Bæjarráð Fjarðabyggðar ákvað á fundi sínum í gær að hækka árlegt framlag sitt til Píeta samtakanna úr 700.000 kr. í 1.500.0000 kr. fyrir árið 2025. Píeta samtökin gegna mikilvægu hlutbverki. Jafnframt viljum við hvetja íbúa til að nýta sér þjónustuna ef þurfa þykir. Samstarf Fjarðabyggðar og Píeta samtakanna hófst fyrr á þessu ári og hefur gefið góða raun og felur í sér fasta viðveru og reglubundna þjónustu í sveitarfélaginu.
„Starfsemi Pieta hefur reynst okkur dýrmæt á tímum áfalla. Því ákváðum við að svara þörfinni með því ríflega tvöfalda stuðning okkar við samtökin fyrr á árinu. Samstarfið hefur styrkt þjónustuna hér á Austurlandi verulega – fyrir það erum við óendanlega þakklát.“ Sagði Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs í kjölfarið á fundinum.
Í gær hófst gulur september en mánuðurinn er helgaður geðheilbrigðismálefnum. Alþjóðlegur forvarnadagur gegn sjálfsvígum verður 10. september.
Hægt er að bóka viðtalstíma í Píeta símann 552-2218, en hann er opinn allan sólarhringinn. Einnig er hægt að hringja í Hjálparsíma Rauða krossins 1717.
Einnig viljum við benda á að hægt er að styrkja Píeta samtökin í gegnum heimasíðu samtakanna https://pieta.is/styrkja-samtokin/