Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir miklum vonbrigðum með framgöngu ríkisvaldsins vegna fyrirhugaðrar stækkunar verknámshúss Verkmenntaskóla Austurlands. Þrátt fyrir undirritun viljayfirlýsingar árið 2022 hafa framkvæmdir ekki hafist. Bæjarráð kallar eftir skýrri, tímasettri áætlun um fjármögnun og framgang verkefnisins.
Ályktun skólanefndar Verkmenntaskóla Austurlands um stöðu verkefnisins var lögð fram á fundi bæjarráðs. Skólameistari og formaður skólanefndar sátu fundinn við umfjöllun um málið. Bæjarráð tekur undir ályktunina og telur óásættanlegt að brýnni uppbyggingu skólans sé áfram slegið á frest.
Mikilvægt fyrir nemendur og atvinnulíf
Fjarðabyggð hefur um árabil lagt ríka áherslu á að stækkun verknámshússins komi til framkvæmda hið fyrsta. Öflugt iðn- og verknám er grundvöllur fjölbreyttra námstækifæra á Austurlandi og forsenda þess að atvinnulíf svæðisins hafi aðgang að menntuðu fagfólki til áframhaldandi verðmætasköpunar.
Í bókuninni kallar bæjarráð eftir sanngjarnri hlutdeild í opinberri fjárfestingu og krefst þess að fyrirheit um uppbyggingu innviða skili sér í raunverulegum fjárfestingum.
Óvissan hamlar þróun skólans
Bæjarráð tekur jafnframt undir athugasemdir skólanefndar um skort á samráði og upplýsingagjöf af hálfu viðkomandi ráðuneyta.
„Langvarandi óvissa hamlar þróun náms og starfsemi skólans og samræmist ekki yfirlýstum markmiðum um eflingu iðn- og verknáms,“ segir í bókun bæjarráðs.
