Fara í efni
11.11.2026 Fréttir, Skólar og fræðsla, Neskaupstaður

70 ára tónlistarkennslu í Neskaupstað fagnað

Deildu

Í ár eru 70 ár liðin frá upphafi tónlistarskólahalds í Neskaupstað. Af því tilefni verða haldnir afmælistónleikar í Egilsbúð laugardaginn 14. nóvember, klukkan 16:00 þar sem núverandi og fyrrverandi nemendur og kennarar koma fram með fjölbreytta dagskrá.

Upphaf skólahaldsins má rekja til ársins 1956 þegar Tónlistarfélag Neskaupstaðar hóf rekstur tónlistarskóla. Fyrsti skólastjórinn var Jón Ásgeirsson tónskáld. Fyrsta skólaárið voru nemendur 30 og luku 20 þeirra prófi á píanó eða orgel.

Eftir nokkurt hlé á starfseminni samþykkti bæjarstjórn Neskaupstaðar 3. mars 1967 að stofna tónskóla á vegum bæjarins. Í blaðaúrklippu frá þeim tíma kemur fram að reynslan af fyrra skólahaldi hafi verið góð. Tuttugu árum síðar var afmæli Tónskóla Neskaupstaðar fagnað og farið yfir uppbyggingu hans og vaxandi starfsemi. 

Blaðaúrklippa með fyrirsögninni „Tónskóli“. Greint er frá samþykkt um stofnun tónskóla haustið 1967, fyrirhuguðum rekstri bæjarins og kjöri skólanefndar.
Blaðaúrklippa frá 10. mars 1967 um samþykkt bæjarstjórnar Neskaupstaðar á stofnun tónskóla á vegum bæjarins. Tónlistarfélagið hafði áður rekið tónskóla á staðnum.

Tónlistarkennslan heldur áfram í Neskaupstað undir merkjum Tónlistarskóla Fjarðabyggðar, en tónlistarskólar sveitarfélagsins sameinuðust í eina stofnun árið 2024. Nú stunda 305 nemendur nám við skólann. Af þeim eru 118 búsettir í Neskaupstað, þar á meðal 100 nemendur Nesskóla.

„Ég óska nemendum og kennurum Tónlistarskólans sem og Norðfirðingum öllum til hamingju með þennan merka áfanga og er glaður með að hafa fengið tækifæri til að taka við svo góðu starfi sem Tónskóli Neskaupstaðar hefur skilað síðustu áratugi,“ segir Valdimar Másson skólastjóri.

Á afmælistónleikunum verður tækifæri til að njóta tónlistar og rifja upp söguna. Ljósmyndir úr skólastarfinu frá ýmsum tímum verða til sýnis og boðið verður upp á léttar veitingar að tónleikum loknum.

Öll eru velkomin. Tónleikarnir eru styrktir af Fjarðabyggð og SÚN.