Fara í efni
25.04.2018 Fréttir

18 nemendur frá Eistlandi, Danmörku og Lettlandi í heimsókn í Nesskóla

Deildu

Heimsóknin var hluti af Erasmus+ verkefninu STEM: through 21st century skills (STEM = Science - Technology - Engineering - Math) sem Nesskóli er tekur þátt í. Ásamst Nesskóla eru þrír skólar þátttakendur í verkefninu frá Eistlandi, Litháen og Danmörku. Eins og nafnið gefur til kynna er lögð áhersla á að kynna fyrir nemendum vísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði.

Það var eitt og annað á dagskrá í Nesskóla í síðustu viku. Meðal annars mældu nemendurnir ljósmagn frá skjám snjallasíma og spjaldtalva, unnu myndefni með "green screen" tækni og margt fleira.

Auk þess kíktu nemendurnir í Oddsskarð, fóru í sund og nutu þess að skoða Íslenska náttúru.