Nemendur í 9. bekk Grunnskóla Reyðarfjarðar standa fyrir áheitasöfnun vegna skólaferðalags á Bakkaflöt næsta vor. Laugardaginn 3. október ætla 25 nemendur að taka þátt í Reyðarfjarðargöngunni 2026, en leiðin er alls 67 kílómetrar.
Fyrsti hópurinn leggur af stað frá Karlsskála í Eskifirði kl. 5 að morgni. Göngulok eru áætluð við Vattarnes kl. 19:20.
Allur hópurinn gengur saman í gegnum Reyðarfjörð kl. 11:30 og nemendurnir sameinast einnig á síðasta hluta leiðarinnar til að ljúka göngunni saman.
Þau sem vilja styðja við skólaferðalagið geta heitið á nemendurna.
Í þessum hlekk og gegnum QR-kóðann á myndinni fer fram skráning á áheitum.

