Fara í efni
02.10.2026 Fréttir, Bæjarráð

Áherslumál Fjarðabyggðar rædd við þingmenn í kjördæmaviku

Deildu

Þingmenn Norðausturkjördæmis funduðu með bæjarráði og bæjarstjóra Fjarðabyggðar fimmtudaginn 1. október í tengslum við kjördæmaviku. Á fundinum var uppbygging Mjóeyrarhafnar kynnt og farið yfir helstu áherslumál sveitarfélagsins.

Bæjarstjóri kynnti verkefnið „Mjóeyrarhöfn – uppbygging til framtíðar“. Þar voru dregin fram tækifæri til aukinnar hafnarþjónustu og atvinnuuppbyggingar, meðal annars í flutningum, framleiðslu og þjónustu við sjávarútveg, fiskeldi og iðnað. Áformin byggja á greiningu á þörfum notenda og gera ráð fyrir uppbyggingu í áföngum fram til ársins 2040 og lengra.

Þjónusta og grunninnviðir í forgrunni

Í kjölfarið var farið yfir áherslumál Fjarðabyggðar. Í heilbrigðis- og öldrunarþjónustu var lögð áhersla á eflingu geðheilbrigðisþjónustu, fjölgun hjúkrunarrýma og aukna dagvist aldraðra. Einnig var fjallað um opnun göngudeildar við Umdæmissjúkrahús Austurlands og mikilvægi sjúkraflugs, sjúkraflutninga og Norðfjarðarflugvallar.

Í samgöngumálum voru úrbætur á Suðurfjarðavegi, ný brú yfir Sléttuá og bráðaaðgerðir í Kambanesskriðum meðal áhersluatriða, ásamt öryggi vegarins um Fagradal og Grænafell. Þá var lögð áhersla á að koma uppbyggingu við verknámshús Verkmenntaskóla Austurlands áfram.

/cdn/media/IMG_3792.jpeg?v=1790940436%2C0.3978%2C0.3087
Þingmenn kjördæmisins funduðu með bæjarráði og bæjarstjóra

Fjallað var um nauðsyn þess að styrkja fjarskipti og raforkuinnviði, ljúka hringtengingu ljósleiðara og bæta farsímasamband á Fagradal. Jafnframt var lögð áhersla á þriggja fasa rafmagn í dreifbýli, aukið raforkuöryggi og framgang Græns Orkugarðs Austurlands.

Þá kallaði Fjarðabyggð eftir endurskoðun á tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga og lýsti stuðningi við endurgreiðslu virðisaukaskatts af innviðaframkvæmdum sveitarfélaga.

Það borgar sig að fjárfesta í Austurlandi

Þuríður Lillý Sigurðardóttir, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, leggur áherslu á að þingmenn fylgi hagsmunamálum sveitarfélagsins eftir.

„Samtal sveitarfélagsins við þingmenn er mikilvægt. Hlutur Austurlands í stórum áætlunum ríkisins í ýmsum málaflokkum hefur valdið vonbrigðum. Fjarðabyggð er ekki afgangsstærð og á að fá sömu hlutdeild í stórum verkefnum og önnur sveitarfélög og landsvæði,“ segir Þuríður.

„Við lögðum mikla áherslu á að fá áheyrn og vekja áhuga á þeim tækifærum sem hér eru. Tækifæri Fjarðabyggðar til vaxtar eru mikil, en sá vöxtur getur ekki orðið nema löngu tímabær uppbygging grunninnviða fylgi með. Þar þurfa ríkið og sveitarfélagið að taka höndum saman. Það borgar sig að fjárfesta í Austurlandi.“