mobile navigation trigger mobile search trigger

NEFNDIR OG RÁÐ

Bæjarráð Fjarðabyggðar fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn og fjármálastjórn sveitarfélagsins að því leyti sem þessi mál eru ekki öðrum falin. Bæjarráð hefur eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins og fjármálastjórn þess, semur drög að fjárhagsáætlun og viðaukum við hana og leggur þau fyrir bæjarstjórn. Þá sér bæjarráð um að ársreikningar sveitarfélagsins séu gerðir og lagðir fyrir bæjarstjórn til meðferðar og afgreiðslu.

Aðalmenn og varamenn í bæjarráði eru kjörnir úr hópi aðalmanna í bæjarstjórn, sem jafnframt kýs formann og varaformann bæjarráðsins. Þá kýs bæjarstjórn fulltrúa í fastanefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar. Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og bæjarstjórnar, nema annað leiði af lögum eða samþykktum um stjórn sveitarfélagsins.

Fastanefndir eru samkvæmt samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar fjórar talsins og sinna faglegu starfi hver á sínu málefnasviði. Þær eru fjölskyldunefnd, skipulags- og framkvæmdarnefnd og hafnarstjórn og stjórn menningarstofu.

Undirnefnd fastanefnda og nefnd með afmörkuð málefni er upplýsingaöryggisnefnd. Auk þess er fjallskilanefnd, ungmennaráð og öldungaráð skipað fulltrúum skv. samþykktum þess.

Bæjarstjórn ákveður valdsvið nefnda, ráða og stjórna sem hún kýs nema slíkt sé ákveðið í lögum. Fjallað er um störf bæjarráðs og fastanefnda í samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar.

TILNEFNINGAR OG KOSNINGAR

Fulltrúar á ársþing og ársfundi stofnana sem bæjarfélagið á aðild að. Kosning fer fram á 1. fundi bæjarstjórnar og svo árlega eftir því sem við á. 

  • Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Aðalfundur Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi
  • Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands
  • Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands
  • Aðalfundur Austurbrúar

STJÓRNIR OG SAMSTARFSRÁÐ

Fulltrúar í stjórnum stofnana með sjálfstæðan fjárhag og tilnefningar í samstarfsráð sem hafa endanlegt ákvörðunarvald í málefnum sínum. Kjörtímabil þeirra er samkvæmt samþykktum um stjórn viðkomandi stofnunar.

  • Almannavarnarnefnd Fjarðabyggðar
  • Stjórn Náttúrustofu Austurlands
  • Stjórn Sjóminjasafns Austurlands
  • Stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga
  • Stjórn Tónlistarmiðstöðvar

KJÖRSTJÓRNIR

  • Yfirkjörstjórn
  • Undirkjörstjórn á Mjóafirði
  • Undirkjörstjórn í Neskaupstað
  • Undirkjörstjórn á Eskifirði
  • Undirkjörstjórn á Reyðarfirði
  • Undirkjörstjórn á Fáskrúðsfirði
  • Undirkjörstjórn á Stöðvarfirði
  • Undirkjörstjórn í Breiðdal

Embættismenn

Kosnir embættismenn samkvæmt lögum og reglugerðum eru.

  • Fjallskilastjóri

VERKEFNABUNDNAR NEFNDIR

Bæjarstjórn getur skipað nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður sjálfkrafa við lok kjörtímabils, eða fyrr eftir því sem verkefni þeirra gefa tilefni til eða umboð eða erindisbréf veitir þeim.