Ársreikningur Fjarðabyggðar fyrir árið 2025 var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag. Niðurstöðurnar sýna að rekstur sveitarfélagsins er traustur þrátt fyrir áframhaldandi verðbólgu, hækkandi launakostnað og hækkun lífeyrisskuldbindinga.
Tekjur jukust á árinu, rekstrarniðurstaða er jákvæð bæði í A-hluta og samstæðu A- og B‑hluta og fjárhagsstaða sveitarfélagsins styrktist enn frekar.
REKSTUR:
Rekstrartekjur samstæðu A- og B‑hluta námu 12.230 m.kr. árið 2025. Í A‑hluta námu tekjur 9.727 m.kr. Rétt eins og undanfarin ár eru útsvar og fasteignaskattar stærsti tekjustofn A‑hluta.
Rekstrargjöld án afskrifta í samstæðunni námu 10.327 m.kr. og 8.897 m.kr. í A‑hluta. Laun og launatengd gjöld voru stærsti gjaldaliðurinn eða um 5.656 milljónir í A-hluta og um 6.026 milljónir í samstæðu A- og B- hluta.
Rekstrarniðurstaða án afskrifta, fjármagnsliða og tekjuskatts (EBITDA) var jákvæð um 1.903 m.kr. í samstæðu og 830 m.kr. í A‑hluta. Rekstrarniðurstaða fyrir bæði A- hluta og samstæðu A- og B- hluta litast af verðbólgu og hækkun lífeyrisskuldbindinga en gjaldfærsla vegna lífeyrisskuldbindingar nam 603 milljónum í samstæðu A- og B-hluta sem er um 324 milljón króna hækkun frá fyrra ári.
Í rekstrinum eru gjaldfærðar fjármunatekjur og fjármagnsgjöld að fjárhæð 379 milljónir króna hjá samstæðu A-og B-hluta og 361 milljón króna í A hluta. Gjaldfærslan í samstæðu A- og B- hluta er 93 milljón krónum lægri en á fyrra ári og 39 milljónum króna lægri fjárhæð en áætlun ársins gerði ráð fyrir
Heildarniðurstaða rekstrar er jákvæð um 849,6 m.kr. í samstæðu A-og B-hluta og 150 m.kr. í A‑hluta.
EFNAHAGUR:
Heildareignir sveitarfélagsins námu 21.549 m.kr. í árslok 2025. Fastafjármunir voru 19.214 m.kr. Heildarskuldir og skuldbindingar námu um 11.472 milljónum króna og hækkuðu á milli ára um 282 milljónir króna. Langtímaskuldir við lánastofnanir og leiguskuldir námu um 5.265 milljónum króna og lækka um 347 milljónir milli ára. Lifeyrisskuldbinding og aðrar skuldbindingar námu um 4.076 milljónum króna og hækka um 297 milljónir milli ára.
Eigið fé samstæðu er 10.078 milljónir króna í árslok 2025 samanborið við 8.943 milljónir kr. í árslok 2024. Breytingin á eigin fé skýrist af rekstrarniðurstöðu ársins og endurmati lóða.
SJÓÐSTREYMI
Handbært fé frá rekstri var sterkt. Nam 1.153 milljónum í A-hluta og nam 2.149 m.kr. í samstæðu A- og B-hluta
Fjárfestingahreyfingar í samstæðu A og B hluta námu samtals 1.511 milljónum króna á árinu 2025 samanborið við 1.239 milljónir króna árið áður. Helstu fjárfestingar ársins voru vegna hafnarmannvirkja, Grunn- og leikskóla og íþróttamannvirkja.
Lántökur voru engar á árinu en voru um 28 milljónir á árinu 2024. Afborganir langtímalána og leiguskuldbindinga námu 479 milljónum króna á árinu 2025. En sveitarfélagið greiddi auk þess 309 millj. kr. af lífeyrisskuldbindingum. Handbært fé hækkaði á árinu um 162 milljónir króna og var 993 milljónir króna í árslok 2025.
Heildarniðurstöður ársins sýna ábyrga fjármálastjórn og áframhaldandi styrkingu á fjárhagslegri stöðu sveitarfélagsins.
