Ásmundur Hálfdán hefur verið í fremstu röð í sinni íþróttagrein síðustu ár og árið 2016 hefur hann verið ósigrandi bæði hérlendis sem erlendis. Hann tók þátt í öllum mótum í sinni grein á Íslandi árið 2016 og sigraði þau öll. Ásmundur Hálfdán vann einnig Grettisbeltið á árinu, fyrstur einstaklinga fyrir hönd UÍA, en auk þess varð Ásmundur enskur og skoskur meistari í "Backhold".
Stórkostlegur íþróttamaður hér á ferð og mikil fyrirmynd, bæði innan vallar sem utan.