Fara í efni
04.03.2019

Áhrif loðnubrests

Deildu

Í Fjarðabyggð var tekið á móti og unnin um 47% af öllum loðnuafla á árinu 2018.

Meginniðurstaða samantektar fjármálastjóra Fjarðabyggðar er að launatekjur íbúa í Fjarðabyggð munu lækka að óbreyttu um 5% eða 1,25 milljarð króna á árinu 2019 frá fyrra ári. Laun starfsmanna í sjávarútvegi munu lækka um 13% frá fyrra ári miðað við lítt breytta loðnuvertíð á milli ára. Inn í samfélagið mun vanta um 10 milljarða króna í útflutningstekjur. Velta fyrirtækja sem eru beintengd þjónustu við sjávarútvegsfyrirtækin mun lækka um nálægt 600 milljónum króna.

Samdráttarins mun einnig gæta í öðrum atvinnugreinum, smitast um samfélagið og koma fram í bjartsýni íbúa og fyrirtækja til fjárfestinga, viðhalds og annarra þjónustukaupa auk áhrifa á fasteignamarkað. Tekjur sveitasjóðs og hafnarsjóðs munu lækka um 260 milljónir króna frá fjárhagsáætlun ársins 2019.