Fara í efni
21.10.2026 Fréttir, Íþróttir og tómstundir

Aukinn stuðningur við íþrótta- og tómstundastarf í Fjarðabyggð

Deildu

Fjarðabyggð hefur úthlutað um 32,5 milljónum króna til íþrótta- og tómstundafélaga í sveitarfélaginu fyrir árið 2026. Fjárhæðin skiptist á milli þeirra félaga sem sóttu um og hlutu öll félögin styrk.

Styrkirnir styðja við daglegt starf félaganna, rekstur þeirra og uppbyggingu aðstöðu. Félögin gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu og skapa vettvang fyrir hreyfingu, samveru og þátttöku. Fyrir börn og ungmenni er starfið jafnframt tækifæri til að kynnast nýjum viðfangsefnum, þroska hæfileika sína og mynda vináttubönd.

„Að baki íþrótta- og tómstundastarfi í Fjarðabyggð er mikil vinna þjálfara, sjálfboðaliða og annarra sem halda félögunum gangandi. Það er mikilvægt að sveitarfélagið standi við bakið á þeim og hjálpi þeim að halda úti fjölbreyttu og öflugu starfi. Þessir styrkir skipta máli fyrir félögin og fólkið sem tekur þátt í starfinu. Það er ánægjulegt að öll félög sem sóttu um hafi hlotið styrk,“ segir Ragnar Sigurðsson, formaður fjölskylduráðs.

Félögin sem hlutu styrki

Styrki til íþrótta- og tómstundastarfs hlutu KFA, Þróttur, Leiknir, Valur, Hrafnkell Freysgoði, Austri, Skíðafélag Fjarðabyggðar, Farfugl, Brettafélagið og Padel.

Rekstrar- og uppbyggingarstyrki hlutu Hestamannafélagið Blær, Golfklúbbur Byggðarholts, Golfklúbbur Norðfjarðar, Golfklúbbur Fjarðabyggðar, UÍA, Sjósportsklúbbur Austurlands og Kajakklúbburinn.

Heildarstuðningur eykst um 8,4% milli ára

Heildarstuðningur Fjarðabyggðar við íþrótta- og tómstundastarf nemur um 78,1 milljón króna árið 2026, samanborið við 72,1 milljón árið 2025. Það er hækkun um tæpar 6,1 milljón króna, eða 8,4% milli ára.

Í heildarstuðningnum felst 36,3 milljóna króna styrkjarammi, auk frístundastyrkja til barna og ungmenna og gjaldfrjálsra afnota félaga af íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins. Frístundastyrkir nema samtals 10 milljónum króna og afnot íþróttamannvirkja eru metin á um 31,8 milljónir króna.

Stuðningur við starfsemi og uppbyggingu

Ár hvert auglýsir Fjarðabyggð eftir umsóknum um styrki til íþrótta- og tómstundastarfs. Úthlutað er í samræmi við reglur sveitarfélagsins.

Íþrótta- og tómstundastyrkir eru veittir félögum á grundvelli fjölda barna og ungmenna á aldrinum 6–18 ára sem stunda æfingar eða taka þátt í starfsemi þeirra. Rekstrar- og uppbyggingarstyrkir styðja við félög sem reka eigin aðstöðu og falla ekki undir meginfélögin. Þá er hægt að sækja um samvinnustyrki til verkefna þar sem áhersla er lögð á samstarf og samnýtingu milli félaga eða annarra aðila.

Með stuðningnum leggur Fjarðabyggð sitt af mörkum til að félögin geti áfram boðið íbúum upp á fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf og byggt starfsemi sína upp til framtíðar.