Fara í efni
16.06.2026 Fréttir

17. júní hátíðarhöld í Fjarðabyggð

Deildu

Vegna slæmrar veðurspár hefur verið ákveðið að færa hátíðarhöldin 17. júní inn í íþróttahúsið í Neskaupstað.

17. júní hátíðarhöld í Fjarðabyggð

Verið hjartanlega velkomin á þjóðhátíðarhöld Fjarðabyggðar í íþróttahúsinu í Neskaupstað miðvikudaginn 17. júní.

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna, skrúðgöngu, hátíðarsamkomu, skemmtiatriði, grillveislu og ýmsa dagskrárliði víða um bæinn.

Athugið að dagskráin getur tekið breytingum og eru íbúar beðnir um að fylgjast með upplýsingum á vef Fjarðabyggðar.

Dagskrá á hátíðarsvæði

Kl. 12:30
Skrúðganga frá sjúkrahúsinu niður að SÚN vellinum í Neskaupstað.

Kl. 13:00
Hátíðarsamkoma hefst með ávarpi forseta bæjarstjórnar.

Kl. 13:10
Barnakór Norðfjarðar kemur fram.

Kl. 13:20
Söngatriði.

Kl. 13:25
Ávarp fjallkonu.

Kl. 13:30
Söngatriði með Ísabellu og Óskari.

Kl. 14:00
Skemmtiatriði með Skemmtikraftaköllunum.

Á hátíðarsvæði kl. 13:30–16:00

Á hátíðarsvæðinu verður ýmislegt í boði fyrir alla fjölskylduna:

  • Grillveisla
  • Hoppukastalar
  • Andlitsmálun
  • Söngatriði á hátíðarsvæði
  • 17. júní sjoppa
  • Hjólabraut frá Hjólafélaginu Fönn
  • Tröll á vappi um allt svæðið
  • Vatnsrennibraut í brekkunni hjá Rósu Dögg

Aðrir dagskrárliðir

Kl. 10:30
Opin æfing hjá LFA í Nesheimum, fyrir 16 ára og eldri.

Kl. 11:00
Fjölskyldujóga með Hrönn, fyrir foreldra og börn. (Staðsetning verður auglýst síðar).

Kl. 11:00–17:00
Safnahúsið opið.

Kl. 13:00–17:00
Sundpartý.

Kl. 10:00–16:00
Nesbær.

Kl. 12:00–21:00
Þjóðhátíðar pop-up matseðill og vöfflur í Beituskúrnum.

Kl. 16:00–18:00
Opið hús hjá Pílufélaginu í Egilsbúð.

Fjarðabyggð þakkar Þrótti Neskaupstað fyrir frábært starf við skipulagningu 17. júní hátíðarhaldanna í ár.