsrétti  fyrir  hvers  konar 

samningsveði og aðfararveði.

5. gr.

Stofngjald fráveitu

Stofngjald   fráveitu   skal   innheimta   af   öllum   fasteignum   sem   tengdar   eru   fráveitu 

Fjarðabyggðar   og   skráðar   eru   í   fasteignamat.   Gjaldið   skal   innheimt   við   útgáfu 

byggingarleyfis.  Verð  miðast  við  skólplögn  og  regnvatnslögn  (100-150mm)  sem  lögð  er  að 

lóðamörkum.

Tengigjald vegna nýtengingar fráveitu við einstaka fasteign er 293.542 kr.

Gert er ráð fyrir að fjölbýlishús, par- og raðhús o.s.frv. sé með óskipta lóð og einungis 

ein tenging er fyrir hverja lóð. Sé óskað eftir fleiri tengingum inn á lóð greiðist það 

skv. Raunkostnaði.

Sé sótt um stærri heimlögn en getið er um hér að ofan þarf að snúa sért til veitna 

Fjarðabyggðar með fyrirspurn um verð. Sama á við t.d. í þéttingu byggðar í grónum 

hverfum þar sem tenging er ekki til staðar eða ef aðstæður eru óvenju erfiðar þannig 

að ætla má að tengikostnaður sér úr takti við almennar tengingar

6 .gr.

Einingarverð og gildistaka

Gjaldskrá  þessi  er  sett  með  heimild  í  15.  gr.  laga  um  uppbyggingu  og  rekstur  fráveitna  nr. 

9/2009 og öðlast gildi 1 janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi eldri gjaldskrá nr. 1437/2023.

Menningarstofa

Slökkvilið

I. KAFLI

Almennt.

1.gr.

Verkefni Slökkviliðs Fjarðabyggðar ákvarðast af lögum um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

2.gr.

Slökkvilið  Fjarðabyggðar  innheimtir  ferða-  og  uppihaldskostnað  í  samræmi  við  reglur  ferða- kostnaðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

3.gr.

Slökkviliðsstjóra er heimilt að fella niður gjald vegna starfsemi ef verkefni telst þjóna almanna- hagsmunum og/eða fellur að markmiðum slökkviliðsins.

II. KAFLI

Lögbundin verkefni.

4.gr.

Sé ákvæðum 2. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum beitt skal eigandi eða umráðamaður mannvirkis eða lóðar bera kostnað samkvæmt gjaldskrá af eftirliti með því að farið hafi verið að kröfum um úrbætur samkvæmt 3. mgr. 29. gr. sömu laga. Einnig er heimilt að taka gjald fyrir öryggis- og lokaúttektir samkvæmt 2. mgr. 12. gr. sömu laga.

Fast  tímagjald  fyrir  hverja  byrjaða  klukkustund  útseldrar  vinnu  hvers  starfsmanns  er 17.975 kr.

5.gr.

Öryggisvaktir á mannvirki.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna öryggisvakta eftir að eiganda eða forráðamanni  hefur  verið  tilkynnt  ákvörðun  slökkviliðsstjóra  um  að  öryggisvakt  skuli  sett  á  við- komandi húseign. Á það jafnframt við um tilfallandi vaktir vegna tímabundinna viðburða þar sem fullum eldvörnum verður ekki við komið eða á meðan unnið er að úrbótum á þeim. Innheimtar eru að lágmarki 71.846 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 17.975 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjórar. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 30. gr. laga um brunavarnir.

6.gr.

Lokun mannvirkis.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna lokunar mannvirkis eftir að eiganda eða  forráðamanni  hefur  verið  tilkynnt  ákvörðun  slökkviliðsstjóra  um  að  loka  skuli  viðkomandi mannvirki. Innheimtar eru 16.935 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru inn- heimtar 71.846 kr., auk 17.975 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjórar fyrir hvern starfs- mann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 32. gr. laga um bruna- varnir.

7.gr.

Dagsektir.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem til fellur frá og með ákvörðun slökkviliðsstjóra um dagsektir  og  þar  til  kröfum  um  úrbætur  á  eldvörnum  hefur  verið  fullnægt.  Innheimtar  eru 17.975  kr.  fyrir  hverja  byrjaða  klukkustund  fyrir  hvern  starfsmann  sem  sinnir  verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

8.gr.

Öryggis- og lokaúttektir.

Innheimt  er  fyrir  alla  vinnu  sem  fellur  til  vegna  öryggis-  og  lokaúttektar,  að  lágmarki 35.949 kr. Fyrir stærri úttektir skulu að auki innheimtar 17.975 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir.

9.gr.

Eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar.

Fyrir endurkomu vegna eftirlits og eftirfylgni kröfugerðar skal innheimt fast gjald, 35.949 kr.  fyrir  hvert  skipti.  Fyrir  aðra  vinnu  við  eftirlit  og  eftirfylgni  kröfugerðar  skulu  innheimtar 17.975 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund. Þegar eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar á sér stað utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimtar 71.846 kr., auk 17.975 kr.fyrir hverja byrjaða klukku- stund umfram fjórar fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. 

Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

10.gr.

Eftirfylgni útkalla vegna brunaviðvörunarkerfa.

Sé slökkvilið kallað út vegna boða frá sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi án þess að eldur sé laus skal innheimt fyrir kostnaði af eftirliti með því að gerðar séu nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir endurtekin falsboð.Innheimt er fast gjald fyrir tvær klukkustundir, 35.949 kr., fyrir eftirlitið. Leiði það hins vegar til frekara eftirlits, vegna ítrekaðra falsboðana eða alvarlegra ágalla á brunavörnum, fellur það undir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar sbr. 9. gr. gjaldskrár þessarar og er þá innheimt samkvæmt því. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

III.KAFLI

Önnur verkefni og þjónusta.

11.gr.

Slökkviliðið sinnir öðrum verkefnum sem eru ekki skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum. Þessi verkefni falla þó að tilgangi slökkviliðsins sem er að vinna að velferð íbúa á starfssvæði 

þess, séu þau ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum né framkvæmd í samkeppni við aðra aðila. Því ber að taka gjald fyrir veitta þjónustu.Fast tímagjald skv. 4. gr. fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 16.300  kr  fyrir  lögbundin  verkefni.  Að  teknu  tilliti  til samkeppnissjónamiða,  þjálfunar, virkjunartíma og þess að þjónustan er aðgengileg allan sólarhringinn, allt árið er fast tímagjald fyrir hverja  byrjaða  klukkustund  útseldrar  vinnu  hvers  starfsmanns  innheimt  með  35%  álagi.  Fast tímagjald fyrir vinnu sem ekki er skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum er 24.208 kr. nema annað sé sérstaklega tekið fram. Þar sem um sérstakan viðbúnað er að ræða, sbr. 12.-15. gr., er að lágmarki innheimt fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir, eða 193.565 kr.

12.gr.

Viðbúnaður vegna eldsvoða og mengunaróhappa.

Í 2. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum kemur fram að lögin gilda um eldvarnir og slökkvistörf vegna eldsvoða og viðbúnað við mengunaróhöppum á landi nema kveðið sé á um annað í lögunum. Þau gilda enn fremur um björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum  með  sérhæfðum  björgunarbúnaði.  Lögin  ná  til  starfsemi  slökkviliða  á  landi,  þ.m.t. slökkvistarfa í jarðgöngum, í skipum sem liggja í höfn og loftförum sem eru á jörðu niðri.Slökkvistörf  og  viðbúnaður  við  mengunaróhöppum  á  sjó  og  í  lofti  falla  hins  vegar  ekki  undir lögin, né heldur eldvarnir í skipum með haffærisskírteini, loftförum, almennum vinnuvélum, bifreið-um  eða  öðrum  vélknúnum  ökutækjum.  Slökkviliðsstjóri  metur  hverju  sinni  hvenær  sinna  skal beiðnum um verkefni sem falla utan við gildissvið laganna.Ef  þess  er  óskað  að  slökkviliðið  sinni  slíku verkefni  sem  fellur  utan  gildissviðs  laganna  skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað.  Innheimta  skal  að  lágmarki  193.565 kr., auk 24.208 kr. fyrir  hverja  byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

13. gr.

Upphreinsun.

Upphreinsun sem fellur ekki undir skilgreiningu 3. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 á mengunaróhappi er sinnt af slökkviliði þó ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, á meðan ekki eru aðrir hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Slökkviliðsstjóri metur hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni sem falla utan við gildissvið laganna. Ef  óskað  er  eftir  því  að  slökkviliðið  sinni  verkefni  sem  fellur  utan  gildissviðs  laganna  skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Jafnframt skal greitt fyrir efni sem notuð eru til upphreinsunar, meðhöndlun og förgun þeirra. Innheimta  skal  að  lágmarki 193.565 kr., auk 24.208  kr.  fyrir  hverja  byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

14.gr.

Verðmætabjörgun og vatnslekar.

Verðmætabjörgun  sem  ekki  er  tilgreind  í  brunavarnalögum,  t.d.  vegna  vatnsleka,  er  sinnt  af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, á meðan ekki eru aðrir hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Slökkviliðsstjóri metur hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni sem falla utan við gildissvið laganna.Ef  óskað  er  eftir  því  að  slökkviliðið  sinni  verkefni  sem  fellur  utan  gildissviðs  laganna  skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 193.565 kr., auk 24.208 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

15.gr.

Ráðgjafarþjónusta.

Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningaskyldu skal sú vinna  undanþegin  gjaldi.  Ef  ráðgjafarvinnan  er  fyrir  utan  ákvæði  d-liðar  1.  mgr.  12.  gr.  laga  um brunavarnir  nr.  75/2000  með  síðari  breytingum,  um  leiðbeiningar  til  fyrirtækja  og  stofnana  eftir atvikum um hvaðeina er varðar brunavarnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi, er þjónustan gjaldskyld. Innheimtar eru 24.208 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

16.gr.

Tækjaleiga.

Ekki er fjallað um tækjaleigu í lögum um brunavarnir. Þó er eðlilegt að leigja tæki sem eru þess eðlis að ekki er hægt að leigja þau hjá öðrum aðilum eða ef aðstæður kalla á skjóta notkun sem aðrir aðilar geta ekki boðið. Miðað er við að tækjaleiga sé um 35% hærri en leiga á svipuðum tækjum sem aðrir geta útvegað til að tryggja samkeppnissjónarmið.

Gjald fyrir dælubíl, körfubíl og tankbíl er  38.131kr. og 19.013 kr. fyrir alla minni bíla og tæki fyrir hverja byrjaða klukkustund. Verðlagningu á tækjaleigu skal endurskoða við hverja breytingu á gjaldskrá þessari.

Tæki  slökkviliðsins  skulu  aðeins  notuð  af  starfsmönnum  þess.  Innheimtar  eru  að  lágmarki 93.200  kr.  fyrir  hvern  starfsmann  sem  sinnir  verkefninu,  auk  23.300  kr.  fyrir  hverja byrjaða klukkustund umfram fjórar, auk tækjaleigu.

17.gr.

Fylgd vegna sprengiefnaflutninga.

Sprengiefnafylgd er ekki áskilin í lögum um brunavarnir. Ef óskað er eftir fylgd slökkviliðs við sprengiefnaflutninga  er  innheimt  gjald  að  lágmarki  96.834  kr.  fyrir  hvern  starfsmann  sem sinnir verkefninu auk 24.208 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.

18.gr.

Annað.

Innheimt skal gjald fyrir aðra vinnu sem ekki er tilgreind hér og ekki er mælt fyrir um í lögum. 

Innheimt  skal  fyrir  tæki  skv.  16.  gr.  og  að  lágmarki  96.834  kr.  fyrir  hvern  starfsmann  sem sinnir verkefninu, auk 24.208 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjórar fyrir hvern starfsmann.

Getur þetta átt við um þjónustu vegna sérstakra verkefna eins og kvikmyndatöku, menningar- viðburða o.fl. þess háttar.

IV.KAFLI

Innheimta.

19.gr.

Bæjarskrifstofa   Fjarðabyggðar   annast  innheimtu  gjalda  samkvæmt  gjaldskrá  þessari  eða innheimtufyrirtæki sem verkefnið er falið samkvæmt samningi þar að lútandi. Um innheimtu gjalda skal fara eftir viðteknum venjum í innheimtu opinberra stofnana og gildandi reglum Fjarðabyggðar 

hverju sinni. Gjöldum  sem  til  eru  komin  vegna  öryggis-  og  lokaúttekta,  sem  og  aðgerða  til  að  knýja  fram úrbætur samkvæmt lögum, sbr. 5. gr. t.o.m. 11. gr., fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð, sbr.3. mgr. 12. gr. og 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum.

V.KAFLI

Gildistaka og lagastoð.

20.gr.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í lögum nr. 75/2000 með síðari breytingum og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2025 og fellur þá jafnframt úr gildi eldri gjaldskrá nr.1433/2023.

Annað

Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð

1. gr. Hundahald

Árlegt leyfisgjald fyrir að halda hund í Fjarðabyggð, sbr. 18. gr. samþykktar nr. 990/2022, er 19.066 kr.

Gjalddagi er 1. október ár hvert og eindagi 30. október. Innifalið í gjaldinu er ormahreinsun auk umsýslugjalda sveitarfélagsins.

Eigandi eða umsjónarmaður hunds sem lokið hefur hlýðninámskeiði hjá viðurkenndum hundaþjálfara getur sótt um 50% afslátt. Afslátturinn gildir út skráningartíma hunds í sveitarfélaginu.

Undanskildir gjaldi eru leitarhundar, björgunarsveitarhundar, lögregluhundar, aðstoðar- og þjónustuhundar sem hlotið hafa viðurkennda þjálfun, svo sem leiðsöguhundar.

2. gr. Kattahald

Árlegt leyfisgjald fyrir að halda kött í Fjarðabyggð, sbr. 18. gr. samþykktar nr. 990/2022, er 11.611 kr.

Gjalddagi er 1. október og eindagi 30. október ár hvert. Innifalið í gjaldinu er ormahreinsun og umsýslugjöld.

Hægt er að sækja um 50% afslátt ef köttur hefur farið í ófrjósemisaðgerð. Afslátturinn gildir út skráningartíma kattar í sveitarfélaginu.

3. gr. Handsömun og vörslugjöld

  • Handsömunargjald: 20.943 kr.
  • Vörslugjald eftir fyrsta sólarhring: 10.484 kr. á dag

Að auki skal greiða allan útlagðan kostnað sveitarfélagsins vegna hundsins.

Eigandi getur fengið hund afhentan að lokinni skráningu og gegn framvísun greiðslustaðfestinga fyrir skráningu, handsömun og öðrum kostnaði.

4. gr. Vextir og innheimta

Um vexti af vangreiddum gjöldum gilda almennar reglur. Innheimta fer samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Heimilt er að innheimta gjöld með fjárnámi.

5. gr. Lagagrundvöllur og gildistaka

Gjaldskrá þessi er sett með vísan til samþykktar um hunda- og kattahald og 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, ásamt reglugerð nr. 941/2002.

Gjaldskráin tekur gildi 1. maí 2026 og fellur þá úr gildi eldri gjaldskrá nr. 1353/2025.

Gjaldskrá fyrir félagsheimilin í Fjarðabyggð

Gildir frá 1. maí 2026

Egilsbúð

Aðstaða 1–4 tímar 4–8 tímar Sólarhringur Pr. tími
Stór salur og svið 35.774 kr. 71.402 kr. 95.138 kr.
Hljóðmaður 10.282 kr.
Fundarsalur 1 11.941 kr. 23.881 kr. 47.617 kr.
Fundarsalur 2 17.935 kr. 35.725 kr. 59.461 kr.
Salur 17.935 kr. 35.725 kr. 59.461 kr.
Eldhús 0 kr.

Tónleikahald og aðrir menningarviðburðir eru samkvæmt gjaldskrá. STEF-gjald er innheimt af Fjarðabyggð nema annað sé samið. Gjald fer eftir fjölda gesta og fyrirkomulagi tónlistar.

Viðburðir sem krefjast aukinna þrifa eru ekki innifalin í leigu. Leigutaki greiðir tjón sem verður á húsnæði eða búnaði. Leigusamningur skal gerður um hverja útleigu.


Skrúður

Stór salur, svið ásamt áföstum kaffisal fyrir stærri fundi, kvikmyndasýningar, leiksýningar, dansleiki og tónleika. Búnaður í húsinu: hljóðkerfi, myndvarpi og sýningartjald.

Aðstaða 1–4 tímar 4–8 tímar Sólarhringur
Stór og lítill salur (allt húsið) 17.935 kr. 39.460 kr. 71.557 kr.
Tónleikahald / einkasamkvæmi (allt húsið) 51.352 kr. (sólarhringur)

Innifalið er aðgangur að eldhúsi og búnaði. STEF-gjald bætist við leigu.

Þrif eru almennt á ábyrgð leigutaka nema samið sé um annað við Slysavarnadeildina Hafdísi.


Valhöll

Stór salur og svið fyrir stærri fundi, kvikmyndir, leiksýningar, dansleiki og tónleika. Minni salur, bar og anddyri með skjá og myndvarpa. Eldhús aðstaða (til framreiðslu)

Aðstaða 1–4 tímar 4–8 tímar Sólarhringur
Stór salur / svið 23.881 kr. 47.617 kr. 95.138 kr.
Salur með bar og anddyri 17.887 kr. 35.725 kr. -
Styttri fundaleiga 11.698 kr.

STEF-gjald bætist við leigu nema annað sé samið.

Þrif og tækniaðstoð er hægt að kaupa sérstaklega.

Leigutaka ber að skila húsnæði í sama ásigkomulagi í lok leigutíma og greiða tjón sem verða kann á húsnæði og innanstokksmunum.

Leigusamningur skal gerður um hverja útleigu.

Gjaldskrá félagsmiðstöðva í Fjarðabyggð

Gildir frá 1. maí 2026

Útleiga félagsmiðstöðva í Neskaupstað, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði, Stöðvarfirði og á Breiðdalsvík.

Tímalengd Verð
1 – 4 tímar 17.945 kr.
4 – 8 tímar 35.696 kr.
8 – 12 tímar 47.530 kr.
24 tímar 59.170 kr.

Skilmálar

  • Leigutaka ber að ganga snyrtilega um allt húsnæði.
  • Taka skal með sér allt rusl og aðra muni að lokinni notkun.
  • Leigusali áskilur sér rétt til að rukka aukalega fyrir aukaþrif ef þörf krefur.

Gjaldskrá – Admission

Söfnin í Fjarðabyggð

Gildir frá 1. maí 2026

Safnahúsið í Neskaupstað – The Museum House in Neskaupstaður
Sjóminjasafn Austurlands, Eskifirði – East Iceland Maritime Museum in Eskifjörður
Íslenska stríðsárasafnið, Reyðarfirði – The Icelandic Wartime Museum in Reyðarfjörður
Frakkar á Íslandsmiðum, Fáskrúðsfirði – Les pêcheurs Français en Islande in Fáskrúðsfjörður

Aðgangseyrir / Admission

Flokkur Verð (ISK) Category Price (ISK)
Fullorðnir (18–67 ára) (1) 2.330 Adults (age 18–67) (1) 2.330
Börn (0–17 ára) 0 Children (age 0–17) Free
Eldri borgarar (67+), námsmenn og öryrkjar (2) 1.940 Senior citizens (67+), students and disabled (2) 1.940
Hópar (20+) á mann 1.940 Groups (20+) per person 1.940
Félagar í ICOM og FÍSOS (3) 0 Members of ICOM – FÍSOS (3) Free

Skýringar / Notes

  • (1) Miði gildir sem óframseljanlegur ársmiði í öll söfn Fjarðabyggðar. / Ticket is valid for one year for all museums in Fjarðabyggð and is non-transferable.
  • (2) Gegn framvísun skilríkja. / ID required.
  • (3) Gegn framvísun félagaskírteinis. / Membership ID required.

Opnun utan opnunartíma / Access outside opening hours

Innheimt er 14.000 kr. grunngjald fyrir opnun safns utan hefðbundins opnunartíma, auk aðgangseyri af hverjum safngesti samkvæmt gjaldskrá fyrir hópa færri en 20.

Heimilt er að innheimta grunngjald þrátt fyrir ákvæði um frían aðgang barna (0–17 ára), félaga ICOM (International Council of Museums) og FÍSOS (Félag íslenskra safna og safnmanna).

Leiga á sal

Gildir fyrir sal á jarðhæð í Safnahúsinu Neskaupstað og Bragganum í Stríðsárasafni á Reyðarfirði.

Menningar-, fræðslu- og samfélagstengd starfsemi

  • Heill dagur: 21.825 kr.
  • Hálfur dagur: 16.490 kr.

Önnur starfsemi

  • Heill dagur: 55.775 kr.
  • Hálfur dagur: 31.525 kr.

Bragginn er aðeins leigður út utan opnunartíma safnsins nema starfsemin tengist kjarnastarfsemi Stríðsárasafnsins.

Heimilt er að innheimta þrifagjald ef leigjandi skilar húsnæðinu ekki í viðunandi ástandi.