mobile navigation trigger mobile search trigger

Um Fjarðabyggð

Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu og það fjölmennasta af sjö sveitarfélögum Austurlands, með um 5.200 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Þú ert á góðum stað eru kjörorð sveitarfélagsins. 

Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.

Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Norðfjörður er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.

Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.

Hver bæjarkjarni á sér sína sögu og hefðir og erlend tengsl leynast víðar en í „Franska bænum“ Fáskrúðsfirði. Eskifjörður er stundum nefndur „Norski bærinn“ út af umsvifum norskra útvegsmanna fyrr á tímum, auk þess sem Norðmenn ráku stóra hvalveiðistöð á Asknesi í Mjóafirði. Um Norðfjörð segja heimamenn að hann sé „þar sem lognið hlær svo dátt“. Reyðarfjörður er aftur á móti „þar sem hjartað slær“ – á Austfjörðum miðjum. „Steinaríkið Stöðvarfjörður“ vísar svo til jarðsögulegrar sérstöðu svæðisins og „Breiðdalur brosir við þér“ þar sem þú ert ætíð velkomin/n.