Fara í efni
09.02.2026 Fréttir, Fjármál

Álagning fasteignagjalda 2026

Deildu

Álagningarseðlar fasteignagjalda í Fjarðabyggð 2026 hafa verið birtir á vefsíðunni island.is og á Íbúagátt Fjarðabyggðar.  Álagningarseðlar eru ekki sendir í pósti.

Fasteignagjöldin verða innheimt í gegnum net- eða heimabanka. Greiðsluseðlar verða ekki sendir út, nema sérstaklega hafi verið óskað eftir því. 

Fjármálasvið Fjarðabyggðar annast álagningu og innheimtu á fasteignaskatti, lóðaleigu, vatnsgjaldi, fráveitugjaldi og sorpgjöldum. Fasteignagjöld ársins 2026, yfir 38.000 kr., greiðast með tíu jöfnum greiðslum 1. hvers mánaðar frá febrúar til  nóvember og eindagi greiðslu er síðasti virki dagur hvers mánaðar. 

Gjalddagi fasteignagjalda undir 38.000 kr. er 1. febrúar.

Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar, sem fengu afslátt af fasteignaskatti 2025, fá einnig að óbreyttu afslátt af fasteignaskatti fyrir árið 2026 að teknu tilliti til tekjuviðmiða. Eftir yfirferð Ríkisskattstjóra á skattframtölum elli- og örorkulífeyrisþega, framkvæmir Fjármálasvið breytingar á fasteignaskatti. Það þarf því ekki að sækja sérstaklega um afslátt þessara gjalda. Við álagningu fasteignagjalda í janúar verður afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur ársins 2024. Þegar álagning vegna tekna ársins 2025 liggur fyrir að hausti 2026, verður afslátturinn endanlega ákvarðaður og verða allar breytingar tilkynntar bréflega.

Skilyrði afsláttar eru að viðkomandi sé elli- eða örorkulífeyrisþegi, sé þinglýstur eigandi fasteignar og eigi þar lögheimili. Einungis er veittur afsláttur vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.

Bæjarstjórn hefur ákveðið að tekjumörk elli-og örorkulífeyrisþega vegna afsláttar fasteignaskatts á árinu 2026 verði eftirfarandi:

Einstaklingur með tekjur allt að 6.916.936 fá 100% afslátt og hlutfallslega þar til tekjur ná 9.147.489 kr.

Hjón og samskattað sambýlisfólk með tekjur allt að 10.505.945 kr. fá 100% afslátt og hlutfallslega þar til tekjur ná 12.556.013 kr.

Upphæð afsláttar er allt að 128.524 kr. Afslátturinn er hlutfallslegur og reiknaður af fasteignaskatti viðkomandi eignar.

Fjármálasvið Fjarðabyggðar veitir allar upplýsingar varðandi álagningu og innheimtu fasteignagjalda í síma 470-9000. Gjaldskrá fasteignagjalda og reglur um afslætti má finna á heimasíðu Fjarðabyggðar. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is