mobile navigation trigger mobile search trigger

Ýmsar upplýsingar

Hafnarsjóður Fjarðabyggðar rekur sjö hafnir í öllum byggðakjörnunum en það eru hafnirnar á Mjóafirði, Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Breiðdalsvík. Fjarðabyggðarhafnir eru í flokki öflugustu hafna landsins. Óvíða er meiri fiskafla landað hér á landi auk þess sem hafnirnar eru ein stærsta vöruflutninga höfn landsins.

Hér má nálgast ýmsar upplýsingar, lýsandi fyrir starfsemi Fjarðabyggðarhafna ásamt gagnlegum tenglum. Má þar nefna yfirlit yfir landaðan afla og inn- og útflutning um hafnirnar. Bæjarstjóri Fjarðabyggðar er jafnframt hafnarstjóri. hafnarstjori@fjardabyggd.issími 470 9000.